Fréttablaðið - 04.02.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn
4. febrúar, 35. dagur ársins.
10.01 13.41 17.23
9.57 13.26 16.56
Með nýjum og yfirveguðum borgarstjóra er í bili búið að
skrúfa fyrir hina flóknu umræðu
um hvert skuli flytja Reykja-
víkurflugvöll – hvort fara skuli
með flugvöllinn upp á heiðar eða
út í sjó eins og ýmsir stórgáfaðir
menn hafa gert að tillögum
sínum.
EKKERT er ómögulegt í nútím-
anum. Rúntað er með gömul hús
milli borgarhluta eins og ekkert
sé í staðinn fyrir að rífa þau í eitt
skipti fyrir öll. Slíka tilfinninga-
semi hefur hámenntaður arkitekt
reyndar gert að umtalsefni og
bendir á að gömul timburhús á
Íslandi komi okkur Íslendingum
ekki nokkurn skapaðan hlut við,
því að flest þessara húsa séu upp-
haflega frá Noregi og þar af leið-
andi sé það ekki okkar mál að
varðveita þau. Sama gildir auð-
vitað um heilmikið af fornminj-
um sem eru úr erlendu hráefni,
þannig að hægt væri að skera
niður framlög til Þjóðminja-
safnins um mikinn mæli ef öllu
útlenda draslinu væri hent á
öskuhauga sögunnar – að maður
tali nú ekki um allt ruglið sem
skrifað hefur verið eða prentað á
innfluttan pappír gegnum tíðina.
AUÐVITAÐ er ekki hlaupið að
því að flytja flugvelli fremur en
álagabletti, ský, uppsprettulindir,
jarðgöng, torfbæi eða fiskimið.
Ef mann vantar flugvöll er ekki
hægt að hafa samband við flug-
vallafornsölu og fá lítið notaðan
flugvöll á góðu verði. Áður en
fleiri fara sér að andlegum voða
við að leita að flugvallarstæðum
á Hólmsheiði eða í skerjagarði
Reykjavíkur er rétt að rifja upp
að fyrir utan Reykjavíkurflug-
völl í miðbænum býr höfuð borgin
við þau hlunnindi að hafa prýði-
legan alþjóðaflugvöll í útjaðri
sínum, nokkurra mínútna akstur
frá álverinu sem táknar að maður
sé kominn til höfuðborgar
Íslands.
ÞESSI gleymdi fjársjóður heitir
Keflavíkurflugvöllur og er svo
flottur að ef einhvern tímann
verður ákveðið að leggja í tug-
milljarðakostnað við að flytja
flugvöll færi best á því að Kefla-
víkurflugvöllur verði fluttur til
Reykjavíkur og Reykjavíkurflug-
völlur til Keflavíkur og í milli-
gjöf fái Reyknesingar borgar-
stjórann okkar hérna í Reykjavík
og við fáum bæjarstjórann þeirra
í staðinn. Þar með væri hringa-
vitleysan fullkomin.
Að flytja
flugvöll