Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 36
20 19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Hér er ég kominn með allt mitt! Frábært! Þetta verður æðislegt! Það verður kannski erfitt að blanda mínu dóti við þitt, en... Við redd- um því! ...einhvern veginn! Ókei! Þetta pleis þarfnast alvöru mynda! Sammála! ... en kannski ekki akkúrat í stofunni? Já, já... Við þurfum víst að húka hér, drengir! Nóg komið af reyk og spegl- um! Hvað var aldurstakmark- ið á myndinni? Mamma, mamma... Hvað þýða tölustafir í raun og veru? Við lærðum allt um þig í skólanum í dag! Ég sagði þeim ekki neitt! Hundur Pabbi, má ég fá minn eigin tölvu- póst? Einn góðan veðurdag. Takk. Ég hlakka til að eyða mínum eigin ruslpósti. Það er ekki hægt að segja að hún hafi óraunsæjar væntingar. Ástargöngin Íþróttir eru ekki nýtil- komið sófaáhugamál nútímamannsins. Íþrótt- ir hafa frá örófi alda skipað veglegan sess í lífi mannsins. Þannig fannst hinum fjöllyndu Grikkjum fátt jafn skemmtilegt og að horfa á vel þjálfaða íþróttamennina takast, kviknakta, á í glímu á svokölluðum Ólympíuleikum. Íþróttamennirnir hjá Rómverjum fengu að vera í fötum en voru hins vegar þrælar í ánauð og neyddir til að berjast með sverð og skjöld gegn þraut- þjálfuðum hermönnum heimsveldis ins eða rándýrum af stærstu sort. Líkt og hjá Grikkjum og Róm- verjum, þessum mestu heimsveld- um sögunnar, eru íþróttirnar enn þann dag í dag afþreying fyrir fjöldann. Knattspyrnu-, kappakst- urs- og körfuboltahetjurnar, auk kylfinga, eru skylmingaþrælar nútímans, þjálfaðir til þess að skemmta okkur, hinum einfalda múg. Og með minni tiltrú almennings á æðri máttarvöldum sem ein- hvers konar skapara eða frelsara hafa íþróttahetjurnar tekið við endurkomuhlutverki Messíasar. Þeir eru tilbeðnir eins og guðir og allt sem þeir gera er nánast full- komið. Fólk fer ekki í kirkjur held- ur á íþróttaleikvanga og hugleiðir leikjastragetíu en ekki Guðs orð. Og presturinn heitir hvorki séra né faðir heldur Ferguson, Wenger og skrattakollurinn hann Benitez. Píslarvottarnir eru ekki dýrlingar heldur Busby Babes sem létust fyrir málstaðinn í München. Eða síðan hvenær hefur minningarat- höfn um lærisveinana þrettán verið jafn tilkomumikil og sú sem var haldin til minningar um flug- slysið á Old Trafford nýverið? Fyrir þá sem telja nóg komið af íþróttum, nóg komið af þessu hrópum og köllum út af erlendum liðum í fjarrikikistan skal hinum sömu bent á að Jesú var ekki Íslendingur, hann kom frá Ísrael, hefði að öllum líkindum leikið með Napoli og verið dýrkaður eins og Maradona, ef hann hefði verið meðal oss í dag. STUÐ MILLI STRÍÐA Hinn nýi guðdómur FREYR GÍGJA GUNNARSSON SÉR NÝJA FRELSARA Vinningshafar síðustu viku Ekki missa af Skólahreysti kl. 20.00 á Skjá einum. Hver sigrar í kvöld? www.ms.is Heiðarskóli Aðalstyrktaraðili Skólahreystis

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.