Fréttablaðið - 04.02.2008, Page 49
MÁNUDAGUR 4. febrúar 2008 25
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
er fyrir börn, 2 – 11 ára, í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
bókanlegt frá 31. janúar 2008
ferðatímabil 1. – 29. febrúar 2008
býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu, www.flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
LU
40
78
2
01
.2
00
8
1 kr. aðra leiðina + 490 kr. 1. – 29. febrúar.
(flugvallarskattur)
Aðeins 1 króna fyrir börnin
www.flugfelag.is | 570 3030
Hollywood-stjörnurnar Sarah
Jessica Parker, Josh Brolin og
Natalie Portman voru á meðal þeirra
sem hvöttu framleiðendur sjónvarps-
þáttarins Entertainment Tonight til
að hætta við að sýna mynd-
band af Heath Ledger nota
eiturlyf. Á endanum létu
framleiðendurnir undan
þrýstingnum og hættu
við sýninguna, vinum og
vandamönnum Ledgers
til mikils léttis.
Leikstjórinn Tim
Burton og kona hans Helena Bon-
ham Carter hafa nefnt sex vikna
dóttur sína Indiana Rose. Carter
eignaðist dótturina 16. desember.
Talið er að þau hafi beðið
svo lengi með að greina
frá nafninu vegna
þess að þau héldu
að þau myndu
eignast strák.
Þau eiga fyrir
hinn fjögurra
ára Billy Ray.
Leikkonan Katie Holmes hefur
vísað á bug slúðurfrétt um að hún
hafi orðið ófrísk eftir fyrrverandi
kærasta sinn Chris Klein og látið
eyða fóstrinu. Holmes og
Klein voru saman í fimm
ár þar til þau hættu
saman snemma árið
2005. Nokkrum vikum
síðar byrjaði Holmes
með Tom Cruise
og eignaðist með
honum dótturina
Suri í apríl 2006.
Damon Albarn, fyrrum söngvari
Blur, segir ólíklegt að sveitin komi
aftur saman því hinir meðlimirnir
þoli sig ekki. „Ég borðaði kvöldmat
með strákunum um daginn og það
var gaman en það er ekki möguleiki
að þeir vilji vinna aftur með mér
því enginn þeirra þolir mig.
Við ætlum ekki að koma
aftur saman,“ sagði
Albarn. „Eina ástæðan
fyrir því að sveitir hefja
aftur störf er peningar
og ég þarf ekki á
meiri peningum
að halda.“
FRÉTTIR AF FÓLKI
News Of the World upplýsti í
gær að dauði Heaths Ledger
hefði átt sér langan aðdrag-
anda. Leikarinn hefði verið
háður eiturlyfinu kókaíni
um þó nokkurt skeið.
Sunnudagsblaðið birti á vef-
síðu sinni myndband af
Heath á hótelherbergi
fyrir tveimur árum þar
sem hann sést greinilega
nota eiturlyfið. Að sögn
blaðsins var myndbandið
tekið fyrir tveimur árum á
Chateau Marmont hótelinu,
því sama og John Belushi
lést á vegna ofneyslu eitur-
lyfja árið 1982. Fram kemur
að Ledger hafi sótt verð-
launaafhendingu hjá sam-
tökum kvikmyndaleikara
fyrr um kvöldið ásamt
þáverandi unnustu sinni,
Michelle Williams. Hún hafi
hins vegar verið sofandi í
herbergi skammt frá ásamt
dóttur þeirra, Mathildu. „Þetta
myndband er algjör sprengja,
þarna sést Heath í miklu eitur-
lyfjamóki í herbergi sem er fullt
af ókunnugu fólki,“ hefur News of
the World eftir heimildarmanni
sínum en andlát Heaths kom
heimsbyggðinni í opna skjöldu
enda hann ekki verið þekktur fyrir
stíft og strangt skemmtanahald.
