Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 34
 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Þróunarsamvinnustofnun Íslands hóf störf í Níkaragva fyrir tveimur árum. Hún vinnur að uppbyggingu jarðvarmanýt- ingar en sinnir auk þess félagslegum verkefnum og hefur staðið fyrir byggingu fimm mæðrahúsa. Það fimmta var opnað í þorpinu La Cruz de Rio Grande á dögunum en húsin fimm hafa öll verið reist á síðasta eina og hálfa ári. Gerður Gestsdóttir, verkefnastjóri hjá ÞSSÍ, segir mæðra- og ungbarnadauða umtalsvert meiri í strjálbýlum héruðum landsins en í þéttbýli, en mæðrahúsin hafa átt þátt í því að draga úr slíkum dauðsföllum. „Við einbeitum okkur aðallega að Atlantshafsströndinni sem liggur út að Karíbahafi. Þetta svæði er gífurlega ein- angrað og mikil fátækt. Þar býr annað fólk en Kyrrahafs- megin, þar sem stærsti hluti þjóðarinnar býr, og þar eru töluð önnur tungumál,“ lýsir Gerður. Engir vegir liggja að þessum svæðum og til að komast á sjúkrastofnun þarf að sigla langar leiðir. Það getur tekið þungaðar konur marga daga að komast á leiðarenda og því hefur mæðrahúsunum verið komið á fót en þau eru um sextíu á landsvísu. Þau eru ávallt reist við heilsugæslu eða spítala en þangað koma konur sem eru í einhverri hættu á meðgöngu. Konurnar koma á heimilin um tveimur vikum fyrir áætl- aðan fæðingardag. Þar fara þær í reglulega læknisskoð- un og fá fræðslu um meðgöngu, næringu, umönnun ung- barna, lagaleg réttindi og heimilisofbeldi þegar þess gerist þörf. Þær fæða síðan á sjúkrastofnuninni og liggja sængur- leguna í mæðrahúsinu. Gerður segir fjölmargar kornungar mæður á þessu svæði og töluvert um heimilisofbeldi. Þegar húsunum hefur verið komið á fót eru sterk félaga- samtök fengin til að reka þau. „Það er mikilvægt að tryggja eignarhald samfélagsins á húsunum til þess að konurnar fáist til þess að mæta. Þær þurfa að geta treyst því að þetta sé eitthvað fyrir þær en í sveitum er oft tortryggni í garð heilbrigðiskerfisins. vera@frettabladid.is ÞRÓUNARSAMVINNUSTOFNUN: OPNAR FIMMTA MÆÐRAHÚSIÐ Á SÍNUM VEGUM Mæðravernd utan þéttbýlis MÆÐRAHÚSIN HAFA SANNAÐ GILDI SITT Gerður Gestsdóttir, verkefna- stjóri hjá ÞSSÍ, opnaði fimmta mæðrahúsið í Níkaragva á dögunum. Hér er hún ásamt syni sínum Gesti Diriangen. TÉKKNESKI RITHÖFUNURINN MILAN KUNDERA ER 79 ÁRA Í DAG „Það eru engin lítil hlutverk til. Bara litlir leikarar.“ Kundera er þekktastur fyrir bók sína Óbærilegur léttleiki tilverunnar. Þennan dag árið 2001 var sam- kynhneigðum í HollandI leyft að gifta sig. Hol- land varð þar með fyrsta land- ið til að leiða slík lög í gildi. Um miðjan níunda ára- tuginn hófu stjórnvöld að kanna þennan möguleika að undirlagi þrýstihóps samkynhneigðra með Henk Krol í fararbroddi. Árið 1998 gátu samkynhneigðir staðfest samvist sína og fengu þar með sömu lagalegu réttindi og hjón. Gifting- arfrum- varpið var samþykkt hinn 19. desember árið 2000 en lögin gengu í gildi 1. apríl árið eftir. Þann dag voru fjögur sam- kynhneigð pör gefin saman af Job Cohen, borgarstjóra Amsterdam. ÞETTA GERÐIST: 1. APRÍL 2001 Samkynhneigðir gefnir saman í Hollandi timamot@frettabladid.is Maðurinn minn, Gímur Kristinn Jóhannesson frá Þórisstöðum, Aðalstræti 76, Akureyri, lést 28. mars sl. á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin verður auglýst síðar. Guðbjörg Júlía Kortsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Jónsdóttir Ásabyggð 14, Akureyri, andaðist á dvalarheimilinu Hlíð 29. mars. Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Okkar innileg- ustu þakkir til starfsfólks Hlíðar og annarra sem auðsýndu henni hlýju og umönnun síðustu árin. Jónína Jónsdóttir Marteinn Jónsson Hólmfríður Hólmgeirsdóttir Hermann Jónsson Sveinfríður Jóhannsdóttir Vigdís Jónsdóttir Guðmundur Olsen Þorsteinn Jónsson Lydía Helgadóttir Jóhann Jónsson Heiðrún Árnadóttir Friðrik Jónsson Jófríður Jóhannesdóttir Anna Jónsdóttir Sigurbjörn Vilbergsson ömmu og langömmