Fréttablaðið - 19.02.2008, Side 6
6 19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
NÝJAR H4 og H7
bílaperur frá
X-treme Power
allt að 80% meira ljós
NR. NS880SB
20% afsláttur í febrúar
M
er
ki
S
he
ll
er
u
no
tu
ð
af
S
ke
lju
ng
i m
eð
le
yfi
S
he
ll
Br
an
ds
In
te
rn
at
io
na
l A
G
.
PAKISTAN, AP Dræm kjörsókn var í þingkosningun-
um í Pakistan í gær þar sem margir kjósendur
héldu sig heima af ótta við árásir herskárra
íslamista. Kosningarnar fóru þó tiltölulega frið-
samlega fram.
Kjörstöðum var lokað klukkan fimm síðdegis að
staðartíma og er lokaúrslita að vænta eftir tvo daga
að sögn kosningayfirvalda.
Formaður kjörstjórnar í Punjab, fjölmennasta
héraði Pakistans, áætlaði að kjörsókn hefði verið á
milli þrjátíu og fjörutíu prósent. Íbúar Pakistan eru
81 milljón talsins.
Tvær skoðanakannanir sem bandarískir aðilar
gerðu í Pakistan bentu til þess að flokkur stjórnar-
andstöðuleiðtogans Benazir Bhutto, sem var myrt í
desember, myndi sigra. Næstur kæmi stjórnarand-
stöðuflokkur Nawaz Sharif og flokkur hliðhollur
Musharraf yrði þriðji.
Að minnsta kosti átján manns fórust í átökum
milli stuðningsmanna pakistanskra stjórnmála-
flokka í gær. Engar fregnir bárust hins vegar af
árásum herskárra íslamista, sem hafa verið tíðar í
aðdraganda kosninganna og náðu hámarki í
morðinu á Bhutto. Kosningunum var seinkað um
sex vikur vegna morðsins.
Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hefur heitið
því að starfa með nýrri ríkisstjórn burtséð frá því
hver sigrar í kosningunum. - sdg
Þingkosningarnar fóru tiltölulega friðsamlega fram í Pakistan í gær:
Dræm kjörsókn í Pakistan
KOSIÐ Í SVEITAHÉRUÐUM Kjörsókn var dræm í þingkosningun-
um í Pakistan í gær. NORDICPHOTOS/AFP
GRONINGEN, AP Hollenskir vísinda-
menn við háskólasjúkrahúsið
Medical Center Groningen hafa
uppgötvað nýja aðferð til að lengja
lífslíkur þeirra sem fengið hafa
hjartaáfall.
Felst hún í því að fjarlægja
blóðkökkinn sem stíflar æðina til
hjartans í stað þess að ýta honum
til hliðar. Dánartíðni þeirra sem
fengið hafa hjartaáfall er ekki há,
en þessi uppgötvun gæti hins
vegar nýst sem áfangi í bættum
lækningaaðferðum.
Við rannsóknina var notast við
gögn um 1.071 sjúkling sem lagðist
inn á árunum 2005 til 2006.
- gsh
Ný aðferð í hjartalækningum:
Betri lífslíkur
eftir hjartaáfall
SJÁVARÚTVEGUR Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylkingar-
innar, kynnti þá hugmynd í gær að
byggðakvóti yrði boðinn upp á
almennum markaði en andvirðið
rynni síðan til sjávarbyggða sem
áður hefðu notið góðs af honum.
„Það sem við erum að gera er að
hefja umræður um það hvernig við
getum mætt þeirri gagnrýni sem
kemur fram í áliti mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna,“
segir Lúðvík Bergvinsson, for-
maður þingflokks Samfylkingar-
innar. „Umræða um þessi mál hefur
hingað til verið í skotgröfunum og
oftar en ekki endað fyrir dómstól-
um en með þessu viljum við kalla
að alla hagsmunaaðila til að ræða
þessi mál á nýjum grundvelli. Það
má síðan vel vera að þessi umræða
leiði til niðurstöðu sem við sjáum
ekki fyrir núna.“
Sjávarútvegsráðherra hefur
heimild til að úthluta um tólf þús-
und þorskígildistonnum í byggða-
kvóta á ári en í nokkrum sveitar-
félögum hefur þessi úthlutun
gengið erfiðlega fyrir sig. Lúðvík
segir að þetta nýja kerfi myndi
höggva á þær deilur sem risið hafa
í sumum sveitarfélögum vegna
þessara úthlutana.
„Kvótakerfið byggist á því að
hagræða og hagræðing felur í sér
fækkun starfa og er því nokkuð
ódælt fyrir sjávarbyggðirnar en
með þessu móti mætti nota fjár-
munina sem tengdir yrðu vissum
sveitarfélögum til að auka störfin
þar.“
Grétari Mar Jónssyni, þingmanni
Frjálslynda flokksins, líst vel á
þessa hugmynd. „Mér líst vel á
þetta svo langt sem það nær en til
þess að verða við áliti mannrétt-
indanefndar þyrfti að ganga mikið
lengra og bjóða upp að minnsta
kosti 25 til 30 prósent af veiðiheim-
ildunum árlega. Jafnvel ganga enn
lengra og bjóða
upp helming
veiðiheimild-
anna til tveggja
ára,“ segir hann.
„Með þeim hætti
er verið að
tryggja öllum
þeim sem eiga
báta jafnan
aðgang að þess-
ari auðlind. En
það þyrfti þá að
útfæra þetta
með þeim hætti að allir stæðu jafnir
þegar kemur að útboðunum.“
Ekki náðist í Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra.
jse@frettabladid.is
Samfylking vill bjóða
upp byggðakvótann
Samfylkingin kynnti í gær hugmyndir um að byggðakvótinn verði boðinn upp
á almennum markaði. Hugmyndin er sett fram sem svar við gagnrýni mann-
réttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Þingmanni Frjálslyndra líst vel á.
INGIBJÖRG SÓL-
RÚN GÍSLADÓTTIR
LÚVÍK
BERGVINSSON
GRÉTAR MAR
JÓNSSON
AFLINN UM BORÐ Nái Samfylkingin að landa hugmynd sinni munu sjávarbyggðir
ekki fá byggðakvóta sem oftar en ekki er deilt harðlega um heldur andvirði hans eftir
sölu á almennum markaði.
Gætir þú hugsað þér að skipta
um nafn?
Já 22%
Nei 78%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú sátt(ur) við nýundirrit-
aða kjarasamninga?
Segðu skoðun þína á visir.is
LÖGREGLUMÁL Íslenskir feðgar réðust á karlmann í
Danmörku á sunnudag og börðu hann með járnröri.
Ástæðan fyrir árásinni var að fórnarlambið, 49 ára
Dani, býr með fyrrverandi eiginkonu föðurins.
Greint er frá þessu í vefútgáfu danska blaðsins
JyllandsPosten í gær.
Faðirinn, sem er fimmtugur, réðst inn í íbúð
mannsins í Langebæk skammt frá Vordingsborg á
Sjálandi ásamt átján ára syni sínum um klukkan
fimm um daginn. Saman hófu þeir að berja manninn,
meðal annars með járnröri.
Íslensk sambýliskona Danans, sem er fyrrverandi
eiginkona föðursins, hringdi þá í lögreglu, sem kom
og sótti feðgana. Maðurinn sem varð fyrir barsmíð-
unum þurfti að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi, en
var ekki talinn alvarlega meiddur.
Talið er að feðgarnir hafi farið til Danmerkur til
þess eins að ráðast á manninn. Þeim var sleppt að
lokinni yfirheyrslu, þar sem ekki þótti ástæða til að
úrskurða þá í gæsluvarðhald. Þeir eiga yfir höfði sér
allt að sex ára fangelsi fyrir líkamsárás. - sþs
Íslenskir feðgar eiga yfir höfði sér fangelsisvist í Danmörku fyrir líkamsárás:
Flugu út til að berja mann
LÖGREGLUBÍLL Fórnarlamb árásarinnar þurfti að leita sér
aðstoðar á sjúkrahúsi en var ekki alvarlega slasað.
KJÖRKASSINN