Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Héðinn Ólafsson ákvað snemma að verða kafari
og segir köfun besta sport í heimi sem allir geti
stundað.
Héðinn hefur kafað í sjónum víða í kringum landið og
ákvað snemma að verða kafari. „Ég bjó á Raufarhöfn
sem krakki og þangað kom einu sinni kafari til að
skera net úr skrúfu á skipi í höfninni,“ segir Héðinn.
„Það var í fyrsta sinn sem ég sá kafara og mér fannst
þetta alveg svakalega spennandi og ákvað þarna á
staðnum að þetta ætlaði ég að gera. Karlinn pabbi var
trillukarl og mér fannst svo spennandi hvað þessi
heimur var alltaf nálægt manni en samt svo fjarlægur.
Maður hafði ekki hugmynd um hvað var þarna niðri.“
Héðinn dreif sig svo á námskeið í köfun árið 1999 og
var kominn með kennararéttindi tveimur árum síðar
auk þess sem hann sinnir ferðaþjónustu.
„Þetta er mín aðalatvinna en jafnframt áhugamál og
forréttindi að geta sameinað þetta tvennt. Minn uppá-
haldsköfunarstaður er Silfra á Þingvöllum en Silfra er
heimsþekktur köfunarstaður og á lista yfir topp tíu
flottustu köfunarstaði í heiminum. Þangað fer ég
mikið með ferðamenn og verð aldrei leiður á að
skoða.“
Héðinn er áhugamaður um lífið neðansjávar og
segir alltaf hægt að sjá eitthvað nýtt í sjónum.
„Að fara þarna niður og sjá hvernig þetta lítur út, til
dæmis á svæðinu kringum Raufarhöfn, er ótrúleg
upplifun. Þar getur maður líka farið út á bát og kafað
og verið nokkuð viss um að vera fyrsti maðurinn sem
kemur þarna. Everest er ekkert spennandi lengur því
þangað hafa allir farið.“
Héðinn blæs á það að köfun sé bara fyrir fjall-
hrausta eldhuga og fullyrðir að allir geti stundað
köfun.
„Það þarf að útrýma þessum misskilningi að köfun
sé bara fyrir einhverja útvalda. Í gamla daga þurftu
þetta að vera einhver heljarmenni en það er ekki leng-
ur. Sumum finnst erfitt að komast yfir þröskuldinn að
anda undir vatnsborðinu en í köfunarskólanum hjá
mér er farið í það skref fyrir skref, og það tekst öllum
að yfirstíga þetta. Við erum ekki í neinni vit leysu held-
ur gerum allt eftir bókinni og þá er þetta besta sport í
heimi,“ heida@frettabladid.is
Nýr heimur í djúpunum
Héðinn Ólafsson
segir undraheima
leynast undir
vatnsborðinu.
Engifer og sítrónu getur verið gott að
skera niður og setja út í tevatnið þessa
dagana. Flensufaraldurinn
stendur sem hæst og
um að gera að beita
öllum
mögu-
legum
vopn-
um í
baráttunni
við pestina.
Ferðastyrkir bjóðast nú þeim
sem þurfa að leita til talmeina-
fræðinga og eiga um langan
veg að fara til að sækja sér
þjónustuna. Sótt er um
styrkina hjá Trygginga-
stofnun ríkisins eða
umboðsmönnum
stofnunar-
innar.
Göngutúr getur gert manni
mjög gott þó að hann sé
ekki langur. Stundum er
ágætt að skreppa örstutt út
fyrir bæinn með einhverj-
um úr fjölskyldunni eða
góðum félaga og ganga
aðeins úti í náttúrunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
TILBOÐSDAGAR
15% - 70%
Dagana 20. febrúar - 1. mars
eru tilboðsdagar í Atson
Frábært úrval af leður- og roðvörum
með 15 - 70 % afslætti
Komdu og gerðu góð kaup!
Atson • Brautarholti 4 • s. 561-0060 • www.atson.is
OPNUNARTÍMI Á TILBOÐSDÖGUM
mán. - föst. 8.00 - 18.00
fi m. 8.00 - 19.00
laugard. 12.00 - 16.00