Fréttablaðið - 12.03.2008, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 12. mars 2008 19
UMRÆÐAN
Efnahagsmál
Þorvaldur Gylfason skrifar í Fréttablað-
ið fyrir skemmstu og
fer þar mikinn í umfjöll-
un um bankakreppuna
og gjaldmiðilsmál. Þar
eru grafalvarleg vanda-
mál fjármálamarkaðar-
ins í landinu afgreidd
sem hrapalleg mistök eigenda,
stjórnmálamenn sem óábyrgir
kjánar og hugmyndir um annan
gjaldmiðil en evru eða krónu sem
óábyrgar furðuhugmyndir. Vanda-
málin eru sem sagt heimska mann-
anna og hana þurfa prófessorar svo
sem ekki að ræða!
Greinin er reyndar mjög dæmi-
gerð fyrir þennan greinda fræði-
mann sem oft á athyglisverð inn-
skot í þjóðmálaumræðuna en er
samt oftar en ekki of bölsýnn og
neikvæður til þess að hitta í mark.
Vindgangur vanmetakenndar
Þegar Þorvaldur afgreiðir hug-
myndir um svissneskan franka sem
furðuhugmynd manna með lélegt
hagskyn fer lítið fyrir rökum. Sama
á reyndar við um fleiri sem hafa
reynt að skáka hugmyndinni út af
borðinu með sleggjudómum. Hjá
prófessornum örlar reyndar á sam-
ræðu þar sem hann nefnir að þessa
leið, þ.e. upptöku hins svissneska
franka, hafi aðrar Skandínavíuþjóð-
ir ekki hugleitt! Síðar segir Þor-
valdur að upptaka myntar af öðru
svæði sé leið utangarðsþjóða eins
og Svartfellinga. Sjálfur hef ég
notið gestrisni Svartfellinga þegar
ég var þar við kosningaeftirlit fyrir
nokkrum árum og tel þá eiga betri
einkunn skilið en að vera taldir
utangarðsmenn. Það er enda svolít-
ið skoplegt ef Evrópusambands-
sinnar geta ekki talað um íslenskt
efnahagslíf öðru vísi en að bera
okkur saman við millj-
ónaþjóðir. Þá er von
vindgangs.
Líklega er Liechten-
stein líka einhvers
konar óvirðulegt utan-
garðs- og glæparíki en
íbúafjöldi þar er tíundi
hluti þess sem hér er og
þeir nota svissneskan
franka með formlegu
myntbandalagi við
Sviss frá 1980. Og Liect-
enstein er aðili að EES eins og við.
Að vera smáþjóð
Við Íslendingar hljótum og eigum
að bera kjör okkar saman við það
besta og hefur þar orðið vel ágengt,
þökk sé fullveldi landsins og far-
sælli stjórn. En það eru alvarlegar
ranghugmyndir þegar menn bera
heildarafl og möguleika hagkerfis
hjá 300 þúsund manna þjóð saman
við það sem er hjá milljóna þjóð-
um. Meira að segja hin Norður-
löndin eru of stórar hagfræðiein-
ingar til samanburðar. Við eigum
ekki að hafa minnimáttarkennd
yfir smæðinni, en þurfum að taka
mið af henni.
Frá 1997 hefur verið gerð sér-
stök og djörf tilraun til að láta
gjaldmiðil okkar litla hagkerfis
fljóta á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum. Það eru engin dæmi
um svo lítinn gjaldmiðil í þeim
ólgusjó, ekki í allri veraldarsög-
unni. Íslenski seðlabankinn er
vegna smæðar sinnar tæplega fær
um að veita íslensku viðskipta-
bönkunum eðlilega starfstrygg-
ingu í ólgusjó alþjóðaviðskipta.
