Fréttablaðið - 28.01.2008, Page 43
MÁNUDAGUR 28. janúar 2008 27
Enski FA-bikarinn:
Man. Utd-Tottenham 3-1
0-1 Robbie Keane (24.), 1-1 Carlos Tévez (38.),
2-1 Cristiano Ronaldo (69.), 3-1 Cristiano
Ronaldo (88.).
Sheff. Utd-Man. City 2-1
1-0 Luton Shelton (12.), 2-0 Jon Stead (24.), 2-1
Daniel Sturridge (48.).
Hereford-Cardiff 1-2
Ítalska Serie A-deildin:
Atalanta-Reggina 2-2
1-0 Claudio Rivalta (19.), 2-0 Antonio Langella
(46.), 2-1 Luca Vigiani (61.), 2-2 Edgar Barreto
(67.). Emil Hallfreðsson var ekki í leikmannahópi
Reggina vegna meiðsla.
AC Milan-Genoa 2-0
1-0 Pato (69.), 2-0 Pato (82.).
Udinese-Inter 0-0
Spænska La liga-deildin:
A. Bilbao-Barcelona 1-1
0-1 Bojan (35.), 1-1 F. Llorente (79.). Eiður Smári
Guðjohnsen lék síðustu tíu mínúturnar fyrir
Barcelona.
Valencia-Almería 0-1
0-1 Felipe Melo (20.).
ÚRSLITIN Í GÆR
FUTSAL Úrslitakeppni Íslandsmóts-
ins í innanhússknattspyrnu karla
og kvenna fór fram í gær og á
laugardag þar sem Valur vann
ÍBV 7-2 í karlaflokki og Breiðablik
vann ÍR 9-3 í kvennaflokki.
Íslandsmótið í innanhússknatt-
spyrnu var með talsvert breyttu
sniði að þessu sinni þar sem leikið
var í fyrsta skipti samkvæmt svo-
kölluðum Futsal-reglum. Futsal-
knattspyrna hefur verið að sækja
í sig veðrið upp á síðkastið og
íþróttin er í gríðarlegum vexti um
allan heim, en Futsal-knötturinn
er minni en venjulegur utanhúss-
bolti og því er einnig leikið á minni
mörk. Leiktíminn er 2x20 mínútur
og tíminn stöðvaður í hvert sinn
sem boltinn fer út af.
Leið Vals og ÍBV var talsvert
grýtt í úrslitaleikinn þar sem
Valur vann Vini 7-5 eftir að hafa
lent undir 4-1 og ÍBV vann Víði 13-
7 í framlengdum leik.
Breiðablik og ÍR þurftu að hafa
minna fyrir því að komast í úrslita-
leikinn, en Breiðablik vann Tinda-
stól 14-0 og ÍR þurfti ekki að leika
sinn leik í undanúrslitum þar sem
lið Sindra komst ekki í leikinn
vegna ófærðar. - óþ
Úrslitaleikir í innanhússknattspyrnu karla og kvenna fóru fram í gær en leikið var eftir Futsal-reglum:
Valur og Breiðablik meistarar í Futsal
MEISTARAR Breiðablik vann
Íslandsmót kvenna í Futsal.
FRÉTTABLADID/ANTON
FÓTBOLTI Manchester United er
komið í fimmtu umferð FA-bikars-
ins á Englandi eftir 3-1 sigur á
Totten ham á Old Trafford en
nágrannarnir í Manchester City
töpuðu óvænt gegn 1. deildarliði
Sheffield United á Bramall Lane.
Leikur Manchester United og
Tottenham á Old Trafford var
hraður og bráðskemmtilegur.
Totten ham beitti skæðum skyndi-
sóknum í leiknum og úr einni slíkri
skoraði Robbie Keane fyrsta mark
leiksins. Varnarmaðurinn Michael
Dawson átti þá hnitmiðaða send-
ingu upp hægri kantinn á Aaron
Lennon, sem fór illa með Patrice
Evra áður en hann sendi á Keane á
fjærstönginni sem afgreiddi bolt-
ann auðveldlega í netið. United
var þó ekki lengi að jafna leikinn
og þar var Carlos Tévez á ferðinni
eftir góðan undirbúning Wayne
Rooney og Ryan Giggs og staðan
jöfn í hálfleik.
Seinni hálfleikur var ekki síður
viðburðaríkur og segja má að
þetta hafi verið leikur hinna glöt-
uðu marktækifæra þar sem dauða-
færin komu á færibandi og voru
vægast sagt illa nýtt af báðum
aðilum. Það kom svo sem ekki á
óvart að varnarleikur Tottenham
væri ekki gæfulegur en hin frá-
bæra vörn United átti ótrúlega
slakan dag. Það dró svo til tíðin-
dag á 68. mínútu þegar áðurnefnd-
ur Dawson handlék boltann vísvit-
andi innan vítateigs til þess að
eyðileggja dauðafæri Rooney og
fékk réttilega að líta rautt spjald
og vítaspyrna var dæmd. Ronaldo
skoraði af öryggi úr vítinu og hann
var svo aftur á ferðinni á 88. mín-
útu þegar hann skoraði sitt annað
mark og innsigldi 3-1 sigur Unit-
ed. Til að auka gleði United-manna
kom Paul Scholes inn á sem vara-
maður í sínum fyrsta leik í þrjá
mánuði.
