Fréttablaðið - 04.02.2008, Síða 14
14 4. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
L
agareglur þurfa stoð í siðrænum gildum. Án slíkra tengsla
milli settra lagareglna og almennt viðurkenndra siðferði-
legra viðhorfa er hætt við að lagareglurnar þyki einfaldlega
óréttlátar eða reynist illframkvæmanlegar.
Að sama skapi getur verið varhugavert að brjóta niður
siðræn gildi sem mótast hafa á grundvelli reynslu og eru þannig for-
senda eðlilegra og frjálsra samskipta manna. Siðgæðisvitundin virkar
í samfélaginu með svipuðum hætti og ónæmiskerfið í líkamanum. Hún
er í ýmsu tilliti vörn gegn margvíslegum félagslegum meinsemdum.
Þetta eru kunn sannindi. En stundum er ástæða til að rifja þau upp.
Það er gert hér í tilefni af áhugaverðu frumvarpi sem fjórir þing-
menn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hafa flutt. Það er
einfalt í sniðum og felur í sér að fella niður undanþáguheimild til
nektarsýninga í atvinnuskyni á veitingastöðum. Í röksemdafærslu
með frumvarpinu segir að því sé ætlað að efla almenna siðgæðis-
vitund og meðvitund um siðræn gildi í samfélaginu.
Fyrir um það bil fjórum áratugum gerði ungt fólk uppreisn gegn
hefðum og ýmsum ríkjandi gildum samfélagsins. Ýmsir reyndu að
spyrna á móti. En allt kom fyrir ekki. Fjölmörg vígi kristilegs siðgæð-
is og borgaralegra gilda eins og þau voru gjarnan kölluð voru ýmist
hefluð til eða spænd upp með öllu. Margt sem af þessu umróti spratt
fól í sér nýja hugsun og framfarir. En sumt slævði gilda siðgæðis-
vitund og veikti um leið ónæmiskerfið í samfélagi þjóðanna.
Kynlífsbyltingin var eitt þeirra fyrirbrigða sem telja má til ávaxta
þessara breytinga. Sumir ávextir hennar voru sætir, aðrir beiskir.
Hún opnaði smám saman nýjar gáttir fyrir þá sem sáu tækifæri til
margvíslegrar afbrotastarfsemi á því sviði. Slík starfsemi var síður
en svo óþekkt en færðist í aukana. Þjóðir heims standa nú andspænis
þeirri staðreynd að skipulagt vændi og mansal eru alþjóðlegar mein-
semdir sem ógna siðmenningu þeirra. Og Ísland er ekki eyland í þessu
tilliti fremur en öðru.
Vandi stjórnmálamanna er í því fólginn að afbrotastarfsemi á þessu
sviði er á snertifleti við heiðarlega atvinnustarfsemi. Einmitt við
slíkar aðstæður verða óskýrar og veikar siðgæðiskröfur skálkaskjól
afbrotamanna. Uppreisnin gegn borgaralegum gildum á sínum tíma
leiddi einmitt til þess að færri siðferðisstoðir stóðu eftir sem áður
þóttu eðlileg takmörkun á athafnafrelsi.
Margir þeirra sem með skynsamlegum rökum standa vörð um
athafnafrelsið í dag eiga þar af leiðandi erfitt með að skilja rökin að
baki frumvarpi eins og því sem hér er gert að umtalsefni. Markað-
urinn ræður yfir bestu tiltæku tækjum til að mæla hagkvæmni og
arðsemi í viðskiptum. Allar athafnir manna lúta á hinn bóginn ein-
hverjum siðrænum viðmiðunum. En í því efni gilda ekki mælikvarðar
heldur mat. Fyrir þá sök er skýr siðgæðisvitund nauðsynleg í hverju
mannlegu samfélagi.
