Fréttablaðið - 28.01.2008, Blaðsíða 40
24 28. janúar 2008 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Föndurverslun
Síðumúli 15
S: 553-1800
Sjón er sögu ríkari
Gylfi Einarsson gekk í raðir Noregsmeistara
Brann á dögunum og skrifaði undir þriggja
ára samning en Gylfi hafði verið að leita sér
að nýju félagi frá því að hann fékk sig lausan
frá Leeds síðastliðið haust.
„Ég er mjög ánægður með að vera kom-
inn aftur til Noregs og fyrst ég ákvað að fara
þangað þá var Brann vissulega besti kostur-
inn fyrir mig. Umboðsmaður minn var búinn
að vera í sambandi við þá í þó nokkurn tíma,
en þetta gerðist í sjálfu sér mjög hratt eftir
að ég fór á reynslu til félagsins. Ég mætti
á æfingu á miðvikudag og tveimur dögum
síðar var ég búinn að skrifa undir og það er
mjög ánægjulegt að þetta hafi gengið svona
hratt fyrir sig. Allt frá því ég yfirgaf Leeds var
ég að leita ekki bara að einhverju félagi,
heldur að rétta félaginu fyrir mig og ég
tel Brann vera það,“ sagði Gylfi, sem
getur ekki beðið eftir því að komast á fullt
með norska liðinu.
„Það eru spennandi hlutir búnir að vera
að gerast hjá Brann síðustu ár og það verður
gaman að fá að taka þátt í framtíðarplönum
liðsins og ég get ekki beðið eftir því að koma
knattspyrnuferli mínum af stað á nýjan leik.
Leikmenn Brann eru nú á La Manga á
Spáni í æfingabúðum og ég hitti þá
þar á næstu dögum, en þar verða
leiknir æfingaleikir gegn Helsing-
borg og FC Kaupmannahöfn
og ég vonast til að fá að spila
eitthvað þar. Ég á náttúrlega
eitthvað í land með leikform að
gera, þannig að þessir leikir væru
kjörnir fyrir mig núna. Brann verður
í tvær vikur á La Manga og svo hefst
bara undirbúningur fyrir Evrópuleikina
gegn Everton, sem eru um miðjan febrúar
og þetta er allt bara mjög spennandi,“ sagði
Gylfi fullur tilhlökkunar.
GYLFI EINARSSON, BRANN: BYRJAR AÐ ÆFA Á FULLU MEÐ NORSKA LIÐINU Á LA MANGA Á SPÁNI Á NÆSTU DÖGUM
Get ekki beðið eftir því að komast af stað á ný
> Ísland mætir Makedóníu
Karlalandslið Íslands í handbolta var í gær
dregið gegn Makedóníu í undankeppni
Heimsmeistaramótsins í Króatíu árið
2009. Leiknir verða tveir leikir og
fyrri leikurinn fer fram í
Makedóníu helgina 7.-8.
júní en síðari leikurinn
fer fram á Íslandi viku
síðar. Í fyrradag varð enn
fremur ljóst að Ísland yrði
í riðli með Póllandi, Svíþjóð
og Argentínu í undankeppni
Ólympíu leikanna. Leikirnir fara
fram í Póllandi í lok maí, en þjóð-
irnar munu keppa um tvö laus
sæti í Peking næsta sumar.
Evrópukeppnin í handbolta:
Leikur um 3. sætið:
Frakkland-Þýskaland 36-26 (18-9)
Mörk Frakklands (skot): Olivier Girault 8 (10),
Daniel Narcisse 7 (10), Nikola Karabatic 6 (7),
Luc Abalo 6 (10), Christophe Kempe 2 (2),
Sebastien Ostertag 2 (2), Cedric Paty 2 (4),
Geoffroy Karntz 1 (1), Guillaume Gille 1 (1),
Jerome Fernandez 1 (2).
Varin skot: Thierry Omeyer 10, Daouda
Karaboue 1.
Mörk Þýskalands: Torsten Jansen 7 (9), Pascal
Hens 6 (9), Stefan Schröder 3 (4), Michael Kraus
3 (6), Andrej Klimovets 2 (2), Holger Glandorf 2
(4), Dominik Klein 1 (3), Rolf Hermann 1 (3),
Christian Zeitz 1 (3).
Varin skot: Henning Fritz 6, Johannes Bitter 2.
