Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 24
 19. FEBRÚAR 2008 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● húsbyggjandinn Steinsteypudagurinn verður haldinn í tuttugasta og annað sinn föstudaginn 22. febrúar á Grand Hóteli og hefst dagskrá- in kl. 8.30. Steinsteypudagurinn er heils dags ráðstefna sem Steinsteypufélag Íslands stendur fyrir en „dagurinn er orðinn nokkurs konar hátíðis- dagur steinsteypu- og múriðnaðar- ins,“ segir Einar Einarsson, for- maður félagsins og verkfræðingur hjá BM-Vallá. Þá hittast menn úr öllum stéttum í byggingariðnað- inum og ræða málin og horfurnar. „Í ár er dagurinn sérlega vegleg- ur og dagskráin fjölbreytt,“ segir Indriði Níelsson, félagi í Stein- steypufélaginu og verkfræðingur hjá VST. „Dagskráin er þema- skipt, sem ætti að auðvelda fólki að sækja afmarkaða hluta dagsins þótt að sjálfsögðu sé mælt með að sitja allan daginn,“ nefnir Einar. Bæði erlendir og innlendir fyrir- lesarar munu halda erindi á ráð- stefnunni föstudaginn 22. febrúar og fjalla um rannsóknir, hönnun, framkvæmdir og arkitektúr. Írsku arkitektarnir Shelley McNamara og Yvonne Farrel segja frá hönn- un og byggingu Luigi Bocconi- háskólans í Mílanó. Arkitektarn- ir hafa fengið fjölda viðurkenn- inga í heimalandinu sínu og hefur vinningstillaga þeirra um Háskól- ann í Mílanó beint alþjóðlegri at- hygli að þeim og írskum arki- tektúr. Þá mun Sven Thelanders- son frá Háskólanum í Lundi tala um skýjakljúfa með sérstakri áherslu á steinsteypu sem bygg- ingarefni. Fjallað verður um sjón- steypuveggi og hljóðeinangrun í sambýlis húsum svo fátt eitt sé nefnt af dagskránni. Steinsteypufélagið var stofn- að árið 1971. Starfsemin hefur verið óslitin síðan en félagar eru um 300. „Fundir félagsins eru allt- af vel sóttir og yfirleitt eru mættir um 40 til 60 félagsmenn á hvern fund,“ segir Einar. Þegar þeir Einar og Indriði eru spurðir út í sérstöðu íslensku steinsteypunn- ar stendur ekki á svari. Tilgang- ur Steinsteypufélagins sé fyrst og fremst að vinna að framgangi steypu og sementsbundinna efna. Íslenska veðráttan hafi gert það að verkum að sérhannaðar lausnir við meðhöndlun steinsteypu hafi þróast hérlendis. „Við þurfum að stunda rannsóknir á okkar ís- lensku aðstæðum. En aðrar þjóð- ir eru með vandamál öðrum toga sem tengjast steinsteypu,“ bendir Einar á. Indriði tekur fram „að mjög erfitt geti verið að steypa í mjög miklum hita og þurrki og miklar hitasveiflur valdi skaða á öllum byggingarefnum“. Um 1900 fóru Íslendingar að nota steinsteypu af miklum krafti. „Íslenskar aðstæður gerðu það að verkum að steinsteypan átti mjög upp á pallborðið hér, en eftir árið 1915 voru nánast öll hús stein- steypt,“ segir Einar. „Skógleysi Ís- lendinga er til dæmis ein skýring- in á því hve steinsteypuglaðir Ís- lendingar eru,“ bendir Indriði á og bætir við „að skortur á öðrum efnum sem þoli veðurfarið átti stóran þátt í að steinsteypan varð að ráðandi byggingarefni Íslend- inga.“ - vg Steypuglaðir Íslendingar Þjóðleikhúsið er dæmi um steinsteypt hús frá byrjun tuttugstu aldar. Íslensk afbrygði af timburhúsagerð byggja ekki síst á miklu flúri, þetta má sjá til dæmis í því hvernig gluggakarmar hafa verið skreyttir. Hér má sjá slíkt við Fríkirkjuveg 11. Einar Einarsson og Indriði Níelsson frá Steinsteypufélaginu með listavel steyptan vegg í baksýn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 8. febrúar til og með 14. febrúar 2008 var 104. Þar af var 71 samningur um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 22 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 3.525 milljónir króna og meðalupphæð á samning 33,9 milljónir króna. Á sama tíma var 11 kaup- samningum þinglýst á Akureyri. Heildar veltan var 268 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,4 milljónir króna. Þá var 7 kaupsamningum þing- lýst á Árborgarsvæðinu. Heildar- veltan var 162 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,2 milljónir króna. Kaupsamning- ar vikunnar ● FRAMKVÆMDIR Í KROSSLANDI JB byggingarfélag hefur byggingu á tveimur fjölbýlishúsum í Krosslandi í Hvalfjarðarsveit nú á útmánuðum eftir því sem fram kemur á fréttavefn- um www.skessuhorn.is. Annað er tólf íbúða hús og hitt 20 íbúða hús, bæði á tveimur hæðum. Nú þegar er eitt íbúðarhús risið í Krosslandi. Búið er að selja nokkrar einbýlishúsalóðir til viðbótar og því í höndum lóðareigenda hvenær framkvæmdir hefjast á þeim. Tunguháls 15 sími: 564 6070 www.kvarnir.is Tröppur og stigar Iðnaðartröppur                                   

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.