1. deildarlið Sheffield United
kom á óvart með því að skora tvö
mörk gegn Manchester City í fyrri
hálfleik á Bramall Lane. Fyrst
skoraði Luton Shelton á 12. mínútu
og Jon Stead bætti öðru marki við
rúmum tíu mínútum síðar.
Varamaðurinn Daniel Sturridge
minnkaði muninn með glæsilega
marki á 48. mínútu en nær komst
City ekki í leiknum og Sheffield
United vann frækinn sigur.
omar@frettabladid.is
Misjafnt gengi Manchester-liðanna
Englandsmeistarar Manchester United bókuðu farseðilinn í fimmtu umferð FA-bikarsins með 3-1 sigri gegn
Tottenham en Manchester City er dottið úr keppni eftir óvænt 1-2 tap gegn 1. deildarliði Sheffield United.
VENDIPUNKTUR Michael Dawson býr sig undir að handleika knöttinn á 68. mínútu leiksins, en hann fékk að líta rauða spjaldið
fyrir vikið og United fékk víti sem Ronaldo skoraði úr. NORDIC PHTOOS/GETTY
FÓTBOLTI Harry Redknapp,
knattspyrnustjóri Portsmouth,
hefur staðfest að Milan Baros
muni ganga í raðir sinna manna í
dag eftir að hafa gengið í gegnum
læknisskoðun. Baros verður á
láni hjá Portsmouth frá Lyon út
leiktímabilið til að byrja með.
„Það eru fjórir leikmenn okkar
í Afríkukeppninni og ég hef í
raun bara einn leikhæfan
framherja, Benjani Mwaruwari,
þannig að við þurfum Baros
nauðsynlega og það strax,“ sagði
Redknapp í viðtali eftir bikar-
sigur gegn Plymouth á laugardag
þar sem David Nugent meiddist.
Baros fer því beint inn í leik-
mannahóp Portsmouth og verður
að öllu óbreyttu löglegur fyrir
leikinn gegn Englandsmeisturum
Manchester United á Old
Trafford á miðvikudag.
Baros lék með Liverpool í
ensku úrvalsdeildinni á árunum
2002-2005 og skoraði þá 19 mörk í
68 leikjum, áður en hann fór til
Aston Villa og lék þar á árunum
2005-2007 og skoraði 9 mörk í 42.
leikjum. - óþ
Harry Redknapp, Portsmouth:
Þurfum að fá
Baros strax
FÓTBOLTI Barcelona náði einungis
jafntefli gegn Athletic Bilbao í
spænsku úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi. Eiður Smári Guðjohnsen
var á varamannabekk Barcelona
en lék síðustu tíu mínúturnar.
Leikurinn fór rólega af stað en
fyrir fram var búist við örugg-
um sigri Barcelona þar sem
Bilbao-liðinu hefur gengið illa
á leiktíðinni og er í bullandi
fallbaráttu. Barcelona náði
hins vegar aldrei neinu
flugi í fyrri hálf-
leik og lítið sem
ekkert flæði var
í leik liðsins.
Besta færið
framan af leik
féll heimamönn-
um í Bilbao í
skaut en þeir fóru
illa að ráði sínu
og náðu ekki for-
ystu. Það gerði
Barcelona hins
vegar á 35. mínútu
þegar hinn ungi og
efnilegi Bojan
Krkic skoraði og
það reyndist eina
markið í bragð-
daufum fyrri
hálfleik.
Barcelona-liðið náði ekki held-
ur að sýna sitt rétta andlit í seinni
hálfleik og mátti í raun vera
þakklátt fyrir að vera yfir í leikn-
um. Það breyttist þó á 79. mínútu
þegar varamaðurinn Fernando
Llorente varð á undan Lilian
Thuram og potaði send-
ingu frá hægri kantin-
um í markið án þess
að Valdes næði
að koma
nokkrum
vörnum
við. Eiður
Smári fékk
þá loksins
tækifæri til
þess að láta ljós sitt
skína og var skipt inn á
fyrir markaskorarann
Bojan á 80. mínútu. Eiður
náði ekki að skora frekar en
aðrir leikmenn liðanna og 1-
1 jafntefli því niðurstaðan
og Barcelona tapaði þar með
dýrmætum stigum í titilbar-
áttunni við Real Madrid. - óþ
Barcelona og Athletic Bilbao gerðu 1-1 jafntefli:
Barcelona tapaði
dýrmætum stigum
TÖPUÐ STIG Barcelona
mátti illa við jafnteflinu í
harðri titilbaráttu.
NORDIC PHOTOS/GETTY