Fréttablaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 44
20 31. mars 2008 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
> VISSIR ÞÚ?
...Vöðvinn sem fær
augun til að blikka
er sá hraðvirkasti í
líkamanum. Með
hjálp hans getur fólk
blikkað fimm sinnum
á sekúndu. Að meðal-
tali blikkar fólk 15 þús-
und sinnum á dag. Konur
blikka tvisvar sinnum oftar en
karlar.
Eurovision-keppnin í ár verður haldin í
skugga mjög óstöðugs stjórnmála-
ástands. Serbar kjósa til alþingis 11.
maí og því gæti verið hiti í þjóðinni ef
úrslitin verða ekki afgerandi. Tvær
hreyfingar takast á, lýðræðissinnar,
sem vilja efla samstarf við Vestur-Evr-
ópu, og róttækir þjóðernissinnar, sem
vilja halla sér til austurs. Þeir ala á
óánægju margra Serba með að Vestur-
lönd styðji sjálfstæðisyfirlýsingu Kos-
ova. Mótmæli og óeirðir fylgdu í kjöl-
far þeirrar yfirlýsingar og kveikt var í
sendiráði Bandaríkjanna í Belgrad auk
þess sem ráðist var á sendiráð Breta
og Króata. Árásirnar á sendi-
ráðin voru gerðar í kjölfarið
á 150.000 manna mótmælum
í Belgrad þar sem Serbar
mótmæltu friðsamlega.
Í þetta ótrygga ástand
koma keppendur 42 þjóða og
aragrúi gegnheilla Euro-
vision-aðdáenda, sem er ekki
endilega fólkið sem sækir í
harkaleg mótmæli. Núver-
andi forseti Serbíu, Boris
Tadic, er foringi lýðræðis-
sinna. Hann hefur sent út
bréf þar sem hann reynir að
slá á ótta Eurovision-fara:
„Ég lofa í fyllstu einlægni að
tekið verður vel á móti gest-
um, að þeir verði fullkom-
lega öruggir í landinu og að
dvöl þeirra verði ljúf í
endurminningunni.“
Þó er keppendum og gest-
um ráðlagt að tjá sig ekki um
pólitík að óþörfu og alls ekki
að vera með yfirlýsingar um
innanríkismál. Líklega er
því eins gott að Sylvía Nótt
er ekki að keppa í ár.
Keppendur tjái sig ekki um pólitík
FORSETI SERBÍU FRÁ
ÁRINU 2004 Boris Tadic
er sálfræðingur að
mennt.
Hollywoodstjörnurnar þéna vel á
því að eignast börn. Að minnsta
kosti ef þær selja myndir af
afkvæmum sínum sem er víst
tískan núna.
Myndir af nýfæddum börnum
stjarnanna eru eftirsóttari en flest
annað í Hollywood. Jennifer Lopez
og Marc Anthony seldu nýlega
myndir af nýfæddum tvíburum
sínum, Max og Emme, til tímarits-
ins People fyrir 6 milljónir doll-
ara, andvirði tæplega 470 milljóna
íslenskra króna og þau eru hvorki
fyrstu né síðustu stjörnurnar sem
hagnast á erfingjum sínum. Upp-
hæðirnar hafa hins vegar rokið
upp úr öllu valdi frá því að Lisa
Marie Presley seldi blaðinu Star
myndir af erfingja sínum fyrir
100 þúsund dollara árið 1989.
„Á þeim tíma fannst mér það
fáránlegt,“ segir Mark Levine,
þáverandi ritstjóri Star og
núverandi ritstjóri National
Enquirer, í viðtali við New York
Post. Hann segir að
sala barnamynda
sé að verða að
iðnaði. „Þetta er
út í hött og
stjörnurnar
eru orðnar
mjög góðar í
þessu. Rétt-
urinn að
myndum er núna seldur áður en
stjörnurnar fara á sjúkrahúsið til
að fæða. Þær ráða svo aukalíf-
verði svo það verði ómögulegt að
ná myndum á ólöglegan hátt,“
segir Levine. Hann segir barn-
eignir jafnast á við að fá hlutverk
í kvikmynd fyrir stjörnurnar, að
minnsta kosti hvað peningana
varðar, og telur að fyrstu mynd-
irnar af tvíburunum sem talið er
að Angelina Jolie beri nú undir
belti verði seldar á um 10 milljón-
ir dollara. „Ég vildi sjá fleiri
stjörnur gera eins og
Sarah Jessica Parker,
sem stóð fyrir utan
sjúkrahúsið og gaf
ljósmyndurum
myndirnar,“ segir
Levine.
Annar ritstjóri,
sem lætur nafn
sitt ekki uppi,
segir við New
York Post að
upphæðirnar
séu nú komn-
ar svo hátt upp
að „sumar stjörn-
ur ákveða jafnvel
að eignast fleiri börn,
bara til þess að græða
peninga á myndum af
þeim.“
Græða á barneignunum
ÞRJÁR MILLJÓNIR Á BARN Jennifer
Lopez og Marc Anthony seldu réttinn að
myndum af nýfæddum tvíburum þeirra,
Max og Emme, fyrir sex milljónir dollara.
NORDICPHOTOS/GETTY
10 MILLJÓNIR VÆNTANLEGAR? Angelina
Jolie og Brad Pitt fengu yfir 4 milljónir
dollara fyrir fyrstu myndirnar af Shiloh,
en gætu átt von að allt að tíu millj-
ónum, ef sá orðrómur að Jolie gangi
með tvíbura undir belti reynist á rökum
reistur.
Föndurverslun
Námskeið
Síðumúli 15
S: 553-1800
Sjón er sögu ríkari
SENDU SMS BTC SPV
Á NÚMERIÐ 1900 OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo, DVD myndir,
varningur tengdur myndinni og margt fleira!
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
54 DAGAR TIL STEFNU
1.5 MILLJÓNIR Christina Aguilera
seldi myndir af fyrsta barni sínu,
syninum Max Liron, fyrir 1,5
milljónir dollara.
1 MILLJÓN Nicole Richie
fékk eina milljón
dollara fyrir myndir af
dótturinni Harlow.
Fyrsta kvikmynd Ólafs Jóhannessonar í fullri lengd, Stóra planið, var frumsýnd síðastliðið föstudagskvöld. Þó ekki
væru allir frumsýningargestir jafn uppveðraðir og Benedikt Erlingsson, eins og sjá má hér að neðan, féll Stóra planið
vel í kramið hjá áhorfendum.
Stóra planið fær góðar viðtökur
Ólafur Jóhannesson og Eggert Þorleifs-
son.
Halldóra Geirharðsdóttir og Víkingur
Kristjánsson.
Ingvar E. Sigurðsson, Edda Arnljóts-
dóttir og fjölskylda.
Haukur Ingi Guðnason og Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir.
Benedikt Erlingsson og Charlotte Böving.
Alexía Björg Jóhannesdóttir og Guð-
mundur Steingrímsson.
Úrvalalið leikara fer með hlutverk í
Stóra planinu, sem segir frá ævin-
týrum hins misskilda handrukkara
Davíðs, sem Pétur Jóhann Sigfússon
leikur. Á meðal annarra leikara í
myndinni eru þeir Eggert Þorleifsson
og Ingvar E. Sigurðsson, Benedikt
Erlingsson og Ilmur Kristjánsdóttir
og svo Sopranos-maðurinn Michael
Imperioli.
ÆVINTÝRI Í
UNDIRHEIMUM
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N