Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 33

Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2008 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 455 5.184 +1,33% Velta: 5.154 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,97 +1,14% ... Bakkavör 46,00 +0,88% ... Eim- skipafélagið 30,40 +0,83% ... Exista 12,58 +2,61% ... FL Group 10,24 +3,23% ... Glitnir 18,40 +1,94% ... Icelandair 26,45 +1,34% ... Kaupþing 755,00 +0,67% ... Landsbank- inn 29,20 +1,57% ... Marel 94,30 -1,57% ... SPRON 5,92 +2,42% ... Straumur-Burðarás 12,60 +1,78% ... Teymi 5,30 +1,15% ... Össur 92,00 +0,66% MESTA HÆKKUN FL GROUP 3,23% EXISTA 2,61% SPRON 2,42% MESTA LÆKKUN MAREL 1,57% EIK BANKI 0,23% Umsjón: nánar á visir.is „Við erum að skoða mögulega lokun, en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin,“ segir Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Bakkavarar. Fyrirtækið íhugar að loka pastaverksmiðju í Scun thorpe á Englandi þar sem starfa rúm- lega hundrað manns. Ásdís segir að hráefnisverð hafi hækkað mikið, einkum verð á hveiti og eggjum. Þá hafi orðið samdráttur í sölu, verksmiðjan sé rekin með tapi. Hún segir að fyrir- tækið eigi nú í viðræðum við stjórnendur og starfsmenn um framhaldið. Ákvörðun um hvort lokað verði í Scunthorpe á að liggja fyrir innan þriggja mánaða. Verksmiðjan fylgdi með kaupum Bakkavarar á matvælafyrirtæk- inu Geest árið 2005. - ikh Yfir hundrað störf í uppnámi Tap Aska Capital á fjórða árs- fjórðungi síðasta árs nemur 996 milljónum króna samkvæmt upp- gjöri sem birt var í gær. Tap árs- ins í heild nemur 861 milljón króna. Gjaldfærsla Aska vegna fjár- festinga tengdum undirmáls- lánum nemur 2,1 milljarði króna á árinu og engar eignir eftir sem tengjast húsnæðislánum í Banda- ríkjunum. Eignir bankans í árslok 2007 námu 34,3 milljörðum króna, en voru 15 milljarðar í byrjun ársins. Þá kemur fram að eiginfjárhlut- fall bankans (CAD) hafi verið 18,5 prósent. Tryggvi Þór Herbertsson, for- stjóri Aska, segir miklu hafa verið áorkað á fyrsta starfsári bankans, en hann var stofnaður í desember 2006. Hann bendir á að þóknana- tekjur bankans hafi numið 2,2 milljörðum króna og segir góðan árangur á fyrsta rekstrarári. Hann segir aðstæður á fjármála- mörkuðum heims hafa breyst verulega á síðustu mánuðum og að fjárfestar horfi í auknum mæli til annars konar fjárfestinga en hefðbundinna fjárfestinga í hluta- bréfum og skuldabréfum. Stefna Askar Capital segir hann falla vel að þessum umskiptum. - óká Í ÁRSLOK 2006 Stofnun Aska Capital var kynnt í desember 2006. Starfsemi bankans skiptist í sex tekjusvið; áhættu- og fjármögnunarráðgjöf, eignastýringu, fasteignaráðgjöf, eigin viðskipti, lánasvið og bílalánafyrirtækið Avant. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Askar töpuðu nærri milljarði króna Ný stjórn Glitnis undir forystu Þorsteins Más Baldurssonar, verðandi stjórnarformanns, mun samkvæmt heimildum Markaðar- ins einbeita sér að því að skera niður rekstrarkostnað. Þorsteinn Már er þekkur fyrir að beita sér fyrir aðhaldi í rekstri. Aðal fundur Glitnis verður haldinn næsta mið- vikudag. Þá herma heimildir Markaðar- ins að breytingar verði gerðar á yfirstjórn bankans og hún styrkt að einhverju leyti. Orðrómur hefur verið um að nýr maður setj- ist í stól Lárusar Welding for- stjóra, en hann hefur ekki fengist staðfestur. - óká/ss Búist við breyt- ingum hjá Glitni 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á árinu 2007 2. Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur félagsins árið 2007 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á árinu 2007 4. Tillaga til breytinga á sam- þykktum félagsins1) 5. Tillaga stjórnar um starfs- kjarastefnu félagsins 6. Kosning stjórnar 7. Kosning endurskoðanda 8. Ákvörðun um þóknun stjórnar fyrir næsta kjörtímabil 9. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum fyrir hönd félagsins 10. Önnur mál Dagskrá: Aðalfundur SPRON hf. A R G U S / 0 8 -0 0 9 0 Aðalfundur SPRON hf. verður haldinn í Borgarleikhúsinu við Listabraut í Reykjavík miðvikudaginn 27. febrúar 2008 kl. 17.00. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent hlut- höfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað í fundarbyrjun. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 17.00. Framboðum skal skila skriflega til forstjóra.2) Dagskrá fundarins ásamt tillögum liggja frammi til sýnis í Ármúla 13a í Reykjavík og eins má nálgast þær á heimasíðu SPRON, www.spron.is. Stjórn SPRON hf. Reykjavík, 19. febrúar 2007 1) Gerð tillaga um að aðalfundur samþykki orðalagsbreytingu á 13. gr. samþykkta félagsins þess efnis að 5% takmörkun atkvæðis- réttar taki bæði til beinna og óbeinna yfirráða atkvæðisréttar. 2) Skv. 2. mgr. 63. gr. a. í lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, með síðari breytingum, skal í tilkynningu um framboð til stjórnar gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Árshátíðir - Fundir - Ráðstefnur Treystu fagfólki fyrir þínu teiti     Hjá okkur færðu sali, veitingar, tæknibúnað og viðburðarstjórnun. Ef þú hefur salinn, getum við sent veitingar með eða án þjónustu. Þú mætir á staðinn, allt er tilbúið og þú hefur engar áhyggjur. 20 ára reynsla skilar þér vönduðum og eftirminnilegum viðburði. Teiti, veisluþjónusta Broadway Ármúla 9 108 Reykjavík - Sími: 533-1100 - teiti@teiti.is - www.teiti.is Skoðaðu árshátíðar vídeóin á teiti.is Sendu okkur fyrirspurn á teiti.is Veisluþjónusta Broadway

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.