Einna helst vekur athygli að
þrátt fyrir að Heath hafi á þess-
um tíma verið ákaflega þekkt
andlit og frægt nafn þá lætur
hann sig hafa það að nota eiturlyf-
ið með fólki sem hann vissi ekkert
um. „Þetta sýnir hvað best hversu
háður Heath er eiturlyfinu, honum
er alveg sama þótt einhver þekki
hann, hann þarf bara sinn næsta skammt,“ segir
heimildarmaður News of the World. Einnig kemur
fram að Heath fái samviskubit þegar líður á kvöldið
og er þess fullviss að hann eigi eftir að lenda í mikl-
um vandræðum vegna þessa. „En hann heldur engu
að síður áfram. Í lokin er hann farinn að tala um dótt-
ur sína og hversu stutt sé síðan hún fæddist,“ segir
einn sjónarvotturinn en Mathilda var aðeins þriggja
mánaða þegar myndbandið var tekið.
News of the World greinir frá því að Michelle
Williams hafi hætt með Heath einmitt vegna þess-
ara lifnaðarhátta og bætir því við að þrátt fyrir að
það hafi verið látið í veðri vaka að hann hafi dáið
fyrir slysni þá hafi fundist kvittun, rúlluð upp sem
rör en það er alþekkt bragð meðal kókaínfíkla.
Miðað við þann lífsstíl sem Heath ástundaði hafi
menn alveg eins getað búist við þessu.
Heath var háður kókaíni
MIKIL SORG Michelle
Williams er sögð miður
sín yfir því hvernig fór og
hefur beðið fjölmiðla um
að sýna henni og dótturinni
Mathildu skilning.
LANGT LEIDDUR
Heath Ledger virðist
hafa verið langt
leiddur kókaínfíkill
og því hefði andlát
hans ekki átt að
koma neinum á
óvart.
Benjamin Barker snýr aftur til
Lundúna eftir áralanga fangelsis-
vist fyrir glæpi sem hann framdi
ekki, staðráðinn í að hefna sín á
manninum sem hafði af honum
æruna, konu og barn. Hann tekur
upp fyrri iðju sem rakari undir
nafninu Sweeney Todd en fæstir
viðskiptavinanna eiga afturkvæmt
úr rakarastólnum og leigusali hans
frú Lovett hefur vart undan við að
hakka líkin niður í bökur, sem hún
selur grunlausum borgurunum við
góðan orðstír.
Sagan af Sweeney Todd er ógeð-
felld og blóði drifin lýsing á upp-
gangi raðmorðingja í iðnbylting-
unni í Lundúnum, sem birtist fyrst
á prenti í Englandi um miðja 19. öld
og sumir telja að hafi átt sér stoð í
raunveruleikanum. Síðan þá hefur
hún verið aðlöguð fyrir leikhús,
óperu og hvíta tjaldið með mis-
jafnri útkomu en ekki er annað
hægt að segja en að Tim Burton
takist nokkuð vel upp með þessa
nýju útgáfu, sem byggist á söngleik
frá árinu 1979.
Sweeney Todd er sjónræn veisla
eins og vænta má af hendi Burtons;
gotnesk martraðarveröld þar sem
óvenju pönkaðar fyrri aldar sögu-
persónur, þjakaðar af óréttlæti og
misskiptingu, reyna að finna lífinu
tilgang. Aldrei þessu vant hverfur
þó sagan ekki í skuggann af hinum
drungalega Burton-stíl, heldur
vinnur þetta tvennt vel saman
ásamt góðum leik. Johnny Depp og
sérstaklega Helena Bonham-Carter
túlka Sweeney og frú Lovett með
tilþrifum og syngja við hvern sinn
fingur meðan þau brytja niður ill-
þýði Lundúna.
Burton hefur ekki sent frá sér
jafn heilsteypta og velheppnaða
mynd í áraraðir, þótt svolítið vanti
upp á húmorinn og fulllangt sé
gengið í blóðsúthellingum, sérstak-
lega í lokin.
Hvað sem skefjalausu ofbeldi
líður drukknar sagan ekki í blóði og
boðskapurinn um hefnd sem veitir
ekki sálarfrið heldur blindar menn
og leiðir loks til tortímingar kemst
vel til skila. Roald Eyvindur Viðarsson
Hressandi hryllingur
KVIKMYNDIR
Sweeney Todd: The Demon
Barber of Fleet Street
Leikstjóri: Tim Burton
Aðalhlutverk: Johnny Depp, Helena
Bonham Carter og Alan Rickman
★★★
Sweeney Todd: The Demon Barber of
Fleet Street er vel stílfærð útfærsla á
einum blóðugasta söngleik sem um
getur, ásamt því að vera besta mynd
Tims Burton í áraraðir.