Aðalatriðið er þó að það er mikill
kostnaðarauki af því fyrir almenn-
ing og atvinnulífið að búa við
örsmáa sveiflugjarna hávaxta-
mynt. Ofurvextir og verðtrygging
eru að sliga alla hina efnaminni í
samfélaginu. Því er það skylda
stjórnvalda að ræða þetta mál og
leita lausna.
Til skamms tíma hafa fulltrúar
Sjálfstæðisflokks verið tregir til
viðræðu um gjaldmiðilsmál en við
sjáum nú sólarmerki breytinga
með framtíðarleiðtogum þess
flokks. Það er vel og mín von er að
þeim takist jafnvel að ruska við
forsætisráðherra landsins sem er
nú farinn að taka stjórnarandstöð-
unni heldur ólundarlega.
Erum í tilraunastarfi
Það að Svisslendingar hafa gert
myntbandalag við granna sína segir
að sú leið kann að vera möguleg. Ef
rétt er að reikna megi með áhuga
Svisslendinga á myntbandalagi við
önnur lönd eru það mikilvæg rök.
Það er algerlega ljóst að með sviss-
neskum franka fengi Ísland mestan
ef ekki allan sama ávinning og næð-
ist með evru. Traust þess gjaldmið-
ils á alþjóðavettvangi er síst lakara
en evrunnar.
Önnur leið sem ber að skoða er að
stjórnvöld leggi formlega blessun
sína yfir upptöku á margri erlendri
mynti í fjölmyntarsamfélagi. Allt
væru þetta vissulega tilraunir en
við erum líka í tilraunastarfi í dag
og höfum verið frá a.m.k. 1997. Það
breytir engu þó að milljónaþjóðir í
nágrenni við okkur hafi ekki opin-
berlega hugleitt þessar sömu leiðir.
Þær hafa heldur ekki þurft að gera
tilraun með fljótandi örmynt. Við
þurfum í mörgu að fara aðrar leiðir
en hinar fjölmennari þjóðir.
Þeir sem telja sjálfsagt að bera
myntkerfi íslensku krónunnar og
hagkerfið okkar saman við það
þýska eða breska en er síðan gróf-
lega misboðið þegar minnst er á
Liechtenstein eða Svartfjallaland
skulda okkur rökstuðning sem
byggir á öðru en því að þá langi til
að vera hluti af milljónaþjóð. Sjálf-
ur er ég hæstánægður með að til-
heyra smáríki og skora á krata
þessa lands að vera það nú líka.
Höfundur er alþingismaður.
BJARNI HARÐARSON
Svissneski frankinn er möguleg leið
UMRÆÐAN
Greiðsluerfiðleikar
Að steypa sér í skuldir er auð-
velt. Að koma sér
upp úr skuldafeninu
er mun erfiðara. Ef
þú þorir ekki að opna
gluggaumslögin er
það vísbending um
að þú verðir að leita
þér aðstoðar sem
fyrst. Greiðsluerfið-
leikar eru vaxandi
vandamál hér á landi
og það er mikilvægt
að grípa strax inn í
áður en vandamálið
verður óyfirstígan-
legt. Allir geta á lífs-
leiðinni lent í erfið-
leikum með
fjármálin sín. Ýmis
óvænt atvik geta
komið upp sem
breyta öllu varðandi fjárhag-
inn, t.d. veikindi, atvinnuleysi,
óvænt tekjulækkun, skilnaður
og fleira.
Átaksvika Hjálparsíma Rauða
krossins 1717 fjallar að þessu
sinni um greiðsluörðugleika og
er unnin í samstarfi við Ráð-
gjafarstofu um fjármál heimil-
anna. Ætlunin er að auðvelda
fólki í greiðsluörðugleikum að
stíga fyrstu skrefin til að leita
sér aðstoðar. Hjálparsíminn er
alltaf opinn, það kostar ekkert
að hringja í 1717 og trúnaður er
alger. Þeir sem hringja í Hjálp-
arsímann geta létt á hjarta sínu
og fengið leiðbeiningar um
hvernig þeir eigi að leita sér
aðstoðar Ráðgjafar-
stofu vegna greiðslu-
erfiðleika.
Það er brýnt sam-
félagslegt kappsmál
að aðstoða þá sem
eiga í greiðsluerfið-
leikum. Sextán aðil-
ar koma að rekstri
Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna
og þar á meðal er
Rauði kross Íslands.
Ráðgjöf vegna
greiðsluerfiðleika
hjá Ráðgjafarstofu
er endurgjaldslaus
og óháð búsetu
umsækjanda. Þeir
sem búa á höfuð-
borgarsvæðinu koma
í viðtöl, en þeim sem
búa á landsbyggð-
inni gefst kostur á að
póstsenda mál til
stofunnar. Einnig er
símaráðgjöf alla
virka daga kl. 9.00-12.00 og
13.00-15.00. Netspjall er á
heimasíðu (www.rad.is) á sama
tíma.
Mikilvægt er að gera eitthvað
strax varðandi greiðsluerfið-
leika – ekki bíða. Eftir því sem
beðið er lengur er verið að búa
til stærra vandamál sem erfið-
ara verður að leysa. Hringdu í
Hjálparsíma Rauða kross
Íslands 1717 og þú ert kominn
nær því að leysa vandann.
Helga er sviðsstjóri innanlands-
sviðs Rauða kross Íslands og
Ásta er forstöðumaður Ráðgjaf-
arstofu um fjármál heimilanna.
Þorirðu ekki að
opna þau?
ÁSTA S. HELGADÓTTIR
HELGA G.
HALLDÓRSDÓTTIR
TB
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
\
9
08
03
58
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is • Póstsendum um allt land
Opið mán. – fös. 10 – 18, laugard. 10 – 16, lokað sunnud.
Snjókorn falla og verðið líka!
Lynx-sleðar á tilboði!
50.000 k
r.
bensínú
ttekt me
ð
2007 árg
erðinni
Tilboðsverð
1.430.000 kr.
Listaverð
1.530.000 kr.
RAVE RC 800 POWER TEK
Árgerð 2007
RAVE RC 600 SDI
Árgerð 2007
X-TRIM 600 SDI
Árgerð 2007
ADVENTURE 600 SDI
Árgerð 2007
X-TRIM 600 SDI
Árgerð 2008
X-TRIM 800 POWER TEK
Árgerð 2008
X-TRIM 550
Árgerð 2008
Rave 800 Power TEK
Árgerð 2008
RAVE RE 600 HO
Árgerð 2007
X-TRIM 800 POWER TEK
Árgerð 2007
RAVE 550
Árgerð 2008
YETI 600 SDI
Árgerð 2008
Tilboðsverð
819.000 kr.
Listaverð
919.000 kr.
Tilboðsverð
1.250.000 kr.
Listaverð
1.350.000 kr.
Tilboðsverð
1.420.000 kr.
Listaverð
1.520.000 kr.
Tilboðsverð
1.050.000 kr.
Listaverð
1.150.000 kr.
Tilboðsverð
1.120.000 kr.
Listaverð
1.350.000 kr.
Tilboðsverð
1.370.000 kr.
Listaverð
1.470.000 kr.
Tilboðsverð
895.000 kr.
Listaverð
995.000 kr.
Tilboðsverð
1.410.000 kr.
Listaverð
1.510.000 kr.
Tilboðsverð
1.250.000 kr.
Listaverð
1.510.000 kr.
Tilboðsverð
1.270.000 kr.
Listaverð
1.530.000 kr.
Tilboðsverð
1.140.000 kr.
Listaverð
1.370.000 kr.
Tilboðsverð
1.140.000 kr.
Listaverð
1.370.000 kr.
Tilboðsverð
1.120.000 kr.
Listaverð
1.350.000 kr.
Adventure V-800
Árgerð 2008
Yeti V 800
Árgerð 2008