Úrslitaleikur:
Danmörk-Króatía 24-20 (13-10)
Mörk Danmerkur (skot): Lars Christiansen 7 (8),
Lasse Boesen 7 (13), Jesper Jensen 4 (4), Hans
Lindberg 3 (4), Michael Knudsen 2 (3), Lars
Jørgensen 1 (1).
Varin skot: Kasper Hvidt 14.
Mörk Króatíu (skot): Petar Metlicic 5 (11), Ivan
Cupic 4 (5), Ivano Balic 4 (12), Ljubo Vukic 2 (2),
Tonci Valcic 2 (4), Blazenko Lackovic 2 (8), Igor
Vori 1 (1).
Varin skot: Mirko Alilovic 5, Vjenceslav Somic 1.
Markahæstu leikm. EM, (lið), mörk/leikir:
1-3. Ivano Balic (Króatía) 44/8
1-3. Nikola Karabatic (Frakkland) 44/8
1-3. Lars Christiansen (Danmörk) 44/7
4. Daniel Narcisse (Frakkland) 43/8
5. Lasse M. Boesen (Danmörk) 41/8
6. Kim Andersson (Svíþjóð) 41/7
7. Ales Pajovic (Slóvenía) 39/6
8. Karol Bielecki (Pólland) 37/6
9. Holger Glandorf (Þýskaland) 36/8
10. Guðjón Valur Sigurðsson (Ísland) 34/6
Flestar stoðs. leikmanns að meðalt. á EM:
1. Ólafur Stefánsson (Ísland) 5,0 í leik
2.-3. Glenn Solberg (Noregur) 4,6
2.-3. Kim Andersson (Svíþjóð) 4,6
4. Valeriy Myagkov (Rússland) 4,5
5. Michal Bruna (Tékkland) 4,0
Lið Evrópumótsins:
Vinstra horn: Lars Christiansen (Danmörk)
Vinstri skytta: Daniel Narcisse (Frakkland)
Leikstjórnandi: Ivano Balic (Króatía)
Hægri skytta: Kim Anderson (Svíþjóð)
Hægra horn: Florian Kehrmann (Þýskaland)
Línumaður: Frank Löke (Noregur)
Markvörður: Kasper Hvidt (Danmörk)
Besti leikm.: Nikola Karabatic (Frakkland)
Besti varnarmaðurinn: Igor Vori (Króatía)
ÚRSLITIN Í GÆR
HANDBOLTI Frakkar hreinlega slátruðu
Þjóðverjum 36-26 í leiknum um bronssætið á
EM í Noregi í gær, en Frakkar leiddu leikinn
mest með fjórtán marka mun um miðjan
seinni hálfleik.
Menn áttu jafnvel von á frekar hægum
eða flötum leik þegar fyrrverandi
Evrópumeistarar Frakka, frá og
með gærdeginum, mættu
heimsmeisturum Þjóðverja í
leiknum um bronsið, en bæði
lið voru svekkt yfir að vera
ekki að spila til úrslita auk
þess sem leikjaálagið
væri farið að segja til sín.
Frakkar sýndu það hins vegar
og sönnuðu í byrjun leiks að
þeir væru ekki komnir til að
leika sér og gjörsamlega
keyrðu yfir slaka Þjóðverj-
ana á upphafsmínútunum.
Öflug hraðaupphlaup Frakka
Staðan var orðin 10-2 eftir
rúman tíu mínútna leik og
Þjóðverjar réðu ekkert við
hreyfanlega Frakka, sem
skoruðu grimmt úr
hraðaupphlaupum og fóru
langt með að klára leikinn
í fyrri hálfleik. Frakkar
vörðust af krafti og
refsuðu Þjóðverjum
grimmilega fyrir hver
einustu mistök sem liðið gerði í
hálfleiknum. Það var orðinn
helmingsmunur á liðunum, 18-9,
þegar flautað var til hálfleiks.
Frakkar héldu uppteknum hætti í
síðari hálfleik. Yfirburðirnir voru slíkir að
fyrrverandi Evrópumeistararnir skoruðu
framan af tvö mörk á móti hverju einu marki
Þjóðverja, sem fundu engar lausnir á sínum
vandamálum.
