Fréttablaðið - 01.04.2008, Qupperneq 2
2 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Magnús Stefánsson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
vill að ríkisstjórnin láti vinna
samningsmarkmið fyrir hugsan-
legar aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið. Að vinnunni komi allir
stjórnmálaflokkar, aðilar vinnu-
markaðarins, sveitarfélög og fleiri.
Magnús, sagðist í samtali við
Fréttablaðið, telja Evrópuum-
ræðuna of ómarkvissa; leiðarsteina
vanti til að þoka henni áfram. „Ég
tel að það verði best gert með því
að móta samningsmarkmið þar sem
dregið verður fram hvað leggja
ætti áherslu á í viðræðum.“ Í fram-
haldinu yrðu samningsmarkmiðin
borin undir þjóðaratkvæðagreiðslu
og niðurstöðurnar réðu hvort
sótt yrði um aðild og aðildar-
viðræður hafnar.
„Ég held að bæði þeir sem eru
hlynntir og andvígir aðild ættu að
fagna svona tillögu því þá fá menn
tækifæri til að vinna sínum sjónar-
miðum fylgi,“ segir Magnús sem
sjálfur lætur ekkert uppi um eigin
afstöðu til aðildar.
Samþykki þjóðin að hefja við-
ræður við ESB á grundvelli skil-
greindra markmiða þurfi að breyta
stjórnarskránni. Þjóðin fái svo
endanlegan samning við Evrópu-
sambandið til atkvæðagreiðslu.
Magnús hefur hugleitt að
leggja fram þingsályktunar-
tillögu um að ríkisstjórnin stigi
þetta skref en óvíst er hvort af
því verður nú á vorþingi. - bþs
REYKJAVÍK Fjölbýlishús á Skóla-
vörðuholti liggur undir skemmd-
um vegna þess að veggjatítla
hefur tekið sér bólfestu í húsinu.
Ekki er vitað hversu miklar
skemmdirnar eru og kemur það
ekki almennilega í ljós fyrr en
farið verður í viðgerðir. Á meðan
þrífast veggjatítlurnar í húsinu.
Verið er að skipuleggja fram-
kvæmdir til að ráða niðurlögum
títlunnar en ekki er ljóst hvenær
þær munu eiga sér stað. Eigendur
hússins hafa höfðað skaðabótamál
gegn seljanda tveggja íbúða og
fasteignasala á þeim forsendum
að vitað hafi verið um veggjatítl-
urnar árið 2004 þegar fasteigna-
viðskiptin áttu sér stað og að það
sé galli sem hefði átt að taka fram
áður en viðskiptin áttu sér stað.
Ekki er vitað hvenær veggjatítl-
urnar bárust í húsið en ljóst er að
vitað var um þær fyrir 2004.
Skaðabótamálið verður dóm-
tekið í vor og standa vonir til að
dómur verði kveðinn upp í haust.
Í millitíðinni hafa íbúarnir og
dómskveðin matsnefnd kannað
hvað hægt er að gera og hvernig
brugðist er við veggjatítlum í
öðrum löndum, til dæmis í
Bretlandi.
Veggjatítlur eru algengar víða
um heim, bæði í timburhúsum og
timburhúsgögnum, og hafa þær
borist til svæða eins og Græn-
lands og Íslands sem eru þeim
óbyggileg ef þær þyrftu að komast
af úti í náttúrunni, að sögn Erlings
Ólafssonar, skordýrafræðings hjá
Náttúrufræðistofnun.
Í lok júní og snemma í júlí klekj-
ast út púpur sem eru inni í viðnum
og út skríða bjöllur. Bjöllurnar
naga sig upp að yfirborði viðarins
og við það myndast göt sem valda
eyðileggingu í húsum.
Á tveimur vikum makast
veggjatítlur og kvendýrin verpa
eggjum í sprungur eða göt í viðn-
um. Eggin klekjast út á þremur
til fjórum vikum og lirfurnar
fara að éta sig inn í viðinn. Talið
er að þrjú til átta ár líði þar til
lirfurnar fara að púpa sig en á
meðan éta þær sig um viðinn.
