Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2008 11
Tíu ára ók um á fjórhjóli
Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af
tíu ára dreng sem ók á fjórhjóli um
götur Stokkseyrar á föstudagskvöldið.
Höfðu vegfarendur tilkynnt að legið
hefði við slysi vegna aksturs drengs-
ins. Er hann ósakhæfur en mál hans
verður sent barnaverndaryfirvöldum
til meðhöndlunar.
Innbrot í hesthús í Ölfusi
Verðmætum rafmagnsverkfærum var
stolið í innbroti í hesthús í byggingu
í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardags.
Meðal verkfæranna má nefna verk-
færakassa, borvélar, heftibyssur, slípi-
rokka og rafsuðuvél. Biður lögregla
þá sem veitt geta upplýsingar að hafa
samband í síma 480 1010.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SVEITARSTJÓRNIR „Skoðun Hvera-
gerðisbæjar snýr eingöngu að
virkjanaframkvæmdum í
nágrenni við bæinn sem haft geta
neikvæð áhrif á umhverfi og
lífsafkomu bæjarbúa,“ segir í
ályktun bæjarstjórnar Hvera-
gerðis, sem ítrekað hefur
andstöðu við fyrirhugaða
Bitruvirkjun.
Eins og fram hefur komið er
áætlað að áformað álver í
Helguvík fái raforku frá Bitru-
virkjun. Bæjarstjórn Hveragerð-
is segist ekki hafa tekið afstöðu
með eða á móti byggingu álvera
almennt. „Reynist Bitruvirkjun
nauðsynleg forsenda álvers telur
Hveragerðisbær nauðsynlegt að
leggjast gegn málinu öllu,“ segir
bæjarstjórnin hins vegar. - gar
Bæjarstjórn Hveragerðis:
Ítreka andúð á
Bitruvirkjun
HENGILSSVÆÐIÐ Bitruvirkjun er ætlað
að rísa á Hengilssvæðinu.
DÓMSMÁL Verktakafyrirtæki
hefur verið sýknað af bótakröfu
rúmlega fertugs manns vegna
vinnuslyss sem hann varð fyrir
árið 2001. Maðurinn féll niður af
grjóthrúgu á lóð við Skemmuveg
í Kópavogi og lenti á bakinu.
Hann hlaut 35 prósenta örorku.
Lögmaður mannsins hélt því
fram fyrir dómi að fyrirtækið
bæri skaðabótaábyrgð á slysinu
vegna aðstæðna á vinnustað.
Grjótið hefði verið hált og
öryggisbúnað vantað. Dómari
við Héraðsdóm Reykjavíkur
féllst ekki á þetta og úrskurðaði
að slysið væri rakið til óhappa-
tilviljunar. - sþs
Verktakafyrirtæki sýknað:
Féll á grjót á
eigin ábyrgð
www.lysi.is
Túnfi sklýsisperla:
DHA fi tusýra
Fæðubótarefni:
Asetýlkarnitín
og alfalípóiksýra
Æskubrunnur inniheldur þekkta samsetningu á fæðu-
bótarefnunum asetýlkarnitín og alfalípóiksýru ásamt
túnfi sklýsisperlu sem inniheldur hátt hlutfall af fi tusýrunni
DHA. Rannsóknir hafa sýnt að í heila okkar er að fi nna
umtalsvert magn af DHA enda er oft talað um fi sk sem
heilafæði. Saman eru þessi efni talin geta viðhaldið
heilbrigði fruma líkamans, stuðlað að góðu minni
og aukið orku.