Fréttablaðið - 28.01.2008, Síða 6
6 28. janúar 2008 MÁNUDAGUR
Keila með tómat og basil 23% afsláttur
998 kr.kg
Mánudagstilboð
Mangó sigldi á krana
Flutningaskipið Mangó lenti á
bryggjukrana í Flateyrarhöfn um eitt-
leytið í gær og skemmdi hann veru-
lega. Ekki sér á skipinu, en ástæðu
slyssins má rekja til óveðursins sem
hefur geisað á Vestfjörðum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Fok olli tjóni í Vallahverfi
Hjálparsveitir voru kallaðar út þegar
útlit var fyrir að þakplötur myndu
fjúka af nýbyggingu í Vallahverfi
í Hafnarfirði um hádegi í gær. Af
öðrum húsum losnaði klæðning og
segir lögregla að helst megi kenna
slæmum frágangi verktaka um
skemmdirnar.
Ölvaður ók út af og festist
Jeppabifreið var ekið út af Flugvallar-
veginum í Reykjanesbæ í gær og
sat hún þar föst. Ökumaðurinn er
grunaður um ölvun. Þrír menn voru
handteknir á vettvangi og fengu þeir
allir gistingu í fangageymslu lögregl-
unnar.
SAMGÖNGUR Fimm starfsmenn jarð-
vinnuverktaka óku á milli vinnu-
staða í Reykjavík í tveggja manna
vinnubíl á fimmtudag. Vinnubrögð-
in eru óviðunandi og ólögleg segir
deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu.
Starfsmennirnir voru í vinnubíl
merktum Eðalverki, og voru menn-
irnir aftan í bílnum í vinnugöllum
merktum fyrirtækinu þegar veg-
farandi tók myndina.
„Þeir hafa eitthvað verið að þvæl-
ast drengirnir [...] en þetta á auðvit-
að ekki að gerast,“ segir Alfreð
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Eðalverks.
Tólf starfsmenn starfa hjá Eðal-
verki, og segir Alfreð að hann muni
kanna hvers vegna svo margir hafi
verið í bílnum.
„Við höfum dæmi um nokkur
alvarleg umferðarslys, sérstaklega
veltur, þar sem menn hafa verið
aftur í svona bíl, og þar hafa menn
meiðst mjög mikið,“ segir Ágúst
Mogensen, forstöðumaður Rann-
sóknarnefndar umferðarslysa.
„Þetta er ekki viðunandi, auðvit-
að tryggir þetta ekki öryggi manna
í vinnu, það er alveg ljóst,“ segir
Þórunn Sveinsdóttir, deildarstjóri
hjá Vinnueftirlitinu. Allir flutning-
ar á starfsmönnum í vinnu þurfa að
vera í samræmi við lög og reglur,
segir Þórunn. Svo sé ekki í þessu til-
viki. Þarna séu umferðarlög að auki
brotin, enda kveðið á um að sæti
verði að vera fyrir alla farþega, og
þeir fastir í öryggisbelti. - bj
Öryggi starfsmanna ekki tryggt þegar fimm eru fluttir í tveggja manna bíl:
Býður upp á alvarleg slys
FIMM Í BÍL Á myndinni má greina í það
minnsta þrjá starfsmenn Eðalverks aftan
í tveggja sæta fyrirtækisbíl þar sem
hvorki eru sæti né öryggisbelti.
FRÉTTABLAÐIÐ/BRJÁNN
Ert þú sáttur við kaup borgar-
innar á húsunum við Laugaveg
4 og 6?
Já 15,1%
Nei 84,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á Ísland að segja sig úr Atlants-
hafsbandalaginu (NATO)?
Segðu þína skoðun á visir.is
ÖRYGGISMÁL Smíði nýrrar flugvélar fyrir Land-
helgis gæsluna gengur vel og er byrjað að setja
skrokk flugvélarinnar saman. Reiknað er með að
flugvélin, sem er af gerðinni Dash-8 Q300, verði
flughæf um miðjan maí næstkomandi en þá
verður hafist handa við að breyta vélinni í
eftirlitsflugvél. Sú breyting felst í uppsetningu
eftirlitstækja og björgunarbúnaðar og er reiknað
með að flugvélin verði afhent fullbúin í júlí 2009.
Langdrægi vélarinnar er 2.100 sjómílur og hefur
hún hámarkshraða upp á 258 hnúta. Hún þarf
stutta flugbraut, getur athafnað sig á flugvöllum í
öllum landshlutum og hentar vel við íslenskar
veðurfarsaðstæður. Nýja vélin verður mjög vel
búin tækjum til löggæslu, leitar og björgunar og
verður hægt að greina tegund, athöfn og nöfn
skipa, mengun og hafís að nóttu sem degi. Hægt
verður að varpa björgunarbátum, blysum og
mengunarsýnabaujum úr vélinni og hún verður
vel búin fjarskiptatækjum, eins og Tetra, neyðar-
og fjarskiptakerfi, auk góðrar aðstöðu fyrir
björgunarmenn og sjúkraflutninga.
- shá
Ný flugvél Landhelgisgæslunnar afhent í júlí árið 2009:
Smíði flugvélar gengur vel
SAMSETNING Framhluti vélarinnar er óðum að taka á sig
mynd, en vélin verður flughæf um miðjan maí.
VÉLIN FULLKLÁRUÐ
Vélin er af gerðinni
Dash-8 Q300 og
verður búin fullkomnum
búnaði.