Skírskotun til siðferðilegra viðmiða og siðgæðisvitundar eru for-
sendur þeirrar lagareglu sem þingmennirnir vilja gera undanþágu-
lausa. Vel má vera að sú skírskotun sé til marks um að fjörutíu ára
gömul uppreisn sé að leita jafnvægis á ný.
Hér verður ekki lagður dómur á hversu virk tillagan í frumvarpinu
er. En hitt er ljóst að henni er ætlað að styrkja stöðu þeirra sem eru
fórnarlömb óþolandi ofbeldis. Frumvarpið er reist á gildum siðferði-
legum hugmyndum og verðskuldar því málefnalega íhugun.
Bann við atvinnunektardansi:
Lög og
siðræn gildi
ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR
UMRÆÐA
Borgarmál
Nokkrir þingmenn og einn ráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa lýst
ánægju með skörungsskap nýja meiri-
hlutans í Reykjavíkurborg hvað varðar
kaupin á húsunum við Laugaveg 4 og 6. Í
sömu andrá hafa þeir lýst vanþóknun
sinni á þeirri svokölluðu heimtufrekju
fráfarandi meirihluta að hafa ætlað ríkis-
sjóði að „borga brúsann“. Margoft hefur
það verið áréttað að málefni húsanna að Laugavegi
4 og 6 voru í ágætum farvegi. Húsafriðunarnefnd
mælti með friðun þeirra og það stóð upp á fagráð-
herra húsafriðunar, menntamálaráðherra, að stað-
festa þá friðun. Ef málið hefði farið sína leið hefði
skaðabótaskyldan gagnvart eigendunum líklegast
fallið á ríkið og það sem mikilvægara er – hún hefði
fylgt markaðsverði. Um 280 milljónir hefðu þar
með sparast. Eigandi húsanna hefði hvorki tapað né
hagnast og ekki hefði verið sett vafasamt fordæmi
sem hleypir markaðsverði á gömlum húsum upp í
hæstu hæðir. Húsafriðun er enginn greiði gerður
með svo flausturslegum vinnubrögðum.
Áðurnefnd viðhorf þingmannanna og
ráðherrans til þessara ævintýralegu kaupa
lýsa talsverðri óbilgirni. Við sem störfum að
sveitarstjórnarmálum könnumst vel við þá
tilfinningu að „fá reikninginn sendan“. Við
erum sífellt að „borga brúsann“ fyrir ríkið. Á
síðasta ári var framlag til einkarekinna skóla
lögbundið. Reikningur Reykjavíkurborgar
hækkar um 90 milljónir fyrir vikið. Ríkið
hefur um árabil þverskallast við að borga
brúsann þegar kemur að framhaldsnámi í
tónlist, sem ríkinu ber að gera lögum
samkvæmt. Það gera 170 milljónir árlega hjá
Reykjavíkurborg. Ný lög um leik- og grunnskóla
gera ráð fyrir að kennarar hafi meistaragráðu við
upphaf starfsævinnar. Sem skólapólitíkus fagna ég
aukinni viðurkenningu á mikilvægi kennarastarfs-
ins en hugsa óneitanlega til kostnaðaraukans sem
fellur á sveitarfélögin.
Í þessu umhverfi, þar sem svo ótal úrlausnarefni
eru framundan fyrir ríkið og sveitarfélögin að
leysa í sameiningu, er ekki sigurstranglegt að fara
vígaleiðina. Hagsmunir íbúanna eru þeir sömu
hvort sem ábyrgðin er heima í héraði – eða á hendi
ríkisins.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Að borga brúsann
ODDNÝ
STURLUDÓTTIR
Enn hefur Morgunblaðið ekki beðið Dag B. Eggertsson
afsökunar á leiðaraskrifum sínum
frá laugardeginum 26. janúar. Þar
stóð að það væri honum – læknin-
um – til skammar að Ólafur F.
Magnússon hefði lagt fram
læknisvottorð þegar hann sneri
aftur til starfa í borgarstjórn.
Samt er blaðið hér uppvíst að því
að veitast að Degi fyrir rangar
sakir.
