Fréttablaðið - 19.02.2008, Side 22
19. FEBRÚAR 2008 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● húsbyggjandinn
Öllum framkvæmdum fylgir
mikið ryk og drasl. Hreingern-
ingar ehf. bjóða upp á sérstaka
þjónustu og þrífa húsnæði
hátt og lágt eftir framkvæmdir.
„Við getum nánast leyst öll hugsan-
leg hreinsunarverkefni sem koma
upp á borð til okkar,“ segir Bacha
Terfasa hjá Hreingerningum ehf.
en fyrirtækið veitir alhliða þjón-
ustu í heimilisþrifum, ræstingum
og almennum hreingerningum.
„Við tökum að okkur gluggaþvott,
gólfbónun og teppahreinsun svo
eitthvað sé nefnt. Ekkert verk er
of stórt eða lítið, hvort sem um er
að ræða einstök verk eða samning
um reglubundna þjónustu,“ segir
Bacha.
Það er óhætt að segja að þeir
hjá Hreingerningu ehf. veigri sér
ekki við að ráðast í öll hugsan-
leg verkefni sem snúa að þrifum.
Á heimasíðu fyrirtækisins www.
hreingerningar.is má finna skil-
greiningar á þeim verkþáttum
sem fyrirtækið tekur að sér. Að-
spurður segir Bacha að verkferlið
hjá þeim sé þannig að þeir komi
á staðinn og meti verkið og geri
síðan tilboð.
„Framkvæmdaþrif eru vinsæl
þjónusta sem fólk er farið að nýta
sér mikið. Öllum framkvæmd-
um fylgir mikið ryk og drasl. Þó
að breitt sé yfir hluti er alltaf
eitthvað sem þarf að þrífa eftir
að verki lýkur,“ bendir Bacha á.
„Veggir, loft, gluggar og gólf eru
oft og tíðum þakin óhreinindum
eftir framkvæmdir. Þá er tilvalið
að fá okkur á staðinn og við gerum
allt klárt í hólf og gólf.“ Eins og
allir vita getur verið tímafrekt að
standa í framkvæmdum. Algengt
er orðið að fólk kjósi að nýta sér
þessa þjónustu og spari með því
tíma og peninga.
Bacha er sannfærandi þegar
hann segir að „vel bónað gólf
sendi frá sér jákvæð skilaboð til
allra sem sjá“. - vg
Rykið á bak og burt
„Framkvæmdaþrif eru vinsæl þjónusta,“ segir Bacha Terfasa hjá Hreingerningum ehf.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Við Bíldshöfða er Byggingafélag Gylfa og Gunn-
ars að byggja átta þúsund fermetra skrifstofu-
húsnæði á átta hæðum.
„Þetta eru átta hæðir og um átta þúsund fermetr-
ar en verklok eru áætluð haustið 2009,“ segir Gylfi
Ómar Guðjónsson hjá BYGG, Byggingarfélagi Gylfa
og Gunnars. „Þetta er framhald af öðru skrifstofu-
húsnæði sem við byggðum þarna við hliðina. Það
verður stór bílakjallari, mikið af stæðum inni á lóð-
inni og hver hæð um þúsund fermetrar.“
Húsnæðið hentar öllum fyrirtækjum og er ekki
bundið ákveðinni starfsemi. Hæðirnar geta skipst
niður í margar einingar. Útsýnið verður glæsilegt
yfir Reykjavík og sundin blá.
Spurður hvort BYGG óttist ekki samdrátt í þjóð-
félaginu svarar Gylfi því til að mikil eftirspurn
hafi verið undanfarið og að húsið sem þeir byggðu
við hliðina á því sem þeir eru að byggja núna, og er
mjög keimlíkt nýja húsinu, sé allt farið á leigu. „Það
getur orðið samdráttur um tíma, maður veit ekkert
um það. Þetta hefur gengið í bylgjum. Það tekur tvö
ár að byggja og maður veit ekkert hvernig tíminn
verður eftir tvö ár,“ segir Gylfi.
BYGG var stofnað árið 1984 af Gylfa, sem er
múrarameistari, og Gunnari Þorlákssyni húsasmíða-
meistara. Félagið hefur byggt um 2.000 íbúðir og
tugþúsundir fermetra af atvinnuhúsnæði og sérhæft
sig í leigu á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. - nrg
Átta þúsund fermetrar
á átta hæðum
Glaðir iðnaðarmenn Byggingafélags Gylfa og Gunnars sem
stefna á verklok haustið 2009.
Stór bílakjallari verður í húsinu.
Verkið er á grunnstigi og verið að slá upp grunninum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVAÐ ER VERIÐ AÐ BYGGJA?
M
YN
D
/O
N
N
O
Skrifstofuhúsnæðið verður átta þúsund
fermetrar á átta hæðum.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir