Fréttablaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 6
6 31. mars 2008 MÁNUDAGUR
Atlantskaup ehf. Bæjarflöt 6,112 Reykjavík S: 533 3700
Upplýsingar á www.atlantskaup.is
STIGAR OG HANDRIÐ ÚR GLERI OG STÁLI
ÚTI SEM INNI
er svariðjá
118 ja.is Símaskráin
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
J
A
A
4
14
62
0
3/
08
Þarftu
samband
við bifvélavirkja
í einum
grænum?
Kviknaði í skúr í Heiðmörk
Lögreglu grunar að um íkveikju hafi
verið að ræða þegar kviknaði í skúr
í Heiðmörk skammt frá Elliðavatni
klukkan hálfellefu í gærmorgun.
Skúrinn stóð um tvöhundruð metra
frá Heiðmerkurveginum. Sjónarvottur
tilkynnti um eldinn og gekk greiðlega
að slökkva hann en einn dælubíll var
sendur á staðinn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Flugslys við London
Fimm manns fórust með lítilli flugvél
sem hrapaði skammt suður af
London í gær. Vélin hrapaði á hús
í Farnborough í Kent, skammt frá
Biggin Hill flugvellinum, sem er í um
20 kílómetra fjarlægð frá miðborg
London. og kviknaði strax í henni.
Um borð voru tveir flugmenn og þrír
farþegar.
BRETLAND
NOREGUR, AP Rússnesk þyrla
hrapaði í lendingu í Barentsburg
á Svalbarða í gær. Þrír menn
fórust en sex aðrir voru fluttir á
sjúkrahús.
Barentsburg er rússneskt
námuvinnsluþorp með um 400
íbúa. Norðmenn, sem hafa yfirráð
á Svalbarða, leyfa rússnesku
byggðina samkvæmt samningi
frá árinu 1920. Samkvæmt
samningnum er Svalbarði
alþjóðlegt svæði þar sem fólk frá
öllum löndum heims getur sest að
og hafið starfsemi.
Þyrlan er af gerðinni Mi8 og í
eigu rússneska kolanámufélags-
ins Arktikogul. - gb
Þyrluhrap á Svalbarða:
Þrír fórust með
rússneskri þyrlu
SVEITARSTJÓRNIR „Borgarstjóri var
fullkomlega sáttur við að við
afgreiddum málið svona,“ segir
Gísli Marteinn Baldursson borgar-
fulltrúi um það að borgarráð sam-
þykkti í fjarveru Ólafs F. Magnús-
sonar að láta kanna hagkvæmni
lestarsamgangna.
Ólafur hefur lýst vantrú á hug-
myndum um lestarsamgöngur og
hafði á síðasta borgarráðsfundi
fyrir páska óskað eftir því að
afgreiðslu málsins yrði frestað.
Borgarstjóri fór síðan í utanlands-
ferð sem stóð þar til í gær. Á
fimmtudag samþykkti borgaráð
hins vegar lestarmálið.
„Borgarstjóri var í útlöndum og
við vildum afgreiða málið sem
fyrst. Hann vildi fresta þessu til að
kynna sér málið betur á milli funda
og hann gerði það og málið var
afgreitt í fullri sátt við alla,“ segir
Gísli Marteinn.
Ólafur segir sína skoðun á lest-
arsamgöngum til Keflavíkurflug-
vallar ekkert hafa breyst.
„Könnun sem gerð var fyrir
nokkrum árum sýndi að stofn-
kostnaður væri tugmilljarðar og að
ekki væri fyrir þeim rekstrar-
grundvöllur. En það var ákveðin
lending að gera um þetta ódýra
könnun. Vonandi verður hún til
þess að þeir fjölmörgu Reykvík-
ingar og aðrir landsmenn sem sjá
hversu óraunhæft þetta er láti í sér
heyra,“ segir borgarstjórinn og
bætir við að nær væri að umræðan
beindist að því að koma á fót sam-
göngumiðstöð í Vatnsmýri. „Það
þarf að höggva á þann hnút.“ - gar
Borgarstjóri segir ákveðna lendingu að gera ódýra könnun um lestarsamgöngur:
Samgöngumiðstöð er brýnni
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Nær að huga
að samgöngumiðstöð í Vatnsmýri en
lestarsamgöngum, segir borgarstjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Óttast þú glæpaöldu í Breið-
holtinu?
Já 51,8%
Nei 48,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ferð þú á ylströndina í Naut-
hólsvík á sumrin?
Segðu þína skoðun á vísir.is
SIMBABVE, AP Stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn í Simbabve,
Hreyfing fyrir lýðræðisbreyting-
um, fullyrti í gær að Morgan
Tsvangirai, frambjóðandi flokks-
ins, hefði fengið 67 prósent
atkvæða þegar talin höfðu verið 35
prósent allra greiddra atkvæða.
Yfirmaður kosningaeftirlits
Afríkuþingsins, sem hefur fylgst
með framkvæmd kosninganna,
sagði að úrslit kosninga í landinu
öllu væru nú þegar að mestu
komin í ljós. Hann hvatti stjórn-
völd til að draga ekki birtingu
úrslitanna á langinn.