HEILBRIGÐISMÁL „Það virðist ekki
vera hægt að sjá annað en að þarna
sé hreinlega verið að skera niður
og spara þjónustu en af einhverj-
um ástæðum kjósa þessir for-
svarsmenn að tilkynna almenningi
þetta með þessum hætti,“ segir
Hjalti Már Björnsson, fyrrverandi
umsjónarlæknir neyðarbíls Land-
spítalans (LSH), en nýlega gekk í
gildi sú ákvörðun forsvarsmanna
spítalans og Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins að neyðarbílar á
höfuðborgarsvæðinu séu ekki
mannaðir læknum. Var það kynnt
sem svo að um aukna þjónustu
væri að ræða.
Í yfirlýsingu frá Félagi ungra
lækna segir að í neyðartilfellum
séu læknar sóttir á slysa- og bráða-
deild sem muni án efa lengja þann
tíma sem tekur að fá lækni á vett-
vang og setja sjúklinga í aukna
hættu. Þetta
gangi í berhögg
við yfirlýsingar
yfirstjórnar
LSH sem haldið
hafi fram að
verið sé að bæta
þjónustuna.
Þannig muni
ekki einungis
þjónusta við
bráðveika sjúk-
linga utan spítalans skerðast
mögulega með alvarlegum afleið-
ingum heldur einnig innan slysa-
og bráðadeildar. Þetta sé í raun
dulin sparnaðaraðgerð sem kostað
gæti mannslíf.
Segir jafnframt í yfirlýsingunni
að með því að hafa lækna á neyð-
arbílum hafi lifun eftir hjarta-
stopp aukist um 100 prósent og
verið með því hæsta sem þekkist á
Vesturlöndum. Með því að fjar-
lægja lækna af neyðarbílum sé
tekið gríðarstórt skref aftur á
bak.
Hjalti segir ekki rétt að rætt
hafi verið við alla hlutaðeigandi
aðila þegar þessi ákvörðun var
tekin. „Við höfum talað við alla
lækna sem unnið hafa við neyðar-
bílslækningar undanfarinn áratug
og alla þá sem eru með sérfræði-
menntun í bráðalækningum og
það hefur enginn verið spurður.“
Hann telur að allir neyðar-
bíls læknar séu sammála um að
kerfið megi endurskoða en
„ákvörðun sem þessa þyrfti að
taka að höfðu samráði, bæði við
fagfólk og notendur þjónustunnar,
sjúklingana.
„Það er ekki einkamál stjórn-
enda hvernig þeir reka þessar
stofnanir. Almenningur hlýtur að
eiga rétt á gagnsæjum upplýsing-
um um hvað verið er að gera,“
segir Hjalti Már, sem er í sérnámi
í bráðalækningum í Bandaríkjun-
um. olav@frettabladid.is
Aðför að öryggi og
velferð sjúklinga
Mikill urgur er í unglæknum slysa- og bráðadeildar vegna ákvörðunar um að taka
lækna af neyðarbílum í sparnaðarskyni. Ákvörðunin var tekin án samráðs. Læknir
segir ákvörðunina ekki einkamál yfirstjórnenda Landspítalans og slökkviliðs.
SLYSADEILD LSH VIÐ HRINGBRAUT Frá 17. janúar eru neyðarbílar á höfuðborgar-
svæðinu ekki lengur mannaðir bráðalæknum heldur þarf í útköllum að sækja þá á
bráðadeild spítalans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HJALTI MÁR
BJÖRNSSON
Almenningur hlýtur að
eiga rétt á gagnsæjum
upplýsingum um hvað
verið er að gera.
HJALTI MÁR BJÖRNSSON
FYRRVERANDI UMSJÓNARLÆKNIS
NEYÐARBÍLS LANDSPÍTALANS
EGYPTALAND, AP Nokkur fjöldi
Hamas-liða fór yfir landamærin
til Egyptalands í gær, og tók
höndum saman við landamæra-
verði frá Egyptalandi við að koma
íbúum Gaza sem farið höfðu yfir
landamærin aftur heim.
Því fer þó fjarri að samkomu-
lag hafi náðst milli Hamas-
samtakanna, sem stjórna Gaza,
og stjórnvalda í Egyptalandi um
landamæravörslu.
Stjórnvöld í Egyptalandi vilja
að palestínsk stjórnvöld og
stjórnvöld í Ísrael taki við stjórn
landamærastöðva, með eftirlits-
mönnum frá Evrópusambandinu.
Því hafnar Hamas. - bj
Hamas-liðar til Egyptalands:
Enn deilt um
landamærin
STJÓRNMÁL Ólafur F. Magnússon,
oddviti F-listans í borgarstjórn,
sagði öllum borgarfulltrúum
listans frá þreifingum um nýtt
meirihlutasamstarf milli sín og
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks
um viku áður en nýr meirihluti
var myndaður.
Þetta kom fram í máli Ástu
Þorleifsdóttur, sem var í fjórða
sæti listans, í Silfri Egils í
Sjónvarpinu í gær. Hún fullyrti að
Margrét Sverrisdóttir, sem var í
öðru sæti listans, hefði vitað af
þessum þreifingum á þeim tíma.
Margrét sagði í fréttum
Sjónvarps í gær að Ólafur hefði
ekki sagt henni af neinum
þreifingum. Hún hafi heyrt
orðróm um viðræður, en hún hafi
ekki lagt trúnað á hann, enda
ýmsar gróusögur í gangi. - bj
Borgarfulltrúi F-listans:
Vissum af við-
ræðum í viku
KJÖRKASSINN