Tíminn - 28.06.1981, Page 24

Tíminn - 28.06.1981, Page 24
24 ■ Blinda (rúin. ■ Bananasplit-stelpan. ■ Jaröarberjarstelpan. ■ Rauöa frúin. HVER ERT ÞÚ?” ral loksins væri Chris sjálf komin I ljós og nii skyldi hún lifa ham- ingjusömu lífi og hafa engar áhyggjur.Chris haföi svo sannar- lega áhyggjur, hún hélt aftur aö hún væri aö veröa vitlaus. Enn verr reyndist niigpen henni þeg- ar hún ákvaö aö skrifa sfna eigin bdk til aö segja sjálf frá sjúkdómi sfnum. Þá sannfæröi læknirinn hana enn einu sinni um aö bráö- nauösynlegt væri aö hún héldi nafni si'nu leyndu og svo sá hann um allt saman. Hann visaöi i samninginn sem til var og sagöi svo til um aö hann og Dr. Cleckley heföu umsjón meö hennar málum og þeir f undu handa henni rithönd til aö skrifa bókina. Síöan var bókin skrifuö samkvæmt forskrift læknanna fremur en hennar. Hún fékk ekki einu sinni aö ráöa nafn- inu. Bókin hennar — þarsem sagöi meöal annars aö Jane væri horfin þó allir sem máliö varöaöi vissu vel aö svo var alls ekki — bdkin var látin heita „Síöasta andlit Evu” en ekki „Strangers in my body” eöa „Gestir i likama mfnum” eins og hún vildi sjálf. HUn varö fyrir ógurlegum von- brigöum en fékk ekki aö gert. Og þegar kvikmyndin um „Evu og andlitin hennar þrjú” var frum- synd meö mikilli viöhöfn i Atlanta þá var Chris á ferö f borginni, aöþrengd og kvalin og óham- ingjusöm, meöan kaupmenn borgarinnar seldu ,,Evu”-vörur, þaö voru haldnir „Evu”-dans- leikir og óþekkt leikkona, Joanne Woodward, skaust uppá stjörnu- himininn f hlutverki hennar. Hún varö bitrari meö hverju árinu sem leiö. Blinda frúin var aö sönnu róleg, nærgætin og ljúf manneskjaen hUn var ekki mikill bógur: hUn gat ekki staöiö dstudd og stuöning fékk hún litinn. D«i reyndi einsog hann gat aö skilja en hann skildi ósköp litiö, og stundum missti hann algerlega þolinmæöina. Hann varö þreyttur og leiöur og fáskiptinn en vissi ekki aö þaö versta var eftir. Blinda frúin, Bjöllukonan, Jómfrúin, Skjald- bökustelpan, Spilastelpan Þetta leit vel út þegar Jane dó loksins eftir langt og hart dauöa- stríö. Blinda frúin fór ein meö stjórn um skeiö en brátt kom önn- ur og hún virtist lfka vænleg til árangurs. Þaö var Bjöllukonan, svo kölluö af þvi aö hUn haföi óendanlega gaman af allskyns bjöllum og klukkum og safnaöi þeim í gríö og erg. Auk þess var Bjöllukonan hæfileikarfk á mörg- um sviöum og listræn: hUn vann ljóöasamkeppnir, keramfkkeppn- ir og teiknisamkeppnir og hUn fékk áhuga á utanaökomandi hlutum einsog pólitik og skáta- hreyfingunni. Þaö var meöan Bjölhikonan réöi rfkjum sem Chris varö ófrísk i annaö sinn. Blinda frUin vaknaöi einn daginn og þreifaöi á maga sér, hann var útþembdur.Henni var sagt aö hún væri komin sjö mánuöi á leiö. Barniö fæddist áriö 1959, þaö var sonur sem fékk nafniö Bobby. Bjöllukonan hélt áfram aö ráöa ríkjum og Chris var ánægö og ör- ugg f hlutverki hennar en hún haföi ekki gert upp hug sinn — hún gat þaö ekki — svo áöur en varöi komu fleiri til sögunnar. Eftir fæöingu sonarins höföu þau sest aö í Virginiu, f fallegu hUsi þarsem Chris festistrax rætur og leiö vel, en ■ Don ákvaö aö henni forspuröri