Fréttablaðið - 04.02.2008, Page 44
20 4. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
Breski rithöfundurinn Doris
Lessing tók við bókmennta-
verðlaunum Nóbels við
hátíðlega athöfn í London
síðastliðinn fimmtudag.
Heilsufarsvandamál komu í
veg fyrir að Lessing, sem er
88 ára gömul, gæti ferðast til
Stokkhólms til að taka við
verðlaununum í desember og
því var brugðið á það ráð að
veita henni verðlaunin í
heimaborg hennar.
Lessing var að vonum
hæstánægð með heiðurinn. Í
ræðu sinni við athöfnina
sagði hún meðal annars:
„Það virðist varla vera nóg
að þakka fyrir sig þegar
maður hefur unnið sjálf
verðlaun verðlaunanna.
Þetta er sannarlega ótrúlegt.
Ég held að það sé vart hægt
að stefna hærra.“ Hún bætti
síðar við, í gamni fremur en
alvöru, að hugsanlega gæti
hún nú átt von á klappi á
kollinn frá sjálfum páfanum.
Staffan Carlsson, sendi-
herra Svíþjóðar í London,
studdi Lessing upp á sviðið
til þess að taka við verðlaun-
unum. Hann hélt einnig ræðu
þar sem hann sagði Lessing
nú loks vera sýnd sú sæmd
sem hún hefði lengi átt inni
hjá bókmenntaheiminum.
Leikararnir Juliet Steven-
son og Alan Rickman lásu
upp úr næstu bók Lessing,
Alfred and Emily, sem
kemur út í maí næstkomandi.
Sagan er að nokkru leyti
byggð á fortíð Lessing
sjálfrar; hún veltir fyrir sér
hvaða áhrif það hefði haft á
lífshlaup foreldra sinna hefði
fyrri heimsstyrjöldin aldrei
átt sér stað.
Lessing er aðeins ellefta
konan sem hlýtur bók-
menntaverðlaun Nóbels í 106
ára sögu verðlaunanna. - vþ
Lessing tekur við Nóbelsverðlaunum
DORIS LESSING Tók við bók-
menntaverðlaunum Nóbels í
London í síðustu viku.
Það var mikið hlegið og dátt á
frumsýningu í Borgarleikhúsinu á
föstudaginn, enda fóru snjallir
leikarar með nöturlega fyndinn og
góðan texta.
Þrír menn sitja á verönd á elli-
heimili sem ætlað er gömlum her-
mönnum úr fyrri heimsstyrjöld-
inni. Þeir gætu verið fangar, þeir
gætu verið á hvaða elliheimili sem
er og það er einmitt þess vegna
sem handiritið er svo gott. Það
skiptir ekki máli að þeir eru á mis-
munandi aldri og það skiptir ekki
máli að þeir eru af mismunandi
stéttum en það sem skiptir máli er
að þeir eru manneskjur sama
marki brenndar þótt einkennin hafi
mismunandi birtingarform. Þeir
hafa allir þá reynslu að hafa tekið
þátt í einhverju viðbjóðslegasta og
mannskæðasta stríði sem sögur
fara af, nefnilega heimsstyrjöld-
inni fyrri. Hvaða máli skiptir slík
sýning fyrir okkur hér og nú?
Jú, hún skiptir því máli að þetta
gæti í raun og veru fjallað um
hvaða hópupplifun sem er, eitt-
hvert hræðilegt áfall sem margir
hafa orðið fyrri.
Félagarnir þrír spjalla um það
fólk sem er á heimilinu og við
kynnumst innviðum þess þótt fleiri
séu leikararnir ekki. Þessi verönd
er römmuð inn í landslag sem í
fyrstu virðist vera einhvers konar
púsluspil og kannski eins og landa-
kort yfir þau ríki sem tóku þátt í
styrjöldinni, eins minnir leikmynd-
in á mínigolfvöll, sem er kannski
líka táknrænt því mínigolfvöllur er
ekki alvöru golfvöllur og það líf
sem þeir lifa hér á þessu heimili er
ekki í alvöru skotgröfum þó svo að
þeir hreyfi sig í myndinni og noti
orðaforða eins og þeir væru enn í
stríði.