George Chiweshe dómari, sem
er formaður kjörstjórnar, sagði
talninguna þó taka sinn tíma vegna
þess að nú væri í fyrsta sinn kosið
í senn til forseta, efri og neðri
deildar þingsins og í héraðsráð,
þannig að telja þyrfti fjögur
atkvæði fyrir hvern kjósenda í
stað eins.
Hópur fólks elti Chiweshe og
hrópaði að honum: „Við viljum
úrslitin.“
Almennt virðist fólk reikna með
að Robert Mugabe forseti muni
falsa niðurstöðutölur kosning-
anna.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að Mugabe forseti væri bæði þjóð
sinni og Afríku til skammar. Hún
sagði óvíst hvort nokkurn tímann
verði hægt að ganga úr skugga um
réttmæti kosningaúrslitanna. - gb
Stjórnarandstaðan í Simbabve segist hafa forystu í forsetakosningunum:
Krefst birtingar úrslita strax
ATKVÆÐI TALIN Fyrirfram var reiknað
með að Robert Mugabe forseti myndi
reyna að falsa úrslit kosninganna.
NORDICPHOTOS/AFP
KJÖRKASSINN
DÓMSMÁL Lögreglan fékk sex
sinnum heimild hjá Héraðsdómi
Reykjavíkur til þess að hlera
síma manns sem grunaður var
um að aðild að svokölluðu hrað-
sendingarmáli. Rannsóknin á
manninum leiddi ekki til neins.
Maðurinn fann eftirfarabúnað
undir bifreið sinni 12. nóvember í
fyrra en lögreglan hafði komið
honum fyrir þremur dögum áður.
Í kjölfarið krafðist hann rann-
sóknargagna lögreglu sem
vörðuðu hann.
Í greinargerð lögreglu, sem lá
til grundvallar er heimild til hler-
unar á síma mannsins var gefin,
kemur fram að maðurinn hafi
verið grunaður um stórfellt smygl
á fíkniefnum. Auk þess er tekið
fram að 26. september í fyrra hafi
komið fram í hlerunum lögreglu
að hann „stundi smásölu á fíkni-
efnum, sé að neyta fíkniefna og
áfengis“ sem allt brjóti gegn
lögum og reglum en maðurinn
var að afplána hluta af refsingu
sinni á áfangaheimilinu Vernd.
Þá segir einnig að um manninn
hafi lengi legið grunur um að
hann hafi „átt mikinn þátt í fíkni-
efnaframboði fanga, fyrst í fang-
elsinu á Litla-Hrauni, þegar hann
var refsifangi þar, og síðar í fang-
elsinu að Kópavogsbraut 17, eftir
flutning þangað.“
Lögreglan þarf samkvæmt
lögum að láta þá sem hleraðir eru
vita „eins fljótt og kostur er“ að
þeir hafi verið hleraðir, eins og
orðrétt segir í lögum um meðferð
opinberra mála.
Jafnframt er tekið fram að til-
kynning um hlerunina verði að
taka mið af því að hún „skaði ekki
frekari rannsókn málsins“.
Samkvæmt
heimildum
Fréttablaðsins
vildi lögreglan
ekki láta gögnin
um hlerunar-
heimildir í
hendur manns-
ins nema að
hafa rannsakað
hvort maðurinn
tengdist hrað-
sendingarmálinu með einhverj-
um hætti. Það gerði hún og féllst
að lokum á að afhenda manninum
gögnin.
Tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi
vegna málsins, Annþór Kristján
Karlsson og Tómas Kristjánsson,
sem starfaði hjá UPS-hraðsend-
ingaþjónustunni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Valtý Sigurðssyni ríkissaksókn-
ara er það alfarið í verkahring
dómstóla að hafa eftirlit með því
að þeir séu látnir vita af hlerun-
um sem fyrir þeim verða. Lög-
reglan sér um það en til þess að
hún geti hlerað þarf hún heimild
frá símafélögum um aðgang að
upplýsingum sem nauðsynlegar
eru.
Víða erlendis, meðal annars í
Danmörku, er réttargæslumanni
ætlað að fylgjast með því að rétt-
ur gagnvart þeim sem hleraður
eru sé ekki brotinn.
magnush@frettabladid.is
Ítrekaðar hleranir
leiddu ekki til neins
Lögreglan fékk sex sinnum heimild til þess að hlera síma manns sem grunaður
var um aðild að hraðsendingarmálinu. Lögreglan þarf að láta menn vita ef þeir
hafa verið hleraðir án þess að það leiði til neins eins fljótt og auðið er.
SENDIFERÐABÍLAR UPS Starfsmaður UPS situr í gæsluvarðhaldi, auk annars manns
vegna hraðsendingamálsins. Sex sinnum var fengin heimild til að hlera síma manns
sem talinn var tengjast málinu.
VALTÝR
SIGURÐSSON