Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 26
 19. FEBRÚAR 2008 ÞRIÐJUDAGUR6 Flóttastiga má bera saman við björgunarbáta um borð í skipum. Ófáir hafa tekið eftir því að byggingum fer ekki einungis fjölgandi heldur verða byggingar á Ís- landi sífellt hærri og hærri. Innflutningsfyrirtæk- ið Sindri sinnir veigamiklu starfi í þessari þróun því auk þess sem það flytur inn ýmsar bygginga- vörur, vélar og tæki leggur það mikla áherslu á svokallaða flóttastiga. „Það má kannski segja þetta sambærilegt við björgunarbát um borð í skipi hvað öryggisatriði varðar, þetta er í raun líflína ef bruni eða líkur háski kemur upp í húsnæðinu,“ segir Guðmundur Jónsson, deildarstjóri hjá Sindra, er hann er spurður út í mikilvægi flóttastiga í margra hæða húsum. „Hringstigarnir eru vinsælastir, enda léttir, auðvelt að setja þá upp og meðfærilegir miðað við notagildi. Þeir falla yfirleitt best inn í arkitektúr nútímahúsa,“ bætir Guðmundur við. Sindri flytur inn stiga frá Weland og er hægt að fá þá bæði með hægri og vinstri snúningi eftir því sem betur á við. Það þýðir að ef gengið er upp stig- ann þá er súlan á hægri hönd í hægrisnúningsstiga og öfugt. „Það eru auðvitað reglugerðir um þetta eins og allt annað í byggingargeiranum og um að gera að kynna sér málin vel. Til að mynda eru hring- stigarnir svokölluðu takmarkaðir við fjórar hæðir,“ segir Guðmundur spurður hvort ekki beri einhver ein tegund stiga af hvað þessi öryggis- mál varðar. „Það þarf að meta allt saman, fjöldi hæða, fjöldi fólks á hverri hæð og fleira spilar þar inn í og því engin ein aðferð sem við notum ef mæla þarf með gerð flóttastiga við viðskiptavini, við metum þarfirnar eftir hverjum og einum.“ Guðmundur bendir á að sem sérfræðingar mæli þeir ávallt með ákveðnum lausnum en ábyrgðin sé ávallt hjá aðalhönnuðum og byggingarnefnd hvers húss. „Ég vil reyndar að tryggingafélögin komi meira að þessum málum því þau meta hlut- ina út frá öryggisatriðum ef eitthvað þeim varð- andi kemur upp á og flóttastigarnir eru eitt helsta öryggisatriðið í mörgum byggingum í dag.“ Auk hringstiganna hefur Sindri upp á fleiri teg- undir stiga að bjóða. Pallastigarnir sem eru ekki takmarkaðir við neina hæð eru einn möguleikinn. „Þeir eru meira áberandi, sumir segja þá klunna- lega utan á húsunum því þeir taka meira pláss en hringstigarnir og í mörgum tilfellum eru þeir verri kostur fyrir húsnæðið.“ Aðrir kostir eru einnig fáan legir frá Sindra og nefnir Guðmundur bæði innistiga og svokallaða fellistiga. Samkvæmt Guð- mundi eru fellistigarnir þannig hannaðir að þeir eru settir í stokk og líta út eins og rör á veggnum. Líflína í bruna og háska Guðmundur Jónsson við brunastiga frá Sindra á húsi í Borgar- túni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Bolholti 4 – Sími 511 1001 – Opið 10-18 – ecc.is Nýtt! Ofnæmis- stjórnun Fjarlægir gæludýralykt Frískar og gefur ilm Fjarlægir tóbaksreyk Hreinsar ryk Eyðir lykt Fækkar ofnæmisvöldum Gefur ferskan ilm Cleanaer lofthreinsitækið: Cleanaer lofthreinsitækið fjarlægir óæskilegar agnir úr loftinu og gerir það hreinna og ferskara. Cleanaer gefur líka frá sér ferskan ilm til að fullkomna verkið. Tækið gengur fyrir rafhlöðum. Verð aðeins kr. 6.900,-

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.