Fréttablaðið - 04.02.2008, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 04.02.2008, Blaðsíða 54
30 4. febrúar 2008 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. viðlag 6. bardagi 8. að 9. gagn 11. hef leyfi 12. morðs 14. gapa 16. í röð 17. stígandi 18. ennþá 20. grískur bókstafur 21. velta. LÓÐRÉTT 1. spotti 3. tveir eins 4. gufuskip 5. hamfletta 7. torskilinn 10. blekking 13. samstæða 15. heimsálfu 16. húðpoki 19. núna. LAUSN LÁRÉTT: 2. stef, 6. at, 8. til, 9. nyt, 11. má, 12. dráps, 14. flaka, 16. hi, 17. ris, 18. enn, 20. pí, 21. snúa. LÓÐRÉTT: 1. band, 3. tt, 4. eimskip, 5. flá, 7. tyrfinn, 10. tál, 13. par, 15. asíu, 16. hes, 19. nú. „Ég er með tvo „greatest hits“ diska í gangi núna, með Bob Dylan og Bachman Turner Over- drive. Það besta við köfunina er að maður er alveg út af fyrir sig og heyrir bara sinn eigin andardrátt. Síðasta lagið sem ég heyri áður en ég fer í kaf rúllar þó alltaf með mér í kafinu.“ Tómas J. Knútsson kafari. „Maður verður bara að lifa með þessum hræðilega glæp,“ segir hinn þrítugi leikari Höskuldur Sæmundsson. Í gærkvöldi var upplýst að persóna hans í Pressu, fjármálastjórinn Davíð Ólafsson, hefði drepið Grétar og væri í raun aðalmaðurinn á bak við allt havaríið hjá verktakafyrirtækinu VerkMati. Höskuldur segir að þetta hálfa ár sem liðið er síðan tökum á sjónvarpsþættinum lauk hafi verið erfitt. Enda þurfti hann að þegja yfir leyndarmálinu á meðan fjölskylda hans rýndi í þættina og reyndi að komast til botns í morðgátunni. „Reyndar komu bróðursynir mínir með þessa kenningu strax eftir þriðja þátt og fóru að kalla frænda sinn öllum illum nöfnum,“ segir Höskuldur sem vinnur þessa dag- ana hjá Landssambandi æsku- lýðsfélaga, eins kaldhæðnislega og það kann að hljóma. Áhorfendur eiga væntanlega erfitt með að skilja hvernig þessi annars viðkunnanlegi náungi getur verið svona miskunnar- laus. Hann reynir meira að segja að drepa sína gömlu skólasystur og fleira í þeim dúr. „Verk Davíðs byggjast á einhverri innri reiði og græðgi. Og svo sýður náttúru- lega upp úr þegar hann kemst að því að Lára og samstarfsmaður hans Halldór eru farin að stinga saman nefjum enda hafði Davíð gert hosur sínar grænar fyrir henni,“ segir leikarinn. Höskuldur skilur vel þá eftir- væntingu sem virðist ríkja meðal áhorfenda og minnist þess þegar hann mætti í samlestur með aðal- leikkonunni Söru Dögg Ásgeirs- dóttur og leikstjóranum Óskari Jónassyni. Hann hafði fengið handritið í hendurnar aðeins tveimur mínútum áður og eftir fimmta þátt bað Óskar hann um að fara heim og lesa allt yfir. „Ég var á leiðinni til útlanda og las í flugvélinni og í lest á leið um Þýskaland. Sem betur fer tók það mig smá tíma að prjóna mig í gegnum þetta því þegar þetta kom allt í ljós stóð ég upp, mitt á meðal þýskra, og sagði að ég væri maðurinn. Ef þetta hefði gerst í flugvélinni hefðu allir farþegarn- ir um borð í flugvél Icelandair vitað hver væri sá seki.“ Höskuldur lærði sín leiklistar- fræði í Ameríku og kom heim árið 2004 eftir fimm ára dvöl. Spurður um einkahagi sína segir Höskuldur að hann búi einn. „Ég hafði nú ekki leitt hugann að því að þetta hlutverk kynni að verða einhver þrándur í götu í maka- leitinni,“ svarar Höskuldur þegar hann er inntur eftir því hvort hlutverk Davíðs setji ekki strik í reikninginn. „Þetta var kannski ófyrirséð vandamál sem ég hafði ekki kveikt á en er það ekki ann- ars þannig að konur vilja menn sem lifa á brúninni?