Frakkarnir náðu mest fjórtán marka mun
um miðjan seinni hálfleik áður en þeir slökuðu
aðeins á klónni og Þjóðverjar minnkuðu
muninn. Munurinn var minnst níu mörk í
seinni hálfleik en liðin skiptust á að skora á
lokakaflanum og leikurinn endaði með tíu
marka sigri Frakka, 36-26.
Daniel Narcisse var valinn maður leiksins
hjá Frakklandi en hann skoraði fimm af sjö
mörkum sínum í fyrri hálfleik og átti hvað
mestan þátt í frábærri byrjun liðs síns í
upphafi leiksins þegar Frakkar skoruðu sex
mörk í röð. Annars áttu bæði Olivier Girault,
sem var markahæstur Frakka með átta mörk,
og Nikola Karabatic, sem skoraði sex mörk,
einnig mjög góðan dag.
Torsten Jansen var atkvæðamestur hjá
slöppum Þjóðverjum og var með sjö mörk og
Pascal Hens kom næstur með sex mörk. - óþ
Frakkar tóku Þjóðverja í kennslustund í handbolta þegar þeir unnu 36-26 í leik um bronssætið á EM í gær:
Frakkar hreinlega niðurlægðu Þjóðverja
VONBRIGÐI Heiner Brand,
þjálfari Þjóðverja, trúði
ekki sínum eigin augum
með rassskellinguna sem
hans menn hlutu í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Danir voru krýndir
Evrópumeistarar í handbolta í
gær eftir 24-20 sigur gegn Króöt-
um í úrslitaleiknum.
Leikurinn byrjaði ekki gæfu-
lega fyrir Dani því Króatar skor-
uðu fjögur fyrstu mörk leiksins og
leiddu mestallan fyrri hálfleik.
Dönum óx þó ásmegin eftir því
sem líða tók á leikinn og þeir tóku
svo forystu í fyrsta skipti í leikn-
um á 25. mínútu, 10-9, og breyttu
svo stöðunni í 13-10 með því að
skora tvö síðustu mörk fyrri hálf-
leiks. Danir sýndu mikla seiglu
með því að snúa leiknum sér í hag
en það munaði miklu fyrir Króata
að leikstjórnandinn Ivano Balic
fann sig engan veginn í fyrri hálf-
leik.
Danir náðu svo
frábærri rispu og
voru komnir í
17-11 eftir
fyrstu tíu mín-
útur í seinni
hálfleik. Það er
skemmst að
segja frá því að
Króatarnir
náðu sér aldrei almennilega
á strik eftir það og Danir
héldu þriggja til fjögurra
marka mun út mest allan leik-
inn. Gremjan tók völd hjá Kró-
ötum og þegar tíu mínútur
voru eftir fékk Lino Cervar,
þjálfari liðsins, að líta rauða
spjaldið fyrir mótmæli. Króat-
ar lifnuðu reyndar aðeins við í
kjölfarið á því og náðu mest að
minnka muninn niður í tvö mörk í
stöðunni 22-20 þegar tæpar fimm
mínútur lifðu leiks. Króatar fengu
svo tækifæri til þess að minnka
muninn í eitt mark en náðu ekki að
skora og Danir komust í þriggja
marka forystu, 23-20, þegar þrjár
mínútur voru eftir. Danir kláruðu
svo leikinn með stæl þegar Lasse
Boesen skoraði síðasta markið og
lokatölur því 24-20 og Danir nýir
Evrópumeistarar. Danir verð-
skulduðu sigurinn og voru heilt
yfir einfaldlega betri en Króatar.
Þjálfarinn Ulrik Wilbek stóð því
við stóru orðin, en hann sagði fyrir
keppnina að Danir yrðu Evrópu-
meistarar.
omar@frettabladid.is
Danir eru nýir Evrópumeistarar
Danmörk vann Króatíu 24-20 í úrslitaleik Evrópumótsins í handbolta í Noregi í gær. Ulrik Wilbek, þjálfari
Dana, stóð við stóru orðin og er fyrsti maðurinn til að gera bæði karla- og kvennalið að Evrópumeisturum.
FÖGNUÐUR Markvörðurinn Kasper Hvidt (til vinstri) og vinstri hornamaðurinn Lars Christiansen (að ofan) fagna hér
grimmt í leikslok eftir glæsilegan sigur gegn Króatíu í gær. Báðir leikmennirnir áttu stóran þátt í sigri Dana í gær og
voru valdir í lið Evrópumótsins. NORDIC PHOTOS/GETTY