Og með því að taka sérstaklega
fram að þetta hafi verið honum
til skammar sem lækni gefur
blaðið til kynna að Dagur hafi
sem læknir komið fram við Ólaf
F. Magnússon á óviðurkvæmi-
legan hátt. Það er nokkuð þung
ásökun.
Stóra vottorðsmálið
Skorturinn á afsökunarbeiðni eða
að minnsta kosti leiðréttingu á
þessum skrifum hlýtur að vera
til marks um að blaðinu finnist
vegna pólitískra hagsmuna í lagi
að fara með fleipur um nafn-
greint fólk, veitast að heiðri þess
fyrir rangar sakir. Þá vitum við
það. En þá getur blaðið ekki
jafnframt ætlast til að borin sé
virðing fyrir því. Og alls ekki
haldið áfram að birta Reykjavík-
urbréf í þeim yfirlætislega ex-
Cathedra-stíl sem við höfum átt
að venjast. Meira að segja DV á
sínu trylltasta skeiði birti
einhvers konar leiðréttingar á
ranghermi.
Þetta er annars skrýtið mál,
stóra vottorðsmálið. Um hríð
virtist þetta mál hið eina sem
Sjálfstæðismenn höfðu til marks
um hinar bráðnauðsynlegu
ofsóknir á hendur Ólafi F.
Magnússyni í tíð meirihlutans
sem hann sneri baki við. Næstum
því daglega og með síauknum
þunga gátum við lesið um þá
sáru niðurlægingu sem hann
hefði verið beittur – þau svipu-
göng sem þessi stolti maður
hefði mátt ganga þegar hann –
sjálfur Hann – var af ísköldu
miskunnarleysi bókstaflega
krafinn um læknisvottorð, þar
með ekki tekinn trúanlegur –
ekki treyst ...
Um síðir kom fram hinn
hversdaglegi sannleikur um
málið en Ólafur hirti sjálfur
aldrei um að leiðrétta þessi
fáránlegu skrif – kannski hefur
hann ekki getað fengið af sér að
sleppa hendinni af svo góðu
píslarvætti – kannski fannst
honum að þetta hefði alveg getað
verið svona – og kannski er hann
ekki sérlega gefinn fyrir að
upplýsa mál fyrr en á hann er
gengið.
Jesús og Ólafur Thors og...
Sú var tíð að Sjálfstæðismönnum
þótti staða borgarstjórans í
Reykjavík vera helsta tignar-
staða heimsins á eftir Jesú Kristi
og Ólafi Thors. Þegar vinstri
menn komust til valda á áttunda
áratugnum í kjölfar stórsigurs
Guðrúnar Helgadóttur og Þórs
Vigfússonar í Alþýðubandalaginu
treystu þeir sér ekki til að velja
neinn úr sínum röðum í slíkan
hefðarsess heldur fengu verk-
fræðing utan úr bæ Egil Skúla
Ingibergsson til að gegna
starfinu eins og hverju öðru
stjórnunarstarfi; reyndu þannig
að svipta embættið guðlegri áru
sinni. Það tókst ekki betur en svo
að fyrir vikið bjuggu þeir í
haginn fyrir nýjan leiðtoga
Sjálfstæðismanna, Davíð
Oddsson, sem lét áru embættis-
ins leika um sig svo að um
munaði. Vinstri menn gerðu ekki
sömu mistök næst þegar þeir
komust til valda, og Ingibjörg
Sólrún náði að slíta hin nánast
órjúfanlegu tengsl Flokks og
borgarstjóraembættisins.
Síðan hafa ýmsir gegnt
starfinu og almennt byrjað vel
en engum auðnast að gegna
embættinu nógu lengi til að festa
sig í sessi í vitund almennings –
nema ef til vill Degi B. Eggerts-
syni, á sínum hundrað dögum.
Það fundu Sjálfstæðismenn og
guldu það dýru verði að ná að
bola honum úr embætti: létu
sjálft djásnið af hendi.