Hita- og rakastig hefur afgerandi
áhrif á afkomu veggjatítlunnar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er talið að kjöraðstæður
séu í húsinu á Skólavörðuholti til
að veggjatítlurnar geti þrifist þar,
mikill raki og hiti í veggjunum á
ákveðnum tímum árs.
Nokkur tilfelli af veggjatítlum
hafa komið upp hér á landi síð-
ustu ár, að sögn Erlings. Athygli
vakti fyrir um tíu árum þegar
timburhús í Hafnarfirði var
brennt vegna veggjatítlu.
ghs@frettabladid.is
Ég held að
bæði þeir
sem eru hlynntir
og andvígir aðild
ættu að fagna
svona tillögu því
þá fá menn tæki-
færi til að vinna
sínum sjónarmiðum fylgi.
MAGNÚS STEFÁNSSON
ÞINGMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Gott á þriðjudegi
30% afsláttur
798kr.kg
Plokkfiskur
Krefjast bóta vegna
nagandi veggjatítlu
Veggjatítla hefur tekið sér bólfestu í húsi á Skólavörðuholti og er ekki vitað hve
miklar skemmdirnar eru. Eigendurnir höfða skaðabótamál þar sem vitað var
um títlurnar áður en viðskipti áttu sér stað. Málið verður dómtekið í vor.
Á SKÓLAVÖRÐUHOLTI Veggjatítla hefur tekið sér bólfestu í húsi á Skólavörðuholti í
Reykjavík. Ekki er vitað hversu miklar skemmdirnar eru. Skaðabótamál hefur verið
höfðað og verður dómtekið í vor þar sem vitað var um veggjatítlurnar fyrir árið 2004
en þess ekki getið þegar fasteignaviðskipti áttu sér stað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALÞINGI Valgerður Sverrisdóttir,
varaformaður Framsóknarflokks-
ins, telur að Magnús Pétursson sé
að láta af starfi forstjóra Landspít-
ala vegna breyttrar stefnu
stjórnvalda í heilbrigðismálum.
Á Alþingi í gær setti hún málið í
samhengi við ummæli Geirs H.
Haarde forsætisráðherra, sem gat
þess við kynningu á ríkisstjórnar-
samstarfinu að stjórnarflokkarnir
væru sammála um að standa að
breytingum í heil brigðiskerfinu.
Geir sagði þetta dylgjur, hann
hefði á sínum tíma verið að tala
um breytingar á sjúkratrygginga-
kerfinu. Annars væri málið á
forræði heilbrigðisráðherra. - bþs
Valgerður Sverrisdóttir:
Telur starfslok-
in grunsamleg
Óttarr, er þetta þitt útrásar-
verkefni?
„Þetta á nú meira skylt við útferð
en útrás.“
Óttarr Hrafnkelsson, forstöðumaður
Ylstrandarinnar í Nauthólsvík, hefur
áhyggjur af frárennslisröri sem veitti meng-
uðu vatni í sjó rétt við Ylströndina í vetur.
Samningsmarkmið vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið verði skilgreind:
Þjóðin kjósi um samningsmarkmið
SAMGÖNGUMÁL „Ef þetta hús á að rísa er það skýr
krafa að þetta sé ekki bara flugstöð og að byggingin
geti gegnt hlutverki samgöngumiðstöðvar þótt
flugvöllurinn fari,“ segir Gísli Marteinn Baldursson,
formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur.
Á fundi Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra og
Kristjáns Möller samgönguráðherra í gær voru kynnt-
ar tillögur að samgöngumiðstöð sem ætlað er að hýsa
alla samgöngustarfsemi borgarinnar.
