Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 14
14 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS Nokkru eftir að áhrifamaður í viðskiptalífinu sem ég þekki vel fagnaði merkum tímamótum í lífi sínu með fjölsóttri móttöku, kom sameiginlegur vinur okkar að máli við mig. Var að velta fyrir sér hvort maðurinn hefði fengið í hendur kjörgrip sem hann hafði sent honum í tilefni dagsins. Hvort ég hefði vitneskju um það. Og ef svo væri – hvernig honum líkaði gjöfin. Gefandann hafði langað til að gleðja vin sinn, sem hann metur mikils, og lagt nokkuð á sig til að finna gjöf sem hæfði honum. Þar sem gripurinn sem hann valdi var augljóslega verðmætur þótti honum næstum óhugsandi að þiggjandinn hefði ekki slegið á þráðinn til að þakka fyrir sig, eða segja skoðun sína á honum og var eiginlega orðinn viss um að pakkinn hefði misfarist. Svo var ekki. Og þiggjandinn var bæði hrifinn og hrærður. En lét þó ekki verða af því að láta gefandann vita af því. Ekki af því að hann meti hann ekki mikils, því að það gerir hann, heldur af einhvers konar meðvitundarleysi sem er orðið útbreytt hér á landi, þegar kemur að því að því þiggja gjafir – nema þegar gjöf er afhent af gefandanum sjálfum og þiggjandinn tekur hana upp í hans viðurvist. Vísast hefur framangreindur áhrifamaður tjáð sig um gripinn næst þegar fundum þeirra vinanna bar saman, hvenær sem það svo var. En eftir tiltekinn tíma án viðbragða er augnablik eftirvænt- ingarinnar yfirleitt liðið hjá. Gleðin að gefa Sú hefð hefur skapast að veislu- gestir í brúðkaupum, stóraf- mælum, fermingum og útskriftum komi færandi hendi og leggi gjafir sínar á sérstakt borð. Pakkarnir eru opnaðir eftir að veislunni lýkur og hreint ekki víst að gefendunum berist til eyrna hvernig viðleitni þeirra til að gleðja brúðhjónin, fermingar barnið, afmælisbarnið eða stúdentinn lukkaðist. Á þessu eru auðvitað margar og góðar undantekningar en ýmislegt bendir til að hitt sé að verða algengara. Gestir eru boðnir velkomnir þegar þeir mæta, kvaddir og þakkað fyrir komuna og síðan ekki söguna meir. Þetta er hvorki vitnisburður um vanþakklæti eða virðingarleysi heldur tíðaranda. Til eru þeir sem leggja umtals- verða vinnu og fyrirhöfn í að finna nógu góða gjöf fyrir vin eða ættingja, eitthvað sem hentar sérstaklega þeirra smekk og þörfum, eitthvað sem virkilega gleður þiggjandann, og kemur honum á óvart. Það eru nefnilega ekki orðin tóm að það sé meira gaman að gefa en þiggja. Þessir gefendur eru ekki endilega að búast við eða sækjast eftir upphrópunum og yfirdrifnu þakklætismálæði. En það er dálítið spennufall fyrir þá að fá engin viðbrögð. Pöntunarlistinn Þrátt fyrir framansagt er algeng- ast í hraða og erli nútímans, að haft sé samband við aðstandendur og spurt um óskir tilvonandi brúðhjóna, afmælisbarna eða fermingarbarna. Gjarnan er þá vísað í tiltekna verslun sem er með lista yfir það sem brúðhjónin vilja fá. Fermingarbörn vita að á þessum tímamótum er óþarfi að halda aftur af sér þegar óska- listinn er saminn. Séu óskagjaf- irnar of dýrar fyrir eina fjöl- skyldu, taka fleiri fjölskyldur sig saman til að unglingurinn fái það sem hann raunverulega langar í á þessum degi. Allt er þetta hagkvæmt, skilvirkt og gott og blessað. Allir fá það sem þeir vilja. Þiggjendurn- ir eru ánægðir með að fá óskir sínar uppfylltar og gefendurnir fegnir að losna við umstangið af því að leita að gjöfum. En er þetta ekki orðið dálítið sjálfvirkt og ópersónulegt? Að fá í hendur pöntunarlista, í stað þess að þurfa að setja sig í spor þiggjendanna og og leggja það við eigið gildismat hvað er besta gjöfin. Hvaða skilaboð eru þetta til nýrrar kynslóðar á þröskuldi fullorðins áranna? Hugsar þetta unga fólk hlýlega til gefendanna þegar það opnar pakkana sína, eða er þetta sjálfsagður afrakstur fermingar, giftingar og annarra tímamóta? Nokkurs konar fjölskyldu- og vinaskattur sem öllum ber að standa skil á. Ræða foreldrar