Í þennan stól hinna miklu
leiðtoga – Bjarna Ben og
Gunnars Thor og sjálfs Davíðs –
í sjálfan gullstólinn hafa nú
Sjálfstæðismenn leitt liðhlaup-
ann gamla, Ólaf F. Magnússon.
Einhver kynni að segja að þar
með væri flokkurinn loksins
búinn að finna sinn leiðtoga eftir
að hafa verið svo lengi höfuðlaus
her. Öðrum verður hugsað til
páfadóms og niðurlægingar-
skeiðs þess embættis á 14. öld
þegar sjálft embættið var af
kaldhæðnum mönnum flutt frá
Róm og til Avignon í Frakklandi.
Kannski að hinir útsmognu
hugsuðir Sjálfstæðismanna
standi um síðir fyrir því að
embætti borgarstjórans í
Reykjavík verði flutt til Akur-
eyrar ...
En Morgunblaðið hefur sem sé
enn ekki séð sóma sinn í að biðja
Dag B. Eggertsson afsökunar á
því að birta meiðandi rangfærsl-
ur um hann í forystugrein. Það
skiptir hann eflaust litlu máli en
kann að varða sjálfsmynd
blaðsins og margra ágætra blaða-
manna sem þar starfa. Raunar
bendir flest til þess að herferðin
á hendur Degi hafi enn styrkt
hann í sessi sem leiðtoga í
Reykjavík.
Hvað segir Davíð um það?
Að sjá ekki sóma sinn
GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON
Í DAG | Borgarpólitíkin
Að tala um sjálfan sig
Athygli vakti í síðustu viku þegar
Ingvi Hrafn Jónsson bauð þekktum
athafnakonum í sjónvarpsumræður
á ÍNN, vitnaði í óþekkta og ónafn-
greinda karlmenn og tönnlaðist á
því fyrir þeirra hönd af hverju konur
væru að „troða sér“ í stjórn fyrirtækja.
Þegar honum var bent á að enginn
væri að troða sér og fyrirtækin myndu
bara græða á því að fá svona
klárar konur inn virtist hann
ekkert heyra. En vegna þess
hve eyðilagður Ingvi Hrafn
var virtist ljóst að hann væri
ekki málpípa fyrir þessa
ónafngreindu karlmenn
heldur væru þeir bara
ímyndaðir og hann
væri í raun að tala
um sjálfan sig.
Eftirlitsmenn úti á lífinu
Reykingabannið og viðbrögð veitinga-
manna hafa haft ýmsar afleiðingar
og sumar meira að segja nokkuð
skemmtilegar. Til dæmis gengu
starfsmenn Vinnueftirlitsins og Heil-
brigðiseftirlitsins á milli veitingastaða
um helgina og gerðu athugasemdir
þar sem reykingar voru leyfðar. Var
ekki orðið tímabært að eftirlitsmenn
hresstu svolítið upp á tilveruna og
brygðu sér
út á
lífið?
Reykjavík í rugli
Húsafriðunarmál í Reykjavík
hafa verið mikið til umræðu að
undanförnu. Ólöf Nordal þingmaður
Sjálfstæðisflokksins kom með nýjasta
innleggið og sagði í Silfri Egils í gær
að leggja ætti Árbæjarsafnið niður og
skila húsunum til baka til Reykjavíkur.
Þetta er það sem Reykvíkingar þurfa,
aðeins meira hringl og ruglandahátt.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
skipulagshagfræðingur sagði á fundi á
Ísafirði fyrir skömmu að höfuð staður
Vestfjarða væri bær tækifæranna.
Sagði hann það sérstöðu Ísafjarðar
að þar væru mörg gömul hús sem
standa þétt öfugt við Reykjavík þar
sem þau væru á tvist og bast. Það
virðist allt vera verst í Reykjavík þessa
dagana.
ghs@frettabladid.is/jse@frettabladid.is