aö selja húsiö og flytj- ast til nálægs Uthverfis. Nýja hUs- iö var lítiö og þröngt og Chris þoldi þaö ekki. Ræturnar rifnuöu upp. HUn reyndi aö öölast sjálfs- traust meö þvf aö fara Utf bisness, byrjaöi meö saumaverslun og gekk bara vel, en flaut um leiö aö feigöardsi. Einu sinni vaknaöi hUn upp í rUmi sínu viö hliö Dons og þegar hUn sá hann þá æpti hUn: „Hver ert þU? Hvaö ertu aö gera hérna? ” Don reyndi aö segja henni aö hann væri maöurinn hennar en þaö tókst ekki. HUn stökk æpandi Ur rúminu og inn til dótturinnarTaffy sem nú var orö- inum þaö bil 12 ára gömul. Sam- band þeirra var mjög gott, Chris treysti á dóttur sina meira en sjálfa sig og leitaöi oft til hennar meö þaö sem hún gat ekki gert sjálf. HUn kom hljóöandi: „Þaö er karlmaöur i rUminu minu! ” Taffy skildi strax hvaö var aö og róaöi móöur sfna. Hún skfröi þessa nýju persónu JómfrUna af- þvf þó hUn myndi þaö sem komiö haföi fyrirhinar þá neitaöi hUn aö lfta á Don sem eiginmann sinn og haröneitaöi aö sofa hjá honum. Þær voru aftur orönar þrjár: Blinda frUin.Bjöllukonan og nU JómfrUin. Jómfrúin var reyndar ma-kileg aö þvi leyti aö hún leit svo á aö hUn væri hátt á sextugs- aldri eöa 25 árum eldri en hinar tvær voru. HUn var hæfileika- snauö aö öllu leyti og var köld og hörö og rifrildisgjörn. Hún haföi mjög viktorfanskar hugmyndir og vildi til dæmis alls ekki faröa sig né ganga i fötum sem hinar áttu. Þá daga sem þær þrjár skiptust á um aö koma út fór mestur ti'minn f aö skipta um föt, þvo sér eöa faröa og svo fram- vegis. Ruglingslegt líf! En svo dró til tíöinda. Þegar Chris fór á bílasýningu þar sem meöal ann- ars var efnt til vfsvitandi árekstra varö henni svo mikiö um aö hún fékk eitt versta höfuö- verkjakast sitt fram aö því. Þaö var Blinda frUin sem fór á bila- sýninguna en þegar leiö yfir hana birtist JómfrUin eitt andartak en hvarf svo og kom aldrei aftur. Þá kom alveg ný persóna fram á sjónarsviöiö en hún stóö stutt viö i þaö skiptiö, aöeins augnaþlik, og þá kom enn ein. Þarna komu tvær nýjar i' einu. Þaö haföi aldrei gerst áöur. Og hin fyrri var „miöill” en svo má kalla þá persónu hverrar þrenningar sem var f miöiö og hinar komu út i gegnum. Freknu-stelpan haföi veriö „miöill” Söng-stelpurnar og Stóreygöustelpuinar og Chris White haföi veriö „miöill” Jóm- fnlarinnar og Bjöllukonunnar, en nU voru tveir „miölar” til i einu. Þaö gekk ekki til lengdar og Blinda fnlin dó áöur en langt um leiö. Enn ein þrenning haföi tekiö viö. Bjöllukonan var enn um sinn til en nýi „miöillinn” hlaut i munni Taffys nafniö „Skjald- bökukonan” afþvf hún haföi feiki- lega gaman af skjaldbökum og safnaöi þeim. Hin nýja persónan var kölluö „Spilastelpan” afþvi hún safnaöi spilum af álfka krafti og „Skjaldbökukonan” safnaöi skjaldbökum. Þær voru mjög ólíkar og báöar ýktar og öfga- kenndar persónur. Skjaldböku- konan var meö mjög auöugt imyndunarafl og hUn liföi aö miklu leyti i sínum eigin hugar- heimi. Taffý kom stundum aö henni þarsem hún stóö viö ein- hvern vegginn i húsinu, strauk hann og kjassaöi og talaöi viö hann einsog væri hann elskhugi hennar. HUn haföi reyndar mik- inn áhuga á