þeirra við þau um að þetta séu væntumþykjugjafir en ekki skyldusendingar eða aðgöngumiði að veislunni. Hvetja þau börn sína sem eru að fermast, giftast eða útskrifast til að þakka fyrir sig. Og láta vita að þau séu ánægð með gjöfina, ef þau eru það í raun og veru. Ef ekki með símtali, þá með samskiptaæð nútímans, tölvupósti eða SMS- skeyti. Spurningin er hvort foreldrarnir sjálfir átta sig á þessu, en það er náttúrulega lykilatriði. Það er mikill sannleikur í því sem góður vinur minn, sem nú er látinn, Kristján skáld frá Djúpalæk, sagði einhverju sinni við mig: „Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni, Jónína mín, og það besta sem maður getur gert fyrir börn sín – og kannski það eina – er að vera sæmileg eik!“ Listin að þiggja Í DAG | JÓNÍNA MICHAELSDÓTTIR Gjafir UMRÆÐAN Evrópumál Fleiri og fleiri stjórnmálamenn og skríbentar lýsa sig nú reiðubúna til að ræða vegvísi um hvernig unnt gæti verið að haga umsóknarferli um aðild að Evrópusambandinu. Það er góðs viti. Leiðari Þorsteins Pálssonar um þetta efni á sunnudag kallar hins vegar á nokkrar athugasemdir. Í fyrsta lagi virðist Þorsteinn ganga út frá því að ekki sé unnt að taka ákvörðun um aðild fyrr en stjórnarskrá hafi verið breytt. Ekkert hindrar ríkisstjórn á hverjum tíma í að sækja um aðild að ESB, svo fremi hún hafi til þess meirihluta- fylgi á Alþingi. Þannig hafa nágrannalönd okkar borið sig að við aðildarumsókn og ekkert mælir með því að við höfum annan hátt á. Ekki verður heldur séð af hverju hér á landi eigi að þurfa þjóðarat- kvæðagreiðslu til að heimila umsókn. Í annan stað mælir Þorsteinn með því að meiri hluti þjóðarinnar þurfi að mæta á kjörstað og greiða atkvæði með aðild. Ég spyr á móti: Af hverju á að telja þá sem ekki hafa nægilegan áhuga á að mæta á kjörstað til andstæðinga málsins? Þvert á móti má ætla að í heimasetu felist vísbending um að sá hluti þjóðarinnar sé bærilega sáttur við tillöguna. Eftir að aðildarsamningur liggur fyrir þarf að bera hann undir þjóðaratkvæði. Ekkert girðir fyrir að slík þjóðar- atkvæðagreiðsla fari fram þótt stjórnar- skrárbreyting hafi ekki verið gerð. Ef þjóðin hafnar samningnum er sjálfhætt. Ef þjóðin samþykkir samninginn kemur til kasta Alþingis að samþykkja stjórnar- skrárbreytingu. Að því verki loknu er annað tveggja hægt að rjúfa þing og boða til kosninga – nú eða einfaldlega bíða til loka formlegs kjörtímabils ef ekki liggur meira á. Aðildin tekur náttúrulega ekki gildi fyrr en Íslendingar hafa gert stjórnskipulegar ráðstafanir sem gera þjóðinni kleift að starfa innan ESB. Umræða um vegvísi er nauðsynleg. Hún leysir menn hins vegar ekki undan raunsæju mati á þjóðarhagsmunum. Með sama hætti á umræða um vegvísi ekki að snúast um að setja upp frekari farartálma eða hraðahindranir á leið þjóðarinnar að aðild að ESB, ef vilji þjóðarinnar stendur til aðildar. Höfundur er alþingismaður. Vegvísir eða farartálmi? ÁRNI PÁLL ÁRNASON Á öndverðum meiði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra er andsnúin byggingu álvers við Helguvík. Hún segir að stóriðjuframkvæmdir á suð- vesturhorninu séu ekki góð hagfræði heldur líklegar til að ýta undir enn meiri verðbólgu. Á öndverðum meiði er Geir H. Haarde forsætisráðherra. Hann telur að bygging nýs álvers geti þvert á móti orðið heppileg fyrir efnahagslífið og aukið hag- vöxt. Það er því ljóst að hvort sem álver rís í Helgu- vík eða ekki verður niðurstaðan þvert á vilja annars stjórnar- flokksins. Það hlýtur að skapa spennu á stjórnarheimilinu. Tossarnir sektaðir Borgaryfirvöld hyggjast sekta eig- endur niðurníddra húsa í miðborg- inni ef þeir taka ekki á sig rögg. Gott mál. En hversu mörg slík hús ætli séu í eigu borgarinnar? Nú er til dæmis næstum ár liðið frá því að nokkur hús brunnu í Austurstræti. Rústirnar eru enn á sínum stað - í boði borgarinnar, sem keypti að minnsta kosti eina eign. Getur farið svo að Reykvíkingar þurfi ekki aðeins að horfa upp á þetta gapandi sár í hjarta borgarinnar heldur einnig greiða sektir af þeim? Nauðbeygðir undir lögin Egill Helgason spurði ráðherra og þingmenn í Silfrinu á sunnudag hvernig þeir gætu leyft sér að eyða peningum í aðstoðarmenn fyrir þingmenn í þeim efnahagsþrenging- um sem nú eru. Atli Gíslason minnti á að Vinstri grænir voru ekki hlynntir þessu fyrirkomulagi á sínum tíma og sátu hjá í atkvæðagreiðslu. Engu að síður hafa þrír þingmenn Vinstri grænna ráðið sér aðstoðarmann, þar á meðal Atli sjálfur. Hann svaraði því til að hann færi að lögum í landinu. Bíðum við, eru þingmenn beinlínis skyldaðir til að hafa aðstoðar- menn? Það hlýtur að vera. Annars væri ekkert því til fyrirstöðu að Vinstri grænir sýndu afstöðu sína í verki með því að ráða ekki aðstoðar- menn. bergsteinn@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 H eimildir lögreglunnar til að hafa eftirlit með fólki án vitneskju þess eru rúmar samkvæmt íslenskum lögum. Reyndar eru lagaákvæðin svo opin að þau virðast fremur vera sniðin að hagsmunum lögregl- unnar en borgaranna. Til þess að útvega sér dómsúrskurð um símhleranir, ljósmynd- un eða hreyfimyndaupptökur á laun þarf lögreglan að sýna fram á að eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt: „a. að ástæða sé til að ætla að upplýsingar, sem skipt geta miklu fyrir rannsókn máls, fáist með þessum hætti,“ og „b. að rannsókn beinist að broti sem varðað getur að lögum átta ára fangelsi eða ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir krefjist þess.“ Þetta er ekki flókinn texti og nær fyrir vikið yfir víðfeðmt svið rannsókna á mögulegum afbrotum. Það er dómstóla að meta í hvert sinn hvort réttmætt sé að brjóta á einkalífi hinna grunuðu með eftirlitinu. Hér á landi beitir lögreglan símhlerunum fyrst og fremst í einum málaflokki, við rannsókn mögulegra fíkniefna- brota. Og hafa dómstólarnir verið mjög viljugir til að verða við óskum um hleranir við þær aðstæður. Í Fréttablaðinu í gær er sagt frá því að lögreglan hafi á síðasta ári sex sinnum fengið heimild til að hlera síma manns sem lá undir grun í tilteknu fíkniefnamáli. Að auki kom lögreglan fyrir svoköll- uðum eftirfararbúnaði í bíl mannsins og gat því fylgst með ferð- um hans. Þegar til kastanna kom reyndist maðurinn ekki viðriðinn málið. Var hann þá búinn að sæta eftirliti svo vikum og mánuðum skipti. Í greinargerð lögreglunnar, sem lá til grundvallar hlerunar- heimildunum, kemur fram að maðurinn á brotaferil að baki. Lítill vafi er á því að sú saga mannsins hefur haft sitt að segja þegar héraðsdómur heimilaði eftirlit með honum, sex sinnum í röð, án þess að neitt kæmi í ljós sem gæfi tilefni til handtöku eða ákæru. Þolinmæði okkar tíma gagnvart þeim sem mögulega stunda sölu og eða innflutning á fíkniefnum er af ákaflega skornum skammti. Það eru fáir tilbúnir að taka upp hanskann fyrir þá sem stunda slíka iðju. Engu að síður hlýtur það að vera umhugsunarefni ef lög- reglan fær mjög frjálsar hendur til hlerana við rannsóknir fíkni- efnamála. Slíkt andrúmsloft gagnvart hlerununum getur hæglega smitast milli málaflokka með tíð og tíma. Meðal þess sem er löngu tímabært að bæta úr er eftirlit með framkvæmd hlerana. Í ýmsum nágrannalöndum okkar er sá hátt- ur hafður á að um leið og dómsúrskurður fellur er skipaður réttar- gæslumaður fyrir þann sem á að hlera. Réttargæslumaðurinn fylgist þá með því, að skjólstæðingi sínum óafvitandi, að ekki sé brotinn réttur á honum. Þetta er rökrétt fyrirkomulag og dregur úr tortryggni um farið sé frjálslega með hleranir. Lagaákvæðin virðast fremur sniðin að hags- munum lögreglunnar en borgaranna. Eftirlitslaust eftirlit JÓN KALDAL SKRIFAR Löngu tímabært er að bæta eftirlit með framkvæmd hlerana. Í ýmsum nágrannalöndum okkar er sá hátt- ur hafður á að um leið og dómsúrskurður fellur er skipaður réttargæslumaður fyrir þann sem á að hlera.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.