Tíminn - 28.06.1981, Side 7
Sunnudagur 28. júni 1981
7
TBE AOTDNN or
wnp ðáfBIADril
i iímbi rni iimynii%»o
Gabriel Gareia
Marquez:
The Autumn of the
Patriarch.
Picador 1978.
■ Það hefur i raun verið
furðu hljótt um þessa bók,
a.m.k. ef miðað er við fádæma
vinsældir sem bók Marquezar
„Hundraðára einsemd” naut.
Vissulega er „Haust lands-
föðurins” , nýlegasta bók
hans, ekki jafn mikið við al-
þýðuskap og sú fyrri. Sagan
gerist i dæmigerðu smáriki i
Suður-Ameriku þar sem her-
foringjar eru eiliflega að
brölta. Einn morguninn finnst
hálfrotið lik landsföðurins i
forsetahöllinni, það er eins og
oki sé létt af þjóðinni, hún er
ráðvillt. Hún hefur i raun
misst allt skynbragð á sögu
sina, finnst eins og patriarkinn
hafi ráðið yfir þvi alla tið með
ótrúlegri harðneskju og tak-
markalausu valdi. Hann var
goðsagnapersóna, allir hugðu
honum eilift lif. Timaskyn
þjóðarinnar er brenglað, sag-
an dregur dám af þessu, það
erfariðfram og afturitima og
miskunnarlaust flett ofan af
þjóðsögunni um landsföðurinn
og móður hans. Sérstakt ein-
kenni bókarinnar er að hver
kafli er i raun ein málsgrein.
Þvi er hún tyrfin aflestrar, en
fjarskalega áhrifarik og
myndauður. Var við öðru að
búast af Marquez?
VS.NAIPAULO
ABENDIN
THERIVER
\ *m»v*»I ot vho«M>ntf Aftrleu -
'HríUi&Munii Obttrtxtr
V.S. Naipaul:
A Bend in the River.
Penguin 1980
■ Naipaul þessi kom sterk-
lega til álita viö úthlutun bók-
menntaverðlauna Nóbels i'
fyrra og vóg þá Bugðan i ánni
einna þyngst a metunum.
Hannerfædduri Trinidad.af
indversku bergi brotinn, en
hlaut menntun sina á Eng-
landi og skrifar á tungu þar-
lendra. Bugöan... gerist i
ónefndu Afrikuriki sem áður
var undir stjórn Frakka,
stjórnmálaástandið þar er
ótryggt eins og i mörgum ný-
frjálsum rikjum. Salim, kaup-
maður af ströndinni, fer inn i
myrkviðið til að taka við
niðurniddri smáverslun i bæ
við bugðuna i ánni. Naipaul
skrifar af einstökum skilningi
um lif á mótum hins nýja og
gamla heims — hún ætti
reyndarað vera skyldulesning
fyrir alla sem láta sér málefni
þriðja heimsins einhverju
varða. Bókin er heldur hæg-
fara, en geysilega áhrifarik og
frumleg, skrifuð af sérstöku
innsæi og skilningi á mann-
legri náttúru.
Len Deighton:
XPD.
Granada 1981.
■ Getur það verið að Churc-
hill og Hitler hafi átt með sér
leynifund llta júni 1940? Vist
er harla fátt sem bendir til
þess arna. En Len Deighton
lætur það ekki hindra sig. For-
gjöf „XPD” er að slikur fund-
ur hafi átt sér stað, leyndar-
málsins hafi verið vandlega
gætt, hugsanlegum vitnum
hafi verið rutt úr vegi. En
fjörutiu árum siðar eru Rúss-
ar vitaskuld komnir i spilið —
breska leyniþjónustan gerir
allt til að þagga málið niður
aftur. Bókin hefur vakið
griðarlega athygli og selst
grimmt og kallar þó Deighton
ekki allt ömmu sina i þvi efni,
verandi höfundur alþýðlegrar
striðssagnfræði, sögulegra
skáldsagna, njósnabóka og
matreiðslubóka. „XPD” er
afar spennandi og sannfær-
andi aflestrar, plottið er flókið
og listilega samofið.
Hér er aksjón frá fyrstu
blaðsiðu til hinnar siðustu.
?OUR, AND
, '.HiaWlTEDByTMEtSlRCWaiRS
Doris Lessing:
The Marriages Be-
tween Zones Three,
Four, And Five.
Granada 1981.
® Doris Lessing er gamalvön
i faginu. Gaf út sina fyrstu bók
1950 og hefur vérið að siðan af
fádæma krafti. Helsti styrkur
hennar er hve gott hún á með
að endurnýja sig, leita uppi ný
form. Siðustu tvær bækur
hennar, og likasttil þær vin-
sælustu eru i seriunni
„Canopus in Argos:
Archives”, undir þvi sem hún
kallar sjálf „Space Fiction”
en það eru bókmenntir af
betra tæinu skrifaðar undir
hatti visindaskáldsögunnar.
„The Marriages...” er önnur
bókin i þessum flokki, sú
fyrsta hét „Shikasta”, og
lesandanum er lofað fram-
haldi, „The Sirian Experi-
ments”. Um hvað fjalla svo
bækur með svona stórbrotnum
titlum... um sambandið milli
karla og kvenna, ást og kynlif,
bliðu og losta, árásarhneigð og
afskiptaleysi — mannlegt
hlutskipti... i stjörnuljósi.
Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bóka-
verslun Máls og menningar.
BÆNDUR
RZ.SLÁTTUÞYRLURNAR
KOM NAR
2 STÆRÐIR Kr. 11.159 - kr.12.789
VINNSLUBREIDD
135og165sm
Margra ára reynsla tryggir gæðin.
Mestselda sláttuþyrlan í áraraðir.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
umallfbnri ^ SAMBANDSINS
um ailT lana Armúla3 Reykiavik S. 38900
(HALLARMÚLAMEGINI
Skrúftjakkar Kr. 140.-
D
D
D
D
D
D
Flestargerðir af
tmkum.
Heildsala
U smásala
D
D
D
I
Hjólatjakkar
1,5 tonn Kr. 1.950.
Bílavörubúbin Skeifunni 2
FJÖDRIN
82944
Púströraverkstæði
83466
t