Leikmyndin er í einfeldni sinni
mjög margræð. Hún minnir einnig
á ákveðna tegund af kúluspilum
þar sem kúlan fer eftir brautum og
lendir svo oní þar til gerðum skál-
um. Partíhattar liggja í útjaðri
myndarinnar, sem sagt, partíið er
búið. Heiðurinn af leikmyndinni
eiga þýsku listamennirnir Brit
Dadrop og Jürgen Höth.
Leikararnir þrír hreyfa sig í
myndinni og lítið gerist utan
hennar. Litirnir grænu og gráu og
slepjulegu steinarnir leiða hugann
til þeirra staða sem sködduðu þessa
menn. Einkar skemmtileg, óvenju-
leg og frumleg leikmynd sem í
sjálfu sér leikur stórt hlutverk í
uppsetningunni.
Steinhundur leikur fjórða hlut-
verkið og er það ansi hreint stórt
hlutverk enda talar Gústaf, einn
félaganna, um að þeir séu kvartett
en ekki tríó því hundurinn er alltaf
með þeim. Stendur pikkfastur með
kíki um hálsinn eins og hann sé að
fylgjast með förum óvina fyrir
þessa þrjá miklu hermenn.
Sigurður Skúlason leikur aristó-
krata sem virðist vera hinn sterki í
hópnum en er í raun sá er á erfið-
ast með að fóta sig í lífinu að stríð-
inu loknu. Gústaf, sem Sigurður
túlkar af mikilli sannfæringu og
innlifun, er flottur í tauinu og hefur
aðeins dvalist á þessu elliheimili í
sex mánuði þegar sagan hefst.
Hann hreyfir sig og tjáir eins og sá
sem alla tíð hefur notið smekklegs
umhverfis. Í fyrstu virðist hann
vera fýlupúki og nöldrandi gamall
karl, sem álítur sig betri en aðra
menn, en svo kemur hin óhugnan-
lega hræðsla og þráhyggja í ljós.
Oft hefur Sigurður verið góður á
sviðinu en hér held ég að hann
toppi sjálfan sig.
Guðmundur Ólafsson fer með
hlutverk Hinriks sem borið saman
við hina mennina virðist vera frísk-
astur af þeim, einkenni hans koma
bara fram í einhvers konar ofvirkni
og hugdettuflækjum. Guðmundi,
eins og reyndar öllum þremur leik-
urunum, virðist þykja vænt um per-
sónuna Hinrik. Hann er sá sem sér
út fyrir múrana og hann er einnig
sá sem vogar sér einn út til að skoða
lífið utan veggja hemilisins. Hann
er sá sem skipuleggur ferðalagið
sem þeir ætla saman í og á mjög
fínstemmdan og næman hátt kemur
Guðmundur málamiðlunarmannin-
um Hinrik til skila. Sá sem í raun
stjórnar en þykist ekki gera það.
Theodór Júlíusson leikur Ferdin-
and sem er þeirra karla elstur.
Hann er enn með sprengjubrot í
hausnum sem verður til þess að
hann dettur út mjög reglulega og
þá vella úr honum ljótar setningar
sem hann kannast svo ekkert við
að augnabliki liðnu. Theodór nær
mjög góðum tökum á þessum
bangsahlunk. Þunglamalegar
hreyf ing arnar, algert hirðuleysi
varðandi klæðnað, í takt við barns-
leg uppátæki skapa trúverðugan
karakter.
Þetta er leiksýning fyrir þá sem
vilja sjá vel ígrundaða og góða sýn-
ingu, þar sem hljóð, mynd, ljós og
leikur fléttast saman í napurri
kímni. Elísabet Brekkan
Partíið er búið
LEIKLIST Þrír gamlir menn með bagga átaka sem sködduðu þá alla fyrir lífstíð: Guð-
mundur, Theódór og Sigurður. MYND: LR/SIGFÚS
LEIKLIST
Hetjur
Eftir Gerald Sibleyras
Þýðandi: Pétur Gunnarsson
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen
Ljós: Kári Gíslason
Leikmynd og búningar: Jürgen Höth
og Brit Daldrop
Leikstjóri: Hafliði Arngrímsson
★★★★
Þaulhugsuð og hrífandi leiksýning.