kynlifi og náöi mikilli leikni f sjálfsfróun en þar var hlutur sem hvorki Bjöllukon- an né Spilastelpan þoröu einu sinni aö hugsa um. Er hún haföi fengiö sína fullnægingu hvarf hún og skildi Spilastelpuna eftir, ófullnægöa. Spilastelpan var þjóf- ur, hún var stelsjúk og rændi öllu sem hún mögulega gat, sérstak- lega glitrandi hlutum. HUn var hinsvegar bæöi dugleg og skyldu- rækinen hjátrUarfullog þunglynd og fór í einu og öllu eftir stjörnu- spánni sinni. Þaö var Spilastelp- an sem fjarlægöi getnaöarvarnir sem Skjaldbökustelpan haföi komiö fyrir svo þær uröu allar þrjár óléttar. Nú gat hvorki Don né Skjaldbökukonan hugsaö sér aö eignast nýtt barn ofaná öll vandræöin og þvi gekkst hún und- ir fóstureyöingu sem var henni mikiö áfall. Skjaldbökukonan ákvaö aö fremja sjálfsmorö. HUn sturtaöi i’ sig Ur heilli flösku af terpentínu en dauöinn kom ekki. Bjöllukonan mætti á vettvang en varö svo hrædd aö hUn hvarf og sást aldrei meir.en Spilastelpan greip til sinna ráöa: blandaöi sterka saltupplausn sem hUn drakk til aö geta kastaö upp. Fljótlega eftir þetta fæddist enn ein manneskja í heiminn: Bananasplit-stelpan. Bananasplit- stelpan, Rauða frúin Bananasplit-stelpan var bara krakki en Chris kallaöi hana til þegar áhyggjur fulloröinsáranna voru alveg aö gera Utaf viö hana. HUn var áhyggjulaus krakki og haföi gaman af aö leika sér en var auövitaö gersamlega ábyrgöar- laus og gagnslaus einsog börnum er gjarnt. Svo kom ennþá ein: Rauöa frUin, viröuleg eldri matróna, en hUn kom ekki út i langan tfma en fylgdist bara meö úr fjarlægö hvernig hinar: Skjaldbökukonan, Spilastelpan og Bananasplitstelpan böröust um yfirráöin. Óhamingja Chris jókst sifellt og brestirnir i persónuleika hennar uröu meira áberandi, skipti ngarnar hraöari milli persóna. 1 einhverju örvænting- arkasti gleypti Skjaldbökukonan allar sinar birgöir af svefntöflum og beiö siöan eftir þvi aö hinar kæmu fram. Þær komu ekki. Þær voru horfnar. Allar nema Rauöa frúin sem enn lét ekki á sér kræla. Skjaldbökukonan var hræöilega einmana en svo kom ennþá einn persónuleiki til sögunnar: Jaröa- berjastelpan. Hún bókstaflega elskaöi jaröarber og geröi hvaö sem er til aö ná i þau og Rauöa frúin kom loks Ut til aö berjast gegn henni. Þær voru ótrUlega ólikar. Rauöa frúin var 58 ára og meö rauöan litá heilanum, pen og hlédræg kona, en Jaröaberja- stUlkan var ekki nema 26 ára, striöin og glettin og oft grimm viö vesalings Rauöu frUna sem skammaöist sin fyrir fituna sem haföi safnast saman fyrir á lik- amanum vegna þess aö hUn haföi lengi ekki haft neina stjórn á áti sinu, svo önnum kafin sem hUn var viö aö reyna aö halda sér i einulagi. Jaröarberjastelpan var auövitaö nákvæmlega eins i lag- inu en hUn leit svo á aö hún væri bæöi grönn og rennileg. Þaö varö Rauöu frúnni mikil kvöl aö fara i baö þvi þá talaöi Jaröarberja- stelpan viö hana án þess aö koma Ut. „Hæhæ, ég sé pikuna á mér,” hló Jaröarberjastelpan. Rauöa fnlin, pen sem hún var, reyndi aö hylja kynfæri sin meö þvotta- poka. „Iss, þaö þarf nú meira en einn þvottapoka til aö fela þennan stóra, feita skrokk,” sagöi Jarö- ■ Chris Costner Sizemore 1976, meö börn sfn Taffy og Bobby Sunnudagur 28. júni 1981 ■ Spor-frúin. arberjastelpan hæönislega. „Sjá þessi risastóru ógeöslegu hengi- brióst!” „Láttu mig i friöi,” baö Rauöa frúin, annar helmingur persónu- leikans. „Þú ert nú meira greppitrýniö, gamla min,” svaraöi hinn. Rauöa friíin, sem var svo hrein- lát, hætti alveg aö fara i baö! Þaövarkomiö frammá áttunda áratuginn. Chris var komin á fimmtugs aldur en hún haföi ekki veriö hún sjálf nema kannski rétt fyrstu árin. HUn var komin á ystu nöf og framundan var ekkert nemasjálfsmorö eöa þá geöveiki. Taffy dóttir hennar, sem nú var gift kona og átti barn, reyndi aö hjálpa henni eftir bestu getu, og hún var farin aö ganga til nýrra geölækna en enginn virtist geta gertneitt. Þá kom gamla vinkon- an hennar: Elen, henni til hjálp- ar. Elen haföi fariö til náms i sál- arfræöi og var nU aö skrifa doktorsritgerö. Þær höföu að mestu misst samband sin i milli undanfarin 10 ár eöa rUmlega þaö en nU vildi Elen fá að skrifa um sjUkdóma Chris. Þess ber aö geta aö einsog flestiraörirhélt Elen aö Thigpen og Clickley hefðu læknaö vinkonu hennar, hún haföi ekki hugmynd um þær kvalir sem hún haföi oröiö aö ganga I gegnum siöan Chris White, Chris Costner og Jane voru uppá sitt besta. En Chris greip þetta tækifæri fegins hendi og næstu árin fóru i aö und- irbUa verkefnið. A þeim árum fór Chris hriöversnandi: þaö fæddist ný persóna: Sporfrúin sem svo var kölluö afþvl hún var sifellt klifandi á aö hUn vildi ekki fara i sporhinna og gera þeirra mistök. En hUn var bara svo áhyggjufull aö hUn þoröi ekki aö gera neitt I málinu. Svp var hUn heldur ekki hin rétta Chris. Þaö var allt I vitleysu. Stundum kom þaö fyrir aö allir persónu- leikarnir voru viöstaddir i einu og rifust sin i' milli, þeir komu og fóru meö andartaks millibili og rifu hana á milli sin. Andréa de Cosná— og Chris Svo allt i einu, áriö 1975, þegar hUn var stödd á skrifstofu geö- læknis þá kom ný persóna. Og hún vissi aöþetta var hún sjálf. Loks- ins! HUn sjálf! HUn trUöi þessu varla til aö byrja meö en þetta var nU samt satt. Og þá tók viö ógnvekjandi timi þegar hún reyndi aö fóta sig eftir aö hafa verið innibyrgö I fjörtiu fimmtiu ár. Sérstaklega átti hUn erfitt meö aö sætta sig viö aö þaö heföi veriö hUn sjálf sem framkallaöi þessar persónur allar til aö þurfa ekki aö horfast i augu viö vanda- mál og erfiöleika. Hún skildi þaö ekki fyllilega fyrst. Og til þess aö þurfa ekki aö horfast i augu við sjálfa sig eftir öll þessi ár skapaöi hún I snatri nýja persónu og varö þegari staöhrædd umaö allt væri að byrja á nýjan leik. Þessi nýja persóna kallaöi sig Andréa de Cosná og var mállaus. HUn þurfti að skrifa allt þaö sem hUn vildi segjaniöur á miöa og hún var aö- eins 33ja ára gömul. Meö hörku- legu átaki tókst Chris aö losna viö þennan skrýtna fugl og eftir lang- ar og miklar samræður um veik- indi sin viö Elen og geölæknana sem höföu reynst henni best: Tibor Hamm og Tony Tsitos, þá var hún loksins alveg frjáls. HUn er ennþá frjáls og aörar persónur hafa ekki látiö sjá sig. — ij tók saman

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.