Fréttablaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Sem dálítið aldurhnigin frú væri ferill minn nú örugglega á fall-
anda fæti ef hann byggðist á aðdá-
un múgsins. Þótt ég hafi því miður
ekki enn haft framfærslu af glæsi-
leika og hæfileikum til að perfor-
mera þá læðist að mér ofurlítill en
áleitinn hrollur yfir því að jafn-
öldrur mínar í Hollywood séu
sumar afskrifaðar vegna elli. Ef
þetta er búið hjá þeim er trúlega
orðið of seint fyrir mig núna að
byrja harkið í bransanum. Eins og
það var nú notalegt að hafa sem
varaleið, ef annað myndi
bregðast.
EN við sem notum gamla hrað-
lestrarnámskeiðið á fjölmiðlana
fylgjumst með daglegum fréttum
af þeim frægu. Vitum allt um ásta-
líf og æsilega hegðun söngvara úti
í heimi án þess að hafa nokkru
sinni heyrt þá syngja. Getum létti-
lega þulið upp alls kyns fíknir leik-
ara sem við höfum aldrei séð leika.
Auðlesnir dálkar og kræsilegar
fyrirsagnir hrifsa athyglina því
með lítilli fyrirhöfn og næstum
engri heilastarfsemi er hægt að
öðlast mikilvægar upplýsingar um
ýmsar aðferðir til að hressa upp á
karríerinn.
OG ekki skal vanmeta þær leiðir
sem virðast duga svo prýðilega
því á okkar litla landi er leiðin frá
frægðardraumum og í Séð og
heyrt stutt og skilvirk. Þannig
gætu aldurstakmörkin á Íslandi
verið sveigjanlegri en í útlöndum
því þrátt fyrir allt er hégómleik-
inn lífseigastur allra lasta og mér
er ennþá hreint ekki sama um
skurnina.
EFTIR að hafa velt fyrir mér
ýmsum möguleikum úr lífi ann-
arra til að tendra kveikjuna að
væntanlegri eigin frægð, eru
nokkrar leiðir pottþéttari en aðrar.
Í fyrsta lagi get ég fengið mér
kornungan, fjallmyndarlegan og
dálítið þekktan kærasta. Eiginlega
bara stirfnin í manninum mínum
stendur í veginum, honum finnst
þetta ekki sérlega góð hugmynd. Í
öðru lagi gæti ég skroppið í fjöl-
miðlavæna áfengismeðferð en
þyrfti reyndar að skandalísera
töluvert meira fyrst. Það tekur
alltaf drjúgan tíma.
FLJÓTLEGASTA aðferðin til að
hressa upp á ferilinn stendur tví-
mælalaust eftir: Að leka nokkrum
senum úr heimagerðu kynlífs-
myndbandi á netið og voilá! Hin
dásamlega frægð sprettur fram
eins og gorkúla á rigningardegi og
ferillinn fær blússandi byr. Slóðin
fylgir hér nema pistillinn sé rit-
skoðaður:
Heimagert kyn-
lífsmyndband
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
02
16
0
3/
08
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
RAV4 - alveg nýr heimur
RAV4 er bíll sem boðar nýja tíma, nýjar áherslur, nýjar leiðir. Hann er ríkulega búinn
staðalbúnaði og fæst með „Integrated Active Drive System“ sem eykur til muna
öryggi og akstursánægju. Við hikum ekki við að fullyrða að þú færð meira út úr lífinu
á nýjum RAV4, hvort sem er innanbæjar eða úti í náttúrunni.
Straumlínulöguð yfirbygging og fjöldi tækninýjunga gera RAV4 fágaðri, fjörugri
og þróaðri en nokkru sinni fyrr. Fjöldi útfærslna er í boði, þar á meðal hin íburðar-
mikla RAV4 VX sem teflir saman framúrskarandi snerpu og afburðaþægindum
í akstri svo að hefðbundin skilgreining á smájeppa á ekki lengur við. Og tómstundir
með fjölskyldunni fá líka allt aðra merkingu.
Komdu og reynsluaktu RAV4 - alveg nýr heimur.
Verð frá 3.720.000 kr.
Allt sem þú ætlaðir að gera í fyrra
gerirðu tvisvar í vetur
Í dag er miðvikudagurinn 26.
mars, 86. dagur ársins.
7.06 13.33 20.02
6.49 13.18 19.49