Tíminn - 28.06.1981, Qupperneq 31

Tíminn - 28.06.1981, Qupperneq 31
■ Crabb hjálpað úr þungum froskmannsbúningnum. 31 Reiknistofa bankanna óskar að ráða fólk til starfa i vinnsludeild reiknistofunnar. Störf þessi eru unnin á þriskiptum vökt- um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi SÍB og bankanna. Æskilegt er, að umsækjendur hafi versl- unarpróf, stúdentspróf eða sambærilega menntun og séu á aldrinum 18-35 ára. Skriflegar umsóknir sendist Reiknistofu Bankanna, Digranesvegi 5, Kópavogi, fyrir 4. júli n.k. á eyðublöðum, sem þar fást. Félagsráðgjafar - Sálfræðingar - Uppeldisfræðingar Starfsmenn vantar að ráðgjafar- og sál- fræðiþjónustu Norðurlandsumdæmis vestra til að annast um málefni þroska- heftra og öryrkja fyrir svæðisstjórn um- dæmisins. Aðsetur þjónustunnar verður i Kvenna- skólanum á Blönduósi. Umsóknarfrestur er til 15. júli 1981. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Kjartansson, fræðslustjóri Blönduósi, simi 95-4369 eða 95-4437. Frá Strætisvögnum Reykjavíkur Óskum að ráða 1 starfsmann til kvöld- og næturþjónustu i þvottastöð SVR á Kirkju- sandi. Meirapróf (D liður) skilyrði. Laun samkv. 7. fl. borgarstarfsmanna. Upplýsingar gefur Jan Jansen yfirverk- stjóri i sima 82533 mánudaginn 29. júni 1981 kl. 13—14 eða á staðnum. orðsendingu Sovétstjórnarinnar: „Afbreskum blööum frá 30. april siðast liðnum má ráða að bresk flotamálayfirvöld hafi staðið fyr- ir einhverjum neðansjávarrann- sóknum á svæði þvi sem sovésku skipin lágu þá við akkeri á. Enn- fremur hefur komið i ljós að þess- ar rannsóknir hafa kostað bresk- an froskmann lifið. lorðsendingu sinni meðgengur breska stjórnin að þessi froskmaður hafi verið áðurnefndur Crabb og að hann hafi verið þarna i leyfisleysi.” Látin þjóðhetja Það virtist nú nokkuð augljóst að Crabb væri látinn. Hann var þjóðhetja i'Bretlandi, fæddur árið 1910, og öölaðist fyrst frægð i heimsstyrjöldinni siöari er hon- um tókst að fjarlægja sprengjur af skrokkum herskipa i höfnunum i Alexandriu og Gibraltar en sprengjum þessum höföu italskir froskmenn komiö fyrir. , Er Crabb var einhverju sinni aö störfum neöansjávar reif hann sig illa á gaddavir sem strengdur hafði verið undir botn á herskipi til aö verja það og bar hann alla tið siðan stórt og ljótt ör, eins og Y i laginu, vinstra megin á vinstra hné. Arið 1956 haföi hann hætt störfum hjá breska flotanum og eftir að hafa gert tilraun til að finna spænskan galleon sem sokkið hafði á Tobermoryflóa settist hann i helgan stein og tók að rita æviminningar sinar. Tregða breskra stjórnvalda til að rasða Crabb-málið varð siður en svo til að draga úr áhuganum á þvi enda þótti mörgum sem fjöl- mörgum spurningum væri enn ó- svarað. Fyrir hvern hafði hann verið að vinna? Hvers vegna var hans aldrei leitaö? Lá hann einhvers staðar á hafsbotni, flæktur i einhverju rusli? Hafði köfunarbúnaðurinn bilað eða hafði hann orðið fyrir raflosti frá einhverjum varnarbúnaði gegn froskmönnum á skrokki sovéska beitiskipsins? Eða hafði hann verið myrtur neðansjávar af sovéskum froskmanni? Jafnvel tekinn til fanga? Sovésku skipin höfðu siglt frá Bretlandi til Leningrad — gat hann verið f angi þar? Engin svör Við þessum og álika spurn- ingum fengust engin áreiðanleg svör. Menn héldu áfram að velta vöngum en varir ráðamanna voru eins og innsiglaðar þegar talið barst aö þessu máli. Sá orðrómur fékk byr undir báða vængi að Crabb hefði veriö að vinna fyrir Bandarikjamenn. Þeir hafi