“ freyrgigja@frettabladid.is HÖSKULDUR SÆMUNDSSON: ÞAGÐI YFIR LEYNDARMÁLINU Í HÁLFT ÁR Morðingi Pressu á lausu MORÐINGINN Höskuldur Sæmundsson segist eiga lítið sem ekkert sameiginlegt með Davíð Ólafssyni, morðingjanum í Pressu. Lokaþátturinn var sýndur á Stöð 2 í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN „Sigur er alltaf sætur,“ segir Ásgeir Friðgeirs- son, talsmaður fjárfestingarfélagsins Novator og varaformaður í stjórn enska knattspyrnu- félagsins West Ham. En liðið lagði stórlið Liverpool á heimavelli sínum á miðvikudags- kvöld með marki á síðustu sekúndu leiksins úr vítaspyrnu. Ásgeir var að sjálfsögðu mættur á Upton Park ásamt eiganda liðsins, Björgólfi Guðmundssyni, og sagði stemninguna hafa verið ótrúlega. West Ham hefur gengið vel með stóru liðin það sem af er liðið vetri og gerði sér meðal annars lítið fyrir og vann Manchester United fyrr á tímabilinu. Og er liðið nú um miðja deild, í allt annarri stöðu en fyrir ári síðan þegar það barðist fyrir lífi sínu. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum varð mikil uppstokkun í stjórn knattspyrnufélags- ins West Ham nýverið þegar Björgólfur Guðmundsson, eigandi liðsins, lét Eggert Magnússon fara. Nánast ný stjórn var skipuð og settist Björgólfur meðal annars sjálfur í stjórnarformannssætið. Meðal annarra Íslendinga sem eiga sæti í stjórn liðsins eru þeir Þór Kristjánsson og Guðmundur Odds- son. Ásgeir sjálfur hefur hins vegar lítið viljað tjá sig við fjölmiðla um þessa stjórnar- setu sína hjá Lundúnarliðinu en hann var heldur glaður í bragði þegar Fréttablaðið náði tali af honum fyrir helgi. Ásgeir viðurkennir reyndar að hjarta hans hafi ekki alltaf slegið með West Ham. Því áður en að stjórnarsetunni kom studdi hann nefnilega rauða herinn frá Bítlaborginni. Spurður hvort að sigurinn hefði því ekki verið súrsætur í ljósi þess að hvorki hefur gengið né rekið hjá þessu sigursælasta liði Bretlands- eyja að undanförnu sagði Ásgeir að sigur væri bara alltaf sætur. - fgg Ásgeir Friðgeirs er gamall Poolari „Við fengum náttúrulega boðs- miða, en þeir komu kannski helst til of seint þannig að við náðum ekki að gera viðeigandi ráðstafan- ir,“ segir Svanhildur Jónsdóttir, bóndi í Krákuvör í Flatey. Eyjan á Breiðafirði er á allra vörum um þessar mundir sökum mikillar aðsóknar á kvikmyndina Brúð- gumann sem gerist að mestu leyti í Flatey. Svanhildur segist samt ætla að láta verða af því um miðj- an febrúar að sjá herlegheitin. „Ætli við förum ekki og sjáum Ívanoff fyrst í Þjóðleikhúsinu og svo Brúðgumann, það er örugg- lega langskemmtilegast að gera þetta svona í einum rykk.“ Þótt hús Svanhildar komi ekkert við sögu í myndinni leikur gamli traktorinn hennar stórt hlutverk en persóna Þrastar Leó Gunnars- sonar þeysist um eyjuna á honum. „Þeim fannst ökutækið eiginlega passa eins og flís við rass við hann Þröst,“ segir Svanhildur en trylli- tækið á sér mikla sögu og hefur þjónað bænum frá nánast örófi alda. Hafsteinn Guðmundsson á bænum Flatey fékk hins vegar þann heiður að hýsa tvær af stjörnum myndarinnar, þau Ólaf Darra og Ólafíu Hrönn, á meðan á tökum stóð. Og hann segir þau hafa verið hið vænsta fólk og ekki hafi farið