Tíminn - 28.06.1981, Qupperneq 26

Tíminn - 28.06.1981, Qupperneq 26
26 3JA GÍRA BARNA- OG FJÖLSKYLDUHJÓL Hagstætt verð Heildsala — Smásala Opið frá kl. 17.00 - 20.00 Póstsendum 1 G. ÞÓRÐARSON Sævangi 7 — P.O. Box 424 222 Hafnarfjörður Sjómannadagsráð óskar eí'tir tilboði i tvöfalt gler fyrir hjúkr- unarheimili Hrafnistu, Hafnarfirði. Út- boðslýsingar má vitja á skrifstofu Sjó- mannadagsráðs að Hrafnistu i Reykjavik alla virka daga næstu viku nema laugar- daga kl.14:00-16:00. Tilboð verða opnuð þann 20. júli kl,14:00 á skrifstofu ráðsins. Stjórnin. Til sölu Gaskútar og súrkútar Upplýsingar i sima 81711 frá kl: 9-5. ■ - Fátt hefur vakið meiri athygli i tónlistarheiminum en hin nýja bylgja sem nú gengur vfir Bretland og er á goðri leið með að leggja fleiri lönd að fót- um sér. Eins og svo oft áður er það einkum ein hljómsveit sem orðið hefur persónugervingur þessara breytinga eða nýjunga. 1 þessu tilfelli er það hljóm- sveitin „Spandau Ballet”. Upphafið. Hljómsveitin á rætur sinar að rekja til þess sem hér áður voru „neðanjarðar” klúbbar sem lögðu á sinum tima áherslu á alltaðra hluti en þá voru að ger- ast i tónlistarheiminum. A þessum stöðum var ekki spiluð sú tónlist sem rikjandi var á hverjum tima heldur lögðu plötusnúðarnir sig eftir að hafa á plötuspilaranum góða dans- músik sama undir hvaða tón- listarstefnu hún féll . Þessi leit þeirra að áhuga- verðri stilhreinni dansmúsik hefur leitt þá i gegnum margar tónlistarstefnur allt frá „electronic” til „new-funk”. Allar hafa þessar stefnur haft eitt sameiginlegt og það er góðan danstakt. En tónlistin ein gerði þessa klúbba ekki sér- kennilega. Gestirnir voru og eru eins áhugaverðir og tón- listin. í stuttu máli er hægt að segja að þeir sem sæki þessa kiúbba séu „þeir sem setji linuna” i tiskunni, þ.e. hár- greiðslufólk, fatahönnuðir, rit- höfundar. grafik listamenn, myndlistarmenn og að ó- gléymdum „þeim óbreyttu” sem voru bara venjulegir krakkar sem höfðu gaman af þvi að dansa og klæða sig sér- kennilega, en þó alltaf vel. Þarna blönduðust saman allar stefnur hvort sem það var i tón- list eða einhverri annarri list. Andrúmsloftið var mjög frjótt og það má segja að þessi jarð- vegur hafi beinlinis hrópað á eitthvað nýtt. Um upphafið segirGary Kemp, lagahöfundur og driffjöður hljómsveitar- innar,: „Við vorum allir tiðir gestir I þessum klúbbum. En það varengin hljómsveit til sem við gátum beint sjónum okkar að. Það var engin hljómsveit til sem hafði sömu ánægju og við af þvi að klæðast sérkennilega og leika um leiða góða dansmúsik. T.d. finnst mér bandarisk soul- tónlist mjög skemmtileg en þær hljómsveitir lita allar hræðilega út.” Hann heldur þvi fram að það hafi verið þetta klúbbum- hverfi sem kom hljómsveitinni „Spandau Ballet” af stað en ekki hljómsveitin sem bjó til þessa tisku. Þeirra fyrstu tónleikar voru haldnir i æfingastúdiói i nóvember 1979. Þar voru þeir aðeins að kynna hljómsveitina fyrir vinum og kunningjum, hverra skoðanir þeir virtu mik- ils. Viðbrögð áhorfenda voru mjög jákvæð og þeir ákváðu að keyra á fullu i' þetta. 1 desember það ár urðu þeir fyrsta og eina hljómsveitin tilað spila i tiu vin- sælustu klúbbum unga fólksins i london. Einn af þeim var „The Blitz” Eftir þeim klúbbi er heiti þessarar bylgju komiö „The Blitz Kids”, einnig hafa áhang- endur hennar verið kallaðir „Hinir ný-rómantisku” eða fyrirbærið verið nefnt „Tisku- bylgjan”. Eftir þessa fyrstu hljómleika Spandau Ballet varð ljóst að ekki þurfti að auglýsa hljómleikana þvi það fréttist alltaf i' gegnum klúbbana hvar hljómsveitin myndi koma fram næst. Þvi er það að enn þann dag I dag hefur hljómsveitin aldrei þurft að auglýsa hljóm-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.