Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 18
[ ]Vogin segir ekki allt um ástandið á heilsufarinu. Leggðu áherslu á hollt mataræði og létta hreyfingu á hverjum degi og ýttu voginni undir rúm. Eiga erfiðara með að eignast börn BÖRN SEM FÆÐAST FYRIR TÍMANN EIGA FREKAR Í ERFIÐLEIKUM SEINNA Á LÍFSLEIÐINNI. Fyrirburar eru ekki bara í hættu fyrstu vikurnar og mánuðina eftir fæðingu. Norsk rannsókn sýnir fram á að afleiðingarnar fylgja fólki í gegnum allt lífið, að því er fram kemur í Berlingske tidende. Í rannsókninni var fylgst með 1,2 milljónum manna frá árinu 1967 til 1988 og samkvæmt henni eiga fyrirburar frekar á hættu að ná ekki fullorðinsaldri. Konur sem hafa fæðst fyrir tímann eignast oftar fyrirbura sjálfar og sjötíu og sex prósent karlmanna sem fæð- ast á tuttugustu og annarri til tut- tugustu og sjöundu viku, eiga í erf- iðleikum með að eignast börn. - rat Ný rannsókn hefur leitt í ljós að meindýraeitur eykur veru- lega hættu á Parkinson-veiki. Niðurstöður rannsóknarinnar birt- ast í vísindaritinu BMC Neurology Journal. Þar kemur fram að þeir sem eru berskjaldaðir fyrir mein- dýraeitri eru 1,6 sinnum líklegri til að fá sjúkdóminn síðar á lífs- leiðinni og að líklega eigi mein- dýraeitur stóran þátt í þróun sjúk- dómsins þótt einnig komi aðrir umhverfis- og erfðafræðilegir þættir við sögu. Það voru vísindamenn við Duke- og Miami-háskólana og Udall Parkinson‘s-rannsóknarsetrið í Bandaríkjunum sem stóðu að rannsókninni og lögðu spurningar fyrir 319 sjúklinga um notkun á meindýraeitri. Svör þeirra voru svo borin saman við svör fleiri en 200 fjölskyldumeðlima sem ekki voru veikir af Parkinsons. Þess má geta að í flokki mein- dýraeiturs virtust illgresiseyðir og skordýraeitur hafa mest áhrif á að menn fengju Parkinsons-veiki. - þlg Skaðleg dýraeitrun Stundum gott að rífast við makann AÐ TALA ÚT UM ÓÞÆGILEGA HLUTI Í HJÓNABANDINU OG JAFNVEL RÍFAST ER LÍKLEGT TIL AÐ LENGJA LÍFIÐ. Stór rannsókn sem unnin var í Michigan sýnir að það er heilsu- samlegt fyrir hjón að ræða bæði stór og smá vandamál sem upp koma í sambandinu. Þögn og þykkja eru nefnilega lífshættuleg fyrirbrigði. „Við viljum lifa lengi og því reynum við að borða hollt og halda líkamanum í þjálfun. En við þurfum líka að gefa neikvæðum tilfinningum útrás í stað þess að byrgja þær inni,“ er haft eftir sál- fræðidoktornum Ernest Harburg sem sá um rannsóknina. Fyrsta skrefið í rétta átt segir hann vera að láta hinn aðilann strax vita ef óánægja dúkkar upp. - gun Skordýraeitur getur verið mjög hættulegt mönnum. Original Arctic Root Ein vinsælasta lækningajurt heims Original Arctic Root öðru nafni Burnirót er ein vinsælasta lækningajurtin í heiminum í dag. Klínískar rannsóknir hafa leitt í ljós að hún eflir einbeitingu, úthald og vinnur gegn streitu og álagi. Vinnur gegn streitu og álagi Original Arctic Root er fljótverkandi og þeir sem nota hana finna jákvæða breytingu á einbeitingu og úthaldi á skömmum tíma. Original Arctic Root hefur svo sannarlega slegið í gegn á Íslandi og nýtur nú mikilla vinsælda. Fæst í apótekum og heilsubúðum. Heilsuvara ársins í Svíþjóð 2003, 2004 og 2005 HEYRNARÞJÓNUSTA Dot er góður punktur fyrir þá sem vilja heyra vel. Þessi punktur er agnarsmátt heyrnartæki sem með nýjustu tölvutækni bætir við heyrnina þeirri tíðni sem notandinn hefur tapað. Hringdu og láttu okkur fræða þig meira um þessa undraverðu tækni. Heimsins minnstu heyrnartæki koma frá ReSound . . . . . . . . . . . Næstu fyrirlestrar og námskeið 03. apríl kl. 18:00 - 21:00 Heilsukostur - Matreiðslunámskeið Auður I. Konráðsdóttir heilsukokkur 10. apríl kl. 17:30 - 19:00 Góð heilsa er auðveldari en þú heldur Matti Ósvald heilsuráðgjafi 12. apríl kl 11:00 - 14:00 Hláturjóga með jákvæðu ívafi Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari 15. apríl kl. 17:30 - 19:00 Viltu Hugar-far að betri stað í lífi nu? Matti Ósvald heilsuráðgjafi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.