Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 4
4 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR MENNTUN Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, vill taka sér enn lengri tíma til að ákveða hvernig brugðist verði við dómi Hæstaréttar yfir Hannesi Hólm- steini Gissurarsyni prófessor. Hún hefur þó sagt að hún líti dóminn alvarlegum augum. Rektor hafði áður gefið út að ákvörðunar væri að vænta eftir páskana, en seinna sagði hún að það yrði í gær, mánudag. Nú heitir hún niðurstöðu fyrir lok vikunnar. Hannes var dæmdur í Hæsta- rétti 13. mars til að greiða Auði Sveinsdóttur, ekkju Halldórs Lax- ness, bætur fyrir að brjóta gegn höfundarrétti að verkum hans. Háskólayfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki brugð- ist við umræðunni um vinnubrögð prófessorsins, og sérstaklega við skýrslu Helgu Kress um vinnu- brögð Hannesar, sem kom út árið 2004. Í henni er því haldið fram að Hannes hafi nýtt sér verk fjölda annarra höfunda og fræðimanna, án þess að geta heimildar með fullnægjandi hætti. Helga hefur bent á að þessi brot kunni að standa menntastofnun nær en brot gegn höfundarrétti Laxness. Rektor hefur ekki viljað tjá sig um áhrif dómsins á trúverðug- leika skóla sem stefnir í hóp bestu háskóla heims og Hannes sjálfur segist ekki ætla að tjá sig um málið fyrr en á fimmtudag, þegar hann hafi farið yfir það með sínu fólki. - kóþ Mál Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors við Háskóla Íslands: Rektor tekur sér lengri tíma HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR Dómstólar hafa eftirlit með því hvort hlerunarheimild, sem þeir veita lög- reglu, er beitt. Samkvæmt lögum ber lögreglu að láta þá sem hafa verið hleraðir vita eins fljótt og auðið er, hafi þeir verið hleraðir en rannsóknin ekki leitt til neins. Eftirlitið með því hvort menn eru látnir vita er hjá lög- reglu. Þetta skal áréttað hér með en skilja mátti frétt á síðu sex í Frétta- blaðinu í gær, þar sem vitnað var í ríkissaksóknara, með öðrum hætti. ÁRÉTTING ORKUMÁL Erfiðlega hefur gengið að fá hæft starfsfólk til starfa hjá útibúi Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) á Akureyri. Þetta kom fram í máli Ólafs G. Flóvenz, forstjóra ÍSOR, á ársfundi stofnunarinnar. „Því er ekki að leyna að fremur erfiðlega hefur gengið að fá fólk með viðeigandi menntun til starfa við útibúið,“ sagði Ólafur. „Reynslan virðist vera að kenna okkur að erfiðlega gangi að fá fólk til að flytja að sunnan til Akur- eyrar þannig að nauðsynlegt er að byggja á fólki sem á rætur í Eyjafirði eða nálægum byggðum.“ - bj Útibú ÍSOR á Akureyri: Sérfræðingar vilja ekki flytja ÓLAFUR G. FLÓVENS VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 10° 11° 6° 10° 9° 15° 12° 14° 13° 16° 21° 19° 15° 13° 23° 18° 28° 14° 1 5Á MORGUN Vaxandi A-átt. 13 -18 m/s sunnan til síðdegis. -1 0 FIMMTUDAGUR 13-18 m/s NV-til annars mun hægari. 0 0 -1 0 3 3 4 3 1 8 7 5 6 8 13 5 13 5 10 8 2 0 33 2 2 4 -4 16 YFIRLEITT HÆGARI VINDUR Í gær var víða vonskuveður á fjöll- um á Vestfjörðum og síðan á Austur- landi. Í dag verður vindur hins vegar yfi rleitt mun hægari en þó má búast við allhvössum vindi úti við suðaustur- og austurströndina með snörpum hviðum við fjöll. Einnig er mun minni úrkoma í kortunum. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur ALÞINGI Breyta þarf lögum svo ákvörðun stjórnvalda um uppskiptingu á embætti Lög- reglustjórans á Suðurnesjum nái fram að ganga. Lúðvík Bergvinsson, þing- flokksformaður Samfylkingar- innar, vakti á því athygli á Alþingi í gær, um leið og hann lýsti efasemdum sínum um að rétt sé að skilja á milli lög- og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli. Árni M. Mathiesen fjármála- ráðherra sagði málið eiga eftir að koma fyrir þingið en þegar þar að kæmi gæfist gott tækifæri til að ræða það. - bþs Uppskipti löggæslunnar: Kallar á breyt- ingar á lögum ÁRNI M. MATHIESEN LÚÐVÍK BERGVINSSON Datt úr stiga á steinsteypu Maður hlaut höfuðverka í vinnuslysi í fyrirtæki við Gagnheiði á Selfossi í gær. Stigi sem hann stóð í rann undan honum og féll hann fjóra metra niður á steinsteypt gólf. LÖGREGLUFRÉTTIR MANNÚÐAMÁL Vinir og fjölskylda Þórs Willemoes Petersen, sem lést á annan í páskum aðeins sautján ára að aldri eftir tíu ára baráttu við krabbamein, hafa nú stofnað minningasjóð í samvinnu við Liverpoolklúbbinn á Íslandi. „Markmiðið er að styrkja börn og unglinga sem eiga við erfiðleika að etja til ferða á Anfield að fylgjast með leikjum Liverpool,“ segir Jón Óli Ólafsson, formaður klúbbsins. „Þór fór sjálfur á Anfield í nóvember síðastliðnum og átti þar skemmtilegar stundir og okkar von eru að sem flestir sem við vanda eiga að etja geti gert það sömuleiðis.“ Tekið er á móti framlögum í sjóðinn á bankareikningi 140-26- 9140 í Landsbankanum og kenni- tala eiganda er 131155-3369. - jse Nýr minningasjóður: Styrkja veika til Anfieldferða SAMÖNGUMÁl Ísleifur Jónsson, verkfræðingur og fyrrverandi forstöðumaður Jarðborana ríkis- ins í þrjátíu ár, segir mikinn vafa leika á því að hægt sé að leggja Sundabraut að hluta til í neðan- sjávargöng. Hópur undir forystu Árna Hjartarsonar, jarðfræðings hjá Íslenskum orkurannsóknum, skil- aði Vegagerðinni greinargerð í haust um að hægt væri að gera göng undir Elliðavog. Ísleifur gagnrýnir að aðeins hafi verið boruð ein rannsóknar- hola í Elliða- vogi. Það sé alls ekki nóg. „Menn vita ekkert hvaða berg er undir Elliðavoginum. Það hefur aðeins ein hola verið boruð og það er ekki nóg. Það þarf miklu meiri rannsóknir. Bergið getur verið svo lekt og vatnsaginn getur verið svo mikill að alls ekki sé hægt að ráða við hann í gangna- gerðinni,“ segir Ísleifur. Um þetta atriði segir Árni að auk holunnar í Elliðavogi hafi tvær skáholur verið boraðar á ströndinni sitt hvoru megin. „Það er rétt að þetta eru dálítið fáar holur en hins vegar sýndu okkar boranir að það eru samhangandi jarðlög þvert yfir voginn. Bergið er ekki það besta sem sést hefur en þokkalegt jarðgangaberg eigi að síður, tveggja til þriggja milljón ára gamalt og vel þétt,“ segir Árni. Ísleifur segir enga reynslu vera af jarðgangagerð í sunnlensku bergi sem sé allt annað en til dæmis í Hvalfirði. „Heilbrigð skynsemi segir manni að við erum á jarðskjálftasvæði og ef það kemur stór jarðskjálfti geta komið rifur inn í göngin neðan- sjávar og þau gætu þá orðið ansi fljót að fyllast. Það getur enginn ábyrgst annað. Ekki vildi ég vera að standa í því að drekkja fólki,“ segir Ísleifur sem telur að menn ættu að halda sér við brýr. Af þeim hafi íslenskir verkfræðingar reynslu auk þess sem þær geti verið mjög fallegar. Árni á hinn bóginn telur göngin myndu verða öruggari en brýr með tilliti til jarðhræringa: „Það er verkfræðileg staðreynd að neðanjarðarmannvirki standa betur af sér jarðskjálfta en þau sem eru á yfirborðinu. Auk þess hafa ekki orðið slíkir jarðskjálftar hér á sögulegum tíma að það myndist gapandi sprungur í jörð- ina,“ segir Árni, sem kveðst búast við að borgaryfirvöld taki fljót- lega ákvörðun á grundvelli áður- nefndar rannsóknar sem lauk í haust. . gar@frettabladid.is Reyndur sérfræðingur segir Sundagöng óráð Fyrrum forstöðumaður Jarðborana ríkisins segir lagningu Sundabrautar í göng óráð. Vegna leka í bergi yrðu þau fokdýr og hætta á mannskaða í jarðskjálftum. Bergið er þétt og göngin yrðu trygg svarar forsvarsmaður rannsóknarteymis. ÍSLEIFUR JÓNSSON Forstöðumaður Jarðborana ríkisins í þrjátíu ár segir alls ónógar rannsóknir að baki væntanlegri ákvörðun um það hvort Sundabraut verði að hluta í neðansjávargöngum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÁRNI HJARTARSON MEXÍKÓ, AP Íbúar bæjarins Canalumtic í Mexíkó fengu sig fullsadda af óðu nauti sem reif í sig kornuppskeru og bramlaði kofana þeirra. Þeir afréðu því að henda því í fangelsi. Nautið hafði gengið laust í tæpan mánuð. Nautinu verður ekki sleppt úr fangaklefanum fyrr en eigandi þess borgar fyrir skemmdirnar, sagði lögreglustjóri fyrir helgi. Þær eru að andvirði rúmlega 30 þúsund krónur, sömu upphæð og hann borgaði fyrir nautið fyrir fjórum mánuðum. Í fyrra var hundur tekinn fastur fyrir að bíta mann. Þurfti hann að dúsa í steininum í tólf daga. - sgj Íbúar fengu nóg af bola: Naut fangelsað fyrir óspektir GENGIÐ 31.03.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 155,5023 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 76,49 76,85 152,21 152,95 120,94 121,62 16,221 16,315 15,041 15,129 12,878 12,954 0,7682 0,7726 125,77 126,51 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.