Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 1. apríl 2008 17 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 696 5.051 +2,47% Velta: 42.539 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,36 +0,68% ... Bakkavör 41,30 +1,23% ... Eimskipafélagið 23,15 -5,89% ... Exista 10,40 +1,76% ... FL Group 6,34 +1,44% ... Glitnir 17,25 +0,58% ... Ice- landair 25,00 +1,63% ... Kaupþing 803,00 5,38% ... Landsbankinn 29,60 +0,85% ... Marel 92,50 +1,31% ... SPRON 4,29 +0,47% ... Straumur-Burðarás 11,74 +1,12% ... Teymi 4,29 -0,69% ... Össur 92,70 +0,43% MESTA HÆKKUN KAUPÞING 5,38% EXISTA 1,76% ICELANDAIR 1,63% MESTA LÆKKUN ICELANDIC GROUP 9,66% EIMSKIPAFÉLAGIÐ 5,89% EIK BANKI 2,06% Umsjón: nánar á visir.is Össur selur sáraumbúðalínu Össur hf. hefur selt sáraumbúðavörulínu félagsins til BSN medical GmbH á sem nemur ellefu milljónum Bandaríkja- dala, eða rúmar 800 milljónir króna. Hagnaður upp á 5,5 milljónir dala verður bókfærður á fyrsta ársfjórðungi vegna sölunnar. Andvirði sölunnar getur hins vegar hækkað um allt að 6 milljónum dala að ákveðnum skilyrðum upp fylltum, en þar ræður nokkru niðurstaða mála- ferla vegna einkaleyfa fyrir vörulínuna. Össur rekur þau mál áfram. „Hluti af söluandvirðinu verður notaður til þess að koma á móti kostnaði vegna málaferl- anna,“ segir kauphallartilkynningu. FYRIRTÆKJAFRÉTTIR Útflutningsráð Íslands og Háskólinn í Reykjavík bjóða til morgunverðarfundar um markaðslegan ávinning fyrirtækja af samfélagslegri ábyrgð, miðvikudaginn 2. apríl 2008 á Grand Hótel kl. 08.30-10.00. Fundurinn er öllum opinn en skráning fer fram í s. 511 4000 eða með tölvupósti á netfangið utflutningsrad@utflutningsrad.is. Nánari upplýsingar um fundinn gefur Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði, inga@utflutningsrad.is. FYRIRTÆKI OG FRAMTÍÐIN Ávinningur af samfélagslega ábyrgum viðskiptum Dagskrá: Opnun - Hvað er samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja (CSR)? Páll Ásgeir Davíðsson, sérfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík. Corporate Responsibility – from challenges to opportunities. Elin Myrmel-Johansen, framkvæmdastjóri , Storebrand, Noregi. Can CSR and commercial opportunities go hand in hand? Henrik Marstrand, framkvæmdastjóri, Mater a/s, Danmörku. Vinningshafi Wallpaper tímaritsins í Bretlandi - "Best Debut Design Brand 2007." Nordic Business Outreach. Ragna Sara Jónsdóttir, sérfræðingur hjá utanríkisráðuneytinu / UNDP. Fundarstjóri: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. PIP A R • S ÍA • 8 0 6 2 9 Net12 er rakin leið fyrir þau fyrirtæki og félög sem vilja fara í alvöru vaxtarækt með Byr. FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA Notaðu vextina strax Sími 575 4000 | www.byr.is // Hleyptu vexti í reksturinn // Fáðu háa ávöxtun // Reiknaðu dæmið til enda Þú færð vaxtavexti af þeim vöxtum sem ekki eru greiddir jafnóðum út. Ertu að leita þér að aukavinnu? Fasteignafélagið Landic Property hagnaðist um 2,5 milljarða króna í fyrra. Árið áður nam hagnaður- inn 11,4 milljörðum króna. Greiningardeild Kaupþings bendir á að samanburður á milli ára sé erfiður þar sem félagið hafi tekið miklum stakkaskiptum í fyrra með yfirtöku á norræna fasteignafélaginu Keops. Haft er eftir Skarphéðni Berg Steinars- syni forstjóra í tilkynningu að samþætting félaganna sé á lokastigi. Undir eignir Landic Property, sem er eitt stærsta fasteignafé- lag Norðurlands, falla 500 eignir í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og hér á landi. - jab Landic Property hagnast minna „Við höfum fengið nokkrar fyrir- spurnir um fjárhagsstöðu sjóðs- ins, einkum frá erlendum blaða- mönnum,“ segir Jónas Þórðarson, framkvæmdastjóri Trygginga- sjóðs innstæðueigenda. Fram kom í breska blaðinu Times í fyrradag að breskir inni- stæðueigendur tækju fé unn- vörpum út af Edge-reikningum Kaupþings og Icesave-reikningum Landsbanka. Fram kemur í frétt- inni að breski tryggingasjóðurinn ábyrgist innistæður á reikningum Kaupþings upp að 35 þúsund pundum. Hins vegar séu inni- stæður Icesave tryggðar hjá íslenska sjóðnum. Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans, segir að ein- hverjir hafi tekið út af reikning- um sínum, en aðrir lagt inn í staðinn. „Hafa þarf í huga að miklar breytingar hafa orðið á markaðnum. Viðskiptavinum hefur fjölgað mikið, en hver og einn leggur inn lægri fjárhæð.“ Benedikt Sigurðsson, upp- lýsingafulltrúi Kaupþings, segir það ekki rétt að fólk hafi tekið fé út af reikningum sínum. Tryggingasjóður innstæðu- eigenda veitir þeim sem eiga fé í bönkum lágmarksvernd, lendi fjármálastofnun í greiðsluerfið- leikum. Sjóðurinn ábyrgist að greiða innistæðueigendum allt að tvær milljónir króna, komi til slíks. Bankar og sparisjóðir þurfa á hverjum tíma að geyma í sjóðnum eitt prósent af öllum innistæðum. Fram kemur í ársreikningi sjóðsins fyrir síðasta ár að í hann vanti átta og hálfan milljarð króna. Jónas Þórisson segir að bank- ar og sparisjóðir hafi greitt sjóðnum tvo og hálfan milljarð króna og reitt fram ábyrgðir fyrir sex milljörðum. Þetta hafi gerst í mars. ingimar@frettabladid.is Spyrjast fyrir um tryggingar innlána Erlendir blaðamenn spyrjast fyrir um stöðu Trygg- ingasjóðs innstæðueigenda. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir að ábyrgðir hafi verið lagðar fram. FÓLK TEKUR FÉ ÚT ÚR NORTHERN ROCK BANKANUM Times fullyrðir að fólk taki fé út úr íslenskum bönkum í Bretlandi. Bankarnir segja aðra sögu. Erlendir blaðamenn spyrjast fyrir um Tryggingasjóð innstæðueigenda. „Við höfum kallað eftir upplýsingum um hvort skipulegur neikvæður orðrómur í því skyni að hagnast sé á ferðinni. Svo verður framhaldið ákveðið,“ segir Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Eftirlitið hóf í síðustu viku rann- sókn á því hvort atlaga hafi verið gerð á íslenskt fjármálakerfi, með því að röngum upplýsingum hafi verið komið á framfæri. Sé um slíkt að ræða gæti það tengst hlutabréfa- verði, afleiðustöðum í skuldabréfum eða stöðum í krónunni. Jón segir að rannsóknin sé á frumstigi og vill lítið tjá sig um hana. Til að mynda vill hann ekkert um það segja hverja Fjármála- eftirlitið rukkar um gögn, að öðru leyti en því að erlendar systurstofnanir hafi enn sem komið er ekki verið beðnar um aðstoð. Eitthvað af gögnum hafi þegar borist Fjármálaeftirlitinu. Engar ályktanir verði dregnar af þeim að svo stöddu. „Það þarf að hafa í huga að þetta er alls ekki einfalt mál,“ segir Jónas. Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði í ræðu á ársfundi Seðla- bankans á föstudag, að til álita hlyti að koma að gera „alþjóðlega opin- bera rannsókn á slíku tilræði við heilbrigð fjármálakerfi“. Þar vís- aði hann meðal annars til rógsher- ferðar á hendur breska HBOS- bankanum og þess að á föstudag hefði tryggingaálag á ríkið hækkað um 400 punkta „sem er fráleitt, lyktar óþægilega af því að óprúttnir miðlarar hafi ákveðið að gera úrslitatilraun til að brjóta niður íslenska fjármálakerfið,“ sagði Davíð. - ikh FME eitt með rannsóknina JÓNAS FR. JÓNSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.