„Þarna má sjá fyrir sér umferðarmiðstöð þar sem
rútur og strætóar stoppa og einnig hugsanlega
tengingu við hraðlest til Keflavíkur eða aðra sam-
göngumöguleika sem við kynnum að nýta í framtíð-
inni,“ segir Gísli og bendir á að af tveimur slæmum
kostum sé betra að ein miðstöð rísi en að bráðabirgð-
arflugstöðvar séu reistar „hér og þar í Vatnsmýrinni
eins og menn hafa verið að biðja um á undanförnum
vikum.“
Í tilkynningu um málið segir að æskilegt sé að
miðað sé við að fyrsti áfangi samgöngumiðstöðvar-
innar verði tilbúinn í lok næsta árs. Lóðin sem
afmörkuð hefur verið er sjö hektarar og sú stærð
miðast við flugrekstrarstarfsemi. Flytjist hún hins
vegar úr Vatnsmýrinni er gert ráð fyrir því að lóðin
minnki um þrjá hektara vegna flughlaða og
aukabílastæða. Deiliskipulagsvinna vegna sam-
göngumiðstöðvar er þegar hafin. - kdk
Skýr krafa um að samgöngumiðstöðin sé ekki einungis hugsuð sem flugstöð:
Segir samgöngumiðstöðina skárri
kostinn af tveimur slæmum
MÓTMÆLI Hópur fólks, sem kallar
sig Vini Tíbets, afhentu ríkis-
stjórninni í gær bréf með ákalli
um aðgerðir til stuðnings Tíbet.
Nærri ein og hálf milljón manns
hafa skráð sig á bænaskrá Avaaz
um að mannréttindi Tíbeta verði
virt og að kínversk stjórnvöld
hefji viðræður við Dalai Lama.
Bréfið verður sent öllum
alþingismönnum, en í því eru
tillögur um hvernig beita megi
kínversk stjórnvöld þrýstingi,
meðal annars í tengslum við
Ólympíuleikana sem fram fara í
Beijing í sumar. - sgj
Vinir Tíbets:
Hvetja yfirvöld
til aðgerða
FRJÁLST TÍBET Mótmælendur hvöttu
stjórnvöld til aðgerða. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SAMÖNGUMIÐSTÖÐ Borgaryfirvöld gerðu bindandi samn-
ing við samgönguráðuneytið um samgöngumiðstöð þegar
Steinunn Valdís Óskarsdóttir var borgarstjóri. Samgöngumið-
stöðin mun taka að rísa á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
RAFMAGNSLEYSI Rafmagn fór af
Mosfellsbæ, Kjalarnesi, Grafar-
holti og Grafarvogi um rúmlega
fjögurra klukkustunda skeið
vegna bilunar í háspennustreng í
gær. Rafmagnið fór af laust eftir
hádegi, en ekki er vitað hvað olli
biluninni. Á fjórða tug þúsunda
búa á svæðinu. - sgj
Rafmagnsleysi í Reykjavík:
Rafmagn fór af
í fjóra tíma
Strætóbílstjóri hlýddi ekki
Lögreglumenn þurftu að aka í veg
fyrir strætisvagn til að stöðva strætó-
bílstjóra sem hlýddi ekki stöðvunar-
merkjum lögreglu í Reykjavík í gær.
Lögreglan vildi tala við hann vegna
umferðarlagabrots og var hann kærð-
ur áður en hann keyrði farþegana
áfram sína leið.
LÖGREGLUFRÉTTIR
97 óku of hratt í göngunum
97 ökumenn voru myndaðir á of
miklum hraða í Hvalfjarðargöngum
frá föstudegi til mánudags. Með-
alhraði hinna brotlegu var 84
kíló metrar á klukkustund, en
hámarkshraðinn í göngunum er 70
kílómetrar. Sá sem hraðast ók var á
109 kílómetra hraða.
MÓTMÆLI Vörubílstjórar mót-
mæltu hækkandi bensínverði með
því að stöðva umferð í báðar áttir
í Ártúnsbrekku á áttunda
tímanum í gærmorgun. Sturla
Jónsson, talsmaður hópsins, var
færður í lögreglubíl en ekki
handtekinn.
Mótmælunum lauk skömmu
fyrir klukkan átta og umferð
komst smám saman í samt lag.
Geir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn gaf mótmælendum í nefið
og að því loknu kvöddust þeir og
vörubílstjórarnir keyrðu á brott.
Geir Jón sagði þetta ekki vera í
fyrsta sinn sem neftóbak hefði
bundið enda á mótmælaaðgerðir.
Boðað hefur verið til fjöldamót-
mæla á Austurvelli klukkan 16 í
dag vegna málsins. - sgj
Vörubílstjórar mótmæltu:
Geir Jón gaf bíl-
stjórum í nefið
BÍLSTJÓRAR SNÚSSA Geir Jón Þórisson
yfirlögregluþjónn segir neftóbak oft
virka til að slíta mótmælum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS