Fréttablaðið - 19.02.2008, Qupperneq 18
[ ]Boltaleikir eru góð og skemmtileg hreyfing. Vertu þér úti um fótbolta og skoraðu vinnufélaga þinn eða nágranna á hólm og reynið hressilega á ykkur.
Sterk föðurímynd
gerir börnum gott
BÖRN SEM ERU Í GÓÐUM SAM-
SKIPTUM VIÐ FÖÐUR SINN VEGNAR
VEL.
Regluleg samskipti barna við feður
sína auka líkur á því að þau verði
hamingjusöm. Þetta kemur fram
í rannsókn á vegum Háskólans í
Uppsölum í Svíþjóð.
Niðurstöðurnar benda til þess
að börn sem eru í góðu sambandi
við föður sinn eða föðurímynd
reykja síður, komast síður í kast
við lögin,, gengur betur í skóla,
hafa betri orðaforða og mynda
betri tengsl við önnur börn. - ve
Það mæðir mikið á ungum stúlkum í dag og
ýmsar kröfur eru gerðar til þeirra. Ekki veitir
af því að læra sem fyrst að standa í fæturna og
treysta á eigið sjálf.
Alma Guðmundsdóttir, sem flestir kannast við úr
hljómsveitinni Nylon, ætlar um næstu helgi að bjóða
upp á sjálfstyrkingarnámskeið í annað sinn en hið
fyrra fór fram á haustmánuðum. Á námskeiðinu, sem
verður kennt á neðri hæð í versluninni Maður lifandi
í Borgartúni, er farið yfir framkomu, sjálfsmynd,
heilsu, hreyfingu, fjármál, markmiðssetningu og
margt fleira. Námskeiðið er annars vegar ætlað 13 til
15 ára stelpum og hins vegar 16 til 20 ára.
„Námskeiðið er ekki bara ætlað stelpum sem
hyggja á söng-, dans- eða fyrirsætuframa heldur bara
öllum stelpum sem vilja efla sjálfsmyndina,“ segir
Alma. Hún skipuleggur og heldur utan um námskeið-
ið en fær til liðs við sig kennara sem hafa reynslu á
hinum ýmsu sviðum. Má þar nefna Sólveigu Eiríks-
dóttur sem fjallar um næringu, dansarann Yesmine
Olsson, fegurðardrottninguna Unni Birnu Vilhjálms-
dóttur, leikarann Agnar Jón Egilson og Freyju Har-
aldsdóttir sem talar um að láta drauma sína rætast
þrátt fyrir fötlun.
„Hugmyndin að námskeiðinu kviknaði í fyrravor
þegar ég og vinkona mín, Edda Björg Pétursdóttir
fyrirsæta, vorum að ræða um hvað okkur fannst
vanta í svona námskeiðshaldi og hvað við hefðum
sjálfar viljað læra á þessum aldri. Okkur fannst vanta
margþætta fræðslu sem kæmi inn á ýmsa hluti sem
ekki eru kenndir í skólum.“
Alma nefnir fjármálafræðslu sem dæmi. Hún segir
bankana koma með kynningar í menntaskólana og
geta krakkar fengið debetkort og yfirdrátt án mikilla
vandkvæða. „Þó að yngstu stelpurnar standi kannski
ekki frammi fyrir því er gott að leggja grunninn og
kenna þeim að fara varlega. Sömuleiðis að benda á
hvernig er hægt að ávaxta peningana sína,“ segir
Alma.
Þá segir hún skipta máli að læra réttu handtökin
við förðun. „Stelpurnar fá aðstoð við litaval og læra
að gera hlutina vel. Þær fá þjálfun í að koma fram og
að sigrast á feimni og allir þættir námskeiðsins miða
að því að byggja stúlkurnar upp með markvissum
hætti.“
Alma segir skráningu á námskeiðið hafa farið fram
úr björtustu vonum. „Það fer hver að verða síðust að
skrá sig en það er hægt að gera á namskeid.com.“
vera@frettabladid.is
Margþætt stelpufræðsla
Alma Guðmundsdóttir skipuleggur og heldur utan um sjálf-
styrkingarnámskeið fyrir ungar stúlkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Spönsku gardínurnar
komnar
Sófalist
Sófalist, Garðatorgi Garðabæ S. 553 0444, www.sofalist.is
Glæsileg spönsk
rúmteppi
Sófaáklæði,
mikið úrval
Leigjum út
stólaáklæði fyrir
veislur
Borðaðu
þig granna(n)
Nánari upplýsingar
Sími 865-8407
www.vigtarradgjafarnir.is
6. - 9. mars
Upledger stofnunin á Íslandi heldur fyrsta áfangann í námi í
höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð, CSTI,
6. - 9. mars næstkomandi í Reykjavík.
Heilunarskóli Skógarsetursins
Grensásvegi 50
TRANSNÁMSKEIÐ
Helgarnámskeið 1. og 2. mars.
Gott alhliða grunnnámskeið fyrir byrjendur og
nauðsynlegur undirbúningur fyrir transheilun sem
kennd verður í maí.
JOHN ALEXANDER
Skoski miðillinn John Alexander kemur til landsins
í apríl og verður með námskeið í miðlun helgina
19. og 20. apríl.
Hann verður einnig með einkatíma.
Skráning er hafi n, en ennþá eru nokkur pláss laus.
NÆSTU NÁMSKEIÐ OG VIÐBURÐIR:
Sigrún
Gunnarsdóttir
LÆKNAMIÐILL
Skráning og uppl. um Heilunarskólann og starfsemi Skógarsetursins eru
í síma 5551727 og á heimasíðu Skógarsetursins www.skogarsetrid.is
www.madurlifandi.is
Næstu fyrirlestrar og námskeið
21. febrúar 18:00 - 21:00
Heilsukostur - Matreiðslunámskeið
Auður I. Konráðsdóttir meistarakokkur
28. febrúar kl 18:00 - 20:00
Heilsukostur - Kökur og eftirréttir
Auður I. Konráðsdóttir meistarakokkur
04. mars 17:30-19:00
Erum við andleg og líkamleg eiturefna-úrgangs-
ruslaskrímsli?
Edda Björgvins leikkona
12. mars kl. 20:00 - 22:00
Hvað á ég að gefa litla barninu mínu að borða?
Ebba Guðný Guðmundsdóttir kennari
G
O
T
T
F
O
L
K