mikið fyrir þeim. Hann reiknaði ekki með því að gera sér sérferð til Reykjavíkur gagngert til að sjá myndina en ef hann ætti leið í höfuðborgina myndi hann vissulega skella sér í bíó. Yfir veturinn, þegar ferðamanna- iðnaðurinn liggur að mestu leyti niðri, sinnir Hafsteinn þeim átta- tíu kindum sem hann er með og lagfærir hina og þessa hluti fyrir sumarið. „Það er alltaf hægt að hafa nóg að gera ef maður bara nennir,“ segir Hafsteinn. - fgg Flateyjarbúar bíða Brúðgumans HÝSTI ÓLAF DARRA OG ÓLAFÍU Hafsteinn Guðmundsson ætlar að sjá myndina ef hann á annað borð á erindi til Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ÆTLAR AÐ FARA UM MIÐJAN FEBRÚAR Svanhildur Jónsdóttir segist ætla að fara til Reykjavíkur og sjá bæði leikritið Ívanoff og kvikmyndina Brúðgumann. Nýjungar í Microsoft CRM 4.0 morgunverðarfundur 08:30 - 09:00 Morgunmatur 09:00 - 09:15 Opnunarerindi Árni Þór Jónsson, framkvæmdastjóri Microsoft lausna, Opnum kerfum. 09:15 – 09:40 Framtíðarþróun á Microsoft CRM Björn Eilert, Microsoft Danmörku. 09:40 – 10:10 Hvað er nýtt fyrir CRM notendur? Elín Gränz, ráðgjafi og verkefnastjóri, Opnum kerfum. 10:10 – 10:30 Hvað er nýtt í högun kerfisins? Sigurður Helgi Sturlaugsson, ráðgjafi og verkefnastjóri, Opnum kerfum. Opin kerfi halda morgunverðarfund um nýjungar í Microsoft CRM þriðjudaginn 5. febrúar á Grand Hótel í Reykjavík – 4. hæð. Þar verða CRM notendum, bæði almennum notendum og kerfisstjórum sem aðlaga lausnina, kynntar helstu nýjungar. Skráning á morgunverðarfundinn er í gegnum vef Opinna kerfa, www.ok.is. P IP A R • S ÍA • 8 0 2 4 9 Opin kerfi ehf. • Höfðabakka 9 • 110 Reykjavík • Sími 570 1000 • Fax 570 1001 • www.ok.is STUDDI LIVERPOOL Ásgeir Frið- geirsson er gamall stuðnings- maður Liverpool en hefur nú skipt um lið, enda stjórnar- maður hjá West Ham United. Eins og kemur fram hér til hliðar reyndist morðinginn í Pressu þeirra Sigurjóns Kjartanssonar og Óskars Jónassonar vera fjármála- stjórinn Davíð Ólafsson. Þetta virðist ekki hafa komið mörgum á óvart ef marka má skoðanakönnun sem framkvæmd var á vefsíðunni visir. is því þar taldi rúmlega helmingur þeirra sem tóku þátt Davíð hafa framið ódæðisverkið. Hins vegar kemur það kannski einna helst á óvart að áhorfið á Pressu virðist hafa slegið fremur ungt met Næturvaktarinnar sem sprengdi nánast alla áhorfsskala hjá áhorf- endum Stöðvar 2. Og meira af uppdiktuðum saka- málum því um helgina var haldin árleg morðgátuhelgi á Hótel Búðum. Að þessu sinni voru það þeir Ævar Örn Jósepsson og Davíð Þór Jóns- son sem settu morðgátuna saman en Ævar Örn er sem kunnugt er einn af höfundum sjónvarpsþáttaraðar- innar Pressu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins heppnaðist umrædd gáta svo vel að þeir Davíð og Örn báðu gestina vinsamlegast um að kjafta ekki frá lausn hennar því hún gæti vel verið notuð aftur, með smá útúrsnúningum þó, á næsta ári. Meðal þeirra sem reyndu að klófesta morðingjann á Búðum voru Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar- sambandsins. Sá síðastnefndi greindi frá dvöl sinni fyrir vestan á bloggsíðu sinni og sagði meðal annars frá sérkennilegu reykherbergi í formi gamals Range Rover en þar gátu menn púað saman reyk og reynt að finna út hver væri sá seki. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.