vitað að sovésku skipin voru væntanleg til Portsmouth og hafi brugðið á það ráð að fá Crabb til aö njósna fyrirsig. Það að til hans haföi sést og hvarf hans siöan hafi sett bresk stjórnvöld i slæman bobba. Gestrisni þeirra við vinaþjóð hafi verið misnotuð og fyrir vikið hafi sambúð þeirra viö Sovétmenn versnað að mun. Nú liður heilt ár svo ekkert spyrsttil Crabb. Hinn 9. júni árið 1957 var John nokkur Randall staddur á báti sinum úti af Chich- esterhöfn, sjösjómilum austur af Portsmouth, og sá þá einhvern einkennilegan hlut marandi i fjöruborðinu. Það reyndist vera mannslik I froskmannsbúningi. Sjópróf voru haldin i Chich- esterhinn 26. júni og þar kvað lik- skoðarinn, Bridgman nokkur, upp úr um að hann væri sannfærður um að líkið væri af Crabb. Hann byggði sannfæringu sina, sagði hann, á örinu á hnénu, háralitn- um og lögun og stærð fótanna. Ennfremur var froskbúningurinn sams konar og sá er Crabb keypti i október árið 1955 hjá fyrirtætó i Surrey. Likskoðarinn kvaðst hafafengiðupplýsingar hjá ekkju Crabb um hæð hans, fótastærð og ör á líkama hans. Likið var þó I þvi ástandi að ekki var hægt að bera ótviræð kennsl á það. Fram kom fyrir réttinum að nánast ekkert væri eftir af þvi fyrir ofan mitti. Læknirinn Ronald King áætlaði að likið hefði verið i sjó minnst sex mánuði og allt að fjórtán mánuði en nú voru einmitt liönir fjórtán mánuðir frá hvarfi Crabb. Nýjar vangaveltur Vegna ástands liksins var eng- in leið aö segja til um hvað valdið heföi dauöa mannsins. Stóru spurningunni var sem sagt enn þá ósvarað: Hvernigdó Crabb? Það stóö þó ekki á svörunum hjá kjaftasögumeisturunum. Crabb hafði verið fluttur til Moskvu, myrtur og lik hans siðan flutt i kafbáti upp aö Englandsströnd- um og varpaöþari sjóinn. Þaöer vist óþarft að taka þaö fram að þessi kenning þótti ærið mörgum fullnægjandi þegar kalda striðið stóð sem hæst. Sé sú regla hins vegar lögð til grundvallar að rétt sé að leita að náttúrulegum skýringum áður en langsóttar, flóknar og næstum fáránlegar skýringar eru teknar tilgreina væri hægt að velta þess- ari fyrir sér: • Þegar Crabb lagði i siðasta köfunarleiðangur sinn var hann oröinn Qörutiu og sex ára gamall sem er hár aldur hjá kafara. Hann notaði súrefnisköfunarbún- að sem er talinn varasamur á meira en lOmetra dýpi. Til þess að kafa undir rússneska beiti- skipið án þess að láta tii sin sjást hefði Crabb þurft að kafa á meira dýpi en 10 metrum. Hann hefði getað látist af súrefniseitrun. Hann hafði allt lif sitt verið að taka áhættu. Kannski hamingjan hafi nú einu sinni brugðist honum. Að þvi' hlaut að koma. En hver veit, kannski við fáum einhvern ti'ma að vita hvaö raun- verulega kom fyrir Commander Crabb. Þýtt og endursagt/KEJ Frá Strætisvögnum Reykjavíkur Óskum að ráða starfsmann til starfa á hjólbarðaverkstæði SVR á Kirkjusandi. Upplýsingar gefur Jan Jansen yfirverk- stjóri i sima 82533 mánudaginn 29. júni kl. 13—14 eða á staðnum. Sauðárkrókskaupstaður Fóstra óskast Fóstra óskast að leikskólanum á Sauðár- króki frá og með 1. ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 10. júli. Nánari upplýsingar um starfið gefur forstöðu- kona leikskólans i sima 95-5496 og sé um- sóknum stilað tii leikskólans á Sauðár- króki, 550 Sauðárkrókur. Tamningar Tökum hesta í tamningu og þjálfun að Langholti, Hraungerðishreppi. Nokkur pláss laus. Gunnar Ágústsson, simi 99-2171 og Kristján Kristjánsson simi 99-2139.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.