Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 48

Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur 9.12 13.41 18.13 9.04 13.26 17.50 Í dag er þriðjudagurinn 19. febrúar, 50. dagur ársins. Þrír menn fæddir á árunum 1980, 1982 og 1984 voru um daginn dæmdir í héraðsdómi fyrir stór- felldasta smygl á fíkniefnum sem komið hefur upp á Íslandi í ein- stöku máli. Sá sem þyngstan dóm hlaut var dæmdur í níu og hálfs árs fangelsi, einn í sjö ára og fimm mánaða fangelsi og sá þriðji í sjö ára fangelsi. Þurfa þeir að afplána tvo þriðju hluta dómanna áður en þeir eiga möguleika á reynslu- lausn. SEM venja er tjáir lítt að deila við dómarann enda eru þessir dómar í samræmi við þá ótrúlegu refsigleði sem tíðkast í fíkniefnamálum. Ég kemst samt ekki hjá því að velta fyrir mér hvaða tilgangi refsingar sem þessar þjóna. Verður sá maður sem þyngstan dóm hlaut betri maður við að sitja inni til 2017? Býst einhver í veröldinni við því að hann komi galvaskur úr fangelsi 37 ára gamall og þá loksins orðinn nýtur og gegnheill þjóðfélagsþegn? Ég held ekki. Dómar sem þessir eru því ekki aðeins heimskulegir í tilgangsleysi sínu heldur einnig grimmdarlegir og dómstólum til skammar. LEYFI fólk sér þó að gagnrýna langa dóma upphefst alltaf mikill grátkór góðs fólks sem vill enga glæpi eða glæpona í námunda við sig. Oft eru grátkórmeðlimirnir vissir um að allir þeir sem komi að sölu og dreifingu á eiturlyfjum séu nær yfirnáttúrulega vondir menn sem viti ekki betri skemmtan en að leiða saklaust fólk út á glapstigur fíkniefnadjöfulsins. Fíklarnir sjálf- ir eru svo útmálaðir sem fórnar- lömb sem „lenda barasta“ í klóm eiturlyfjanna. Yfirleitt sýnist mér þó að skammur vegur sé á milli þessara tveggja hópa, eiginlega sé þetta bara einn og sami hópurinn. BERI ég þessa dóma svo saman við kynferðisbrotadóma verð ég sjóð- andi ill. Lítum til að mynda á mál Jóns Péturssonar sem síðasta sumar var dæmdur í héraðsdómi í fimm ára fangelsi fyrir frelsis- sviptingu, nauðgun og hrottafengna líkamsárás á fyrrverandi sambýlis- konu sína. Nokkrum mánuðum áður en Jón framdi þessa glæpi hafði hann verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir ítrekaðar nauðganir og árásir gagnvart annarri konu en það brot Jóns þótti þó ekki þess eðlis að nauðsynlegt þyrfti að hafa á honum almennilegar gætur og því var honum ekki stungið inn strax. Mennirnir í Pólstjörnumál- inu voru þó hafðir lokaðir inni frá því þeir voru teknir í september og því augljóst að miklu verra þykir að ætla sér að selja eiturlyf til vilj- ugra kaupenda en að nauðga og hálfdrepa konur. Blint réttlæti og heimskulegt FYRIR LAND OG ÞJÓÐ PAJERO SAMEINAR KRAFTINN OG ÞÆGINDIN Íslenskir vegir gera kröfur um fullkomið fjórhjóladrif með 100% læsingu að aftan og stöðugleikastýringu. Íslenskir ökumenn gera kröfur um skemmtilegan drifkraft, frábæran aukabúnað og þægindi fyrir allt að sjö manns. Komdu og finndu hvernig Pajero stendur undir þessum kröfum lands og þjóðar. F í t o n / S Í A 170 HESTÖFL – DREGUR 3.300 KG STÖÐUGLEIKASTÝRING - SPÓLVÖRN ÞAKBOGAR - SUPER SELECT® 4X4 DRIFBÚNAÐUR - SJÖ SÆTA - DÖKKAR RÚÐUR - 100% LÆSING AÐ AFTAN Verð frá 5.190.000 kr. SJÁLFSKIPTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.