Fréttablaðið - 19.02.2008, Side 34

Fréttablaðið - 19.02.2008, Side 34
18 19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is Þennan dag árið 2004 var Simon Wiesenthal sæmdur riddarakrossi bresku krúnunnar fyrir ævilangt starf í þágu mannkyns. Wiesenthal, sem var byggingaverkfræðingur að mennt, var austurrískur gyðingur. Hann var í fjögur ár í útrýmingarbúðum nasista en lifði hel- förina af. Eftir vistina vóg Wiesenthal, sem var 180 sentimetrar að hæð, einungis 40 kíló. Þegar hann hafði náð heilsu helgaði hann líf sitt því að safna upplýsingum um nasistaforingja og leita þá uppi svo hægt væri að sækja þá til saka fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu. Simon Wiesenthal-stofnunin var nefnd eftir honum en hún stendur vörð um réttindi gyðinga og hefur haft uppi á nokkrum nasistaforingjum frá því að hún var stofnuð árið 1977. Á áttunda áratugnum blandaði hann sér í austurísk stjórnmál. Hann hélt því fram að all- nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn Brunos Kreisky hefðu verið nasistar. Wiesenthal fékk margar morðhótanir um ævina. Hann lést í svefni árið 2005. ÞETTA GERÐIST: 19. FEBRÚAR 2004 Wiesenthal sæmdur riddarakrossi SIMON WIESENTHAL LEIKARINN BENICIO DEL TORO FRÁ PÚERTÓ RÍKÓ ER 41 ÁRS Í DAG. „Ég er ekki Jack Nicholson og ekki Brando. En ég muldra.“ Del Toro hefur bæði unnið til Ósk- ars- og Golden Globe-verðlauna. Hann er best þekktur fyrir hlut- verk sín í myndunum The Usual Suspects, Traffic og Sin City. MERKISATBURÐIR 1600 Perúska eldfjallið Huayn- aputina springur, svo úr verður mesta eldgos í sögu Suður-Ameríku. 1878 Thomas Edison fær einka- leyfi á grammófóninum. 1881 Kansas verður fyrsta ríki Bandaríkjanna til að leyfa sölu alkóhóls. 1976 Ísland slítur stjórnmála- sambandi við Bretland vegna deilunnar um fisk- veiðilögsögu Íslands. Samband komst aftur á eftir rúma þrjá mánuði. 1992 Kvikmyndin Börn nátt- úrunnar er tilnefnd til Óskars verðlaunanna sem besta erlenda kvikmynd- in. Hún hlaut þó ekki verðlaunin. Alyson Judith Kirtley Bailes, sendi- herra og gestaprófessor við Háskóla Íslands, var í síðustu viku sæmd Stór- riddarakrossi hinnar konunglegu sænsku Norðurstjörnuorðu. Alyson er heimsþekktur fræðimaður á sviði ör- yggis- og varnarmála. Hún var for- stöðumaður Stockholm International Peace Research Institute, SIPRI, á ár- unum 2002-2007 en stofnunin er leið- andi á sviði rannsókna um stríð og frið í heiminum. Norðurstjörnuorðan er eingöngu ætluð erlendum ríkisborg- urum og hefur fáum konum hlotnast þessi heiður. Alyson er fædd og uppalin í Bret- landi. Hún starfaði lengst af hjá bresku utanríkisþjónustunni og tók að sér mörg alþjóðleg verkefni. Árið 2000 var hún sendiherra Bretlands í Finn- landi en var síðan ráðin forstöðumað- ur SIPRI. „Þar var ég í forsvari fyrir 55 alþjóðlega starfsmenn og gaf meðal annars út hina virtu SIPRI árbók á hverju sumri en í henni er farið yfir tölfræði og þróun varnarmála á árinu,“ segir Alyson. Hún hefur skrifað fjölda fræðigreina um öryggis- og varnarmál í Evrópu og ferðast heimshorna á milli til að halda ræður og fyrirlestra. Sem forstöðumaður SIPRI lagði hún ríka áherslu á að mynda góð tengsl við hinar ýmsu rannsóknarstofnanir inn- anlands sem utan. Hún vakti athygli á allri þeirri fjölbreyttu útgáfu sem stofnunin stendur fyrir og myndaði góð tengsl við sænska þingið og ríkis- stjórnina. Þetta gerði henni kleift að auka hróður stofnunarinnar jafnt á innlendri sem erlendri grund. „Ég tel að velgengnina megi ekki síst rekja til þess að ég hafði kynnst Svíþjóð á mínum yngri árum og átti því auðvelt með að tjá mig og eiga samskipti á sænsku,“ útskýrir Alyson. Hún segist ekki einungis líta á viður- kenninguna sem heiður fyrir sig held- ur fyrir stofnunina í heild. „Heiðurinn skiptir mig þó líka máli persónulega því Svíþjóð hefur verið mér mikils virði í gegnum árin og haft mótandi áhrif á líf mitt og starf.“ Eftir fimm ára krefjandi starf hjá SIPRI segist Alyson hafa ákveðið að gera sér eitthvað til skemmtunar. „Mig hafði alltaf dreymt um að búa á Íslandi. Faðir minn sagði mér Íslend- ingasögurnar þegar ég var lítil og það kveikti áhuga minn. Ég kom fyrst til landsins árið 1982 og var svo heilluð að ég kom til baka á hverju ári.“ Aly- son segir að það hafi því verið henni eigin legt að finna leið til að geta starf- að hér á landi. „Í tengslum við mín fyrri störf hef ég verið svo heppin að fá tækifæri til að byggja upp samvinnu við stjórnmála- fræðiskor Háskóla Íslands. Mér var í fyrstu boðið að koma hingað sem gesta- fyrirlesari en var svo boðin gestapróf- essorsstaða við stjórnmálafræðiskor skólans í tvö ár.“ Alyson flutti til lands- ins í sumar og keypti sér íbúð á Sjá- landi þar sem hún unir sér mjög vel. „Ég hef eignast marga góða vini og er síðan að syngja með Regnbogakonum sem er alþjóðlegur kór í Reykjavík. Ég kenni þrjú námskeið þetta ár sem öll tengjast nýjum áherslum í varnarmál- um að einhverju leyti. Ég hef auk þess verið að byggja upp tengsl milli SIPRI og Íslands og hafa þó nokkrir sérfræð- ingar stofnunarinnar sótt landið heim.“ vera@frettabladid.is ALYSON BAILES: SÆMD STÓRRIDDARAKROSSI Alltaf haft dálæti á Íslandi Alyson er gestaprófessor við stjórn- málafræðiskor Háskóla Íslands. Hún kynntist Íslendingasögunum sem barn og var heilluð af landinu frá fyrstu kynnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Snorri Þór Rögnvaldsson húsgagnasmíðameistari, Goðabyggð 12, Akureyri, andaðist á FSA miðvikudaginn 13. febrúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Margrét Hrefna Ögmundsdóttir Ögmundur Snorrason Deslijati Zjarif Oddný Stella Snorradóttir Níels Einarsson Rögnvaldur Örn Snorrason Kristjana Jóhannsdóttir Ingibjörg Halla Snorradóttir Hreinn F. Arndal Kolfinna Hrönn Snorradóttir Raymond Sweeney Hanna Margrét Snorradóttir Thomas Tue Jensen og barnabörn. Ástkær móðir okkar og amma, Guðrún Elvan Friðriksdóttir lést á gjörgæsludeild Landspítalans fimmtudaginn 14. febrúar. sl. Fyrir hönd aðstandenda, Arnar Haukur Ómarsson Katrín Inga Hólmsteinsdóttir Fjóla Sigurbjörg Ómarsdóttir Pétur Sigurðsson Þröstur Ránar Þorsteinsson Halldór Nordquist Grímsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jónína Hannesdóttir Skálagerði 15, Reykjavík, áður til heimilis að Kolbeinsgötu 6, Vopnafirði, lést á Vífilsstöðum þann 14. febrúar síðastliðinn. Hólmfríður Kjartansdóttir Sigurður Adolfsson Inga Hanna Kjartansdóttir Kjartan Þórir Kjartansson Áshildur Kristjánsdóttir Baldur Kjartansson Hrönn Róbertsdóttir Erla Kjartansdóttir Ágúst Borgþór Sverrisson börn og barnabörn. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur vin- áttu og samhug við fráfall og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Helga Sigurðssonar frá Vestmannaeyjum, Dvalarheimilinu Skálarhlíð á Siglufirði, sérstakar þakkir til starfsfólks Skálarhlíðar og Sjúkrahúss Siglufjarðar. Jóhanna Helgadóttir Guðmundur Magnússon Elínborg Helgadóttir Guðmundur Þór Kristjánsson Símon Helgason Helen Meyers barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Geir Gíslason fv. flugmaður Strandgötu 73b, Hafnarfirði, lést 12. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Erna Þorsteinsdóttir Anna Geirsdóttir Vilhjálmur Bjarnason Geir Harrýsson Erna Rut Vilhjálmsdóttir Gísli Vilhjálmsson. Föðurbróðir okkar, Sigurgeir Guðfinnsson fyrrverandi vélstjóri frá Keflavík, lést laugardaginn 2. febrúar sl. á Hrafnistu, Hafnarfirði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðfinna Sigurþórsdóttir Guðmundur Guðmundsson Guðný M. Guðmundsdóttir Jóhanna Sigurþórsdóttir Þorgerður J. Guðmundsdóttir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.