Fréttablaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 8
8 31. mars 2008 MÁNUDAGUR
RV
U
N
IQ
U
E
03
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Glæsilegt yfirbragð
- við öll tækifæri
Á tilboðií mars 2008LinStyle dúkar og servíettur, NexxStyle servíettur, yfirdúkar og kerti
LinStyle servíettur
40cm 50stk, í ýmsum litum 878 kr.
LinStyle dúkur
1,20x20m í ýmsum litum 2.786 kr.
Yfirdúkur
60cmx25m í ýmsum litum 2.388 kr.
Kerti rústik
13x7cm í ýmsum litum 239 kr.
1. Hvaða flugstöðvarbygging
á Heathrow-flugvelli hýsir ein-
göngu British Airways?
2. Hvað heitir ríkisendur-
skoðandi?
3. Hvað heitir forseti Simbab-
ve, sem bauð sig fram í sjötta
sinn í kosningum um helgina?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
UMHVERFISMÁL Túlkun Norðuráls á
skuldbindingum Íslands vegna
Kyoto-bókunarinnar samrýmist
ekki stefnu ríkisstjórnarinnar, að
mati Náttúruverndarsamtaka
Íslands (NSÍ).
Norðurál hefur haldið því fram
að um 1,8 milljónum tonna ætti
eftir að úthluta af losunarheim-
ildum Íslands fyrir árin 2008 til
2012. Fyrirtækið muni sækja um
637.000 tonna kvóta fyrir álver í
Helguvík og eftir standi tæplega
1,3 milljónir tonna. Því hindri
þörf álvers í Helguvík á losunar-
heimildum ekki aðrar fram-
kvæmdir.
NSÍ benda hins vegar á að sam-
kvæmt túlkun Norðuráls sé losun
Íslendinga tvær milljónir tonna í
árslok 2012, en ekki 1,6 milljónir
eins og íslenska undanþágu-
ákvæðið kveði á um.
Með því að túlka samninginn
eins og Norðurál gerir hefðu
íslensk stjórnvöld ekki verið að
semja í góðri trú, segir í tilkynn-
ingu frá samtökunum. Þar er vitn-
að í lögfræðiálit sem segir að „ef
Ísland reyndi að semja á ný um
svipaðar undanþágur fyrir næsta
samningstímabil myndi það
ganga á svig við og vera andstætt
skuldbindingum þess.“
Túlkun Norðuráls sé til þess
eins fallin að réttlæta illa ígrund-
uð ummæli Árna Sigfússonar hjá
Reykjanesbæ um málið. - kóþ
Náttúrurverndarsamtökin gagnrýna Norðurál og Árna Sigfússon:
Ábyrgðarlaus túlkun á Kyoto
Í NORÐURÁLSVERI Forsvarsmenn
fyrirtækisins halda því fram að álver í
Helguvík myndi taka um þriðjung af los-
unarheimildum Íslands. Náttúruverndar-
samtökin segja þetta ábyrgðarlaust tal.
MYND/EIRÍKUR KRISTÓFERSSON
ÞJÓÐLENDUR Fjármálaráðherra
hefur gert kröfur fyrir hönd
ríkisins í þjóðlendur í syðri hluta
Norðurlands vestra. Þeir sem eiga
öndverðra hagsmuna að gæta
hafa þrjá mánuði til að lýsa
kröfum sínum fyrir Óbyggða-
nefnd, að því er fram kemur í
tilkynningu frá nefndinni.
Gerð er krafa til lands í þremur
sýslum; Suður-Þingeyjarsýslu,
Eyjafjarðarsýslu og Skagafjarð-
arsýslu. Lýsingar á kröfunum má
sjá á vef Óbyggðanefndar.
Eftir að aðrir en ríkið hafa lýst
sínum kröfum verða allar
kröfurnar kynntar, og svo fjallað
um ágreining í Óbyggðanefnd. - bj
Kröfur ríkisins um þjóðlendur:
Þrír mánuðir til
að andmæla
ÍRAK, AP Muktada al-Sadr, leiðtogi
Mahdi-hers sjía-múslima í Írak,
tilkynnti í gær að hann hefði skip-
að hermönnum sínum um land allt
að leggja niður vopn. Hann hvatti
jafnframt stjórn landsins til að
hætta árásum á liðsmenn sína og
láta þá lausa úr fangelsi.
Íraksstjórn fagnaði strax yfir-
lýsingu al-Sadrs og Nouri al-Mal-
iki forsætisráðherra sagði hana
skref í rétta átt. Hann hafði fyrr
um daginn viðurkennt að hafa
misreiknað afleiðingarnar af
aðgerðum öryggissveita Íraks
gegn sjíum.
Átökin milli stjórnarhersins og
Mahdi-hersins brutust út á þriðju-
daginn í kjölfar aðgerða stjórnar-
innar gegn stuðningsmönnum al-
Sadrs í olíuborginni Basra.
Hundruð manna hafa látið lífið í
þessum átökum, sem fljótlega
breiddust út til sjía-hverfa í Bag-
dad og víðar í landinu.
Þótt liðsmenn al-Sadrs leggi
niður vopn mun það þó engan veg-
inn tryggja yfirráð ríkisstjórnar-
innar í Basra, helstu miðstöð olíu-
iðnaðarins í landinu.
Undirrót átakanna er djúpstæð
togstreita milli vopnaðra sjía-hópa
í Basra og víðar í suðurhluta lands-
ins. Sumir þessara hópa hafa náin
tengsl við ríkisstjórnina og
héraðsstjórnir.
Liðsmenn al-Sadrs telja mark-
mið aðgerða stjórnarinnar gegn
Mahdi-hernum hafa verið að
veikja pólitíska stöðu al-Sadrs
fyrir sveitarstjórnarkosningar,
sem verða í haust. - gb
Friðvænlegra verður í Basra:
Al-Sadr leggur
niður vopn í Basra
ÁTÖK Í BASRA Undirrót átakanna er djúpstæð togstreita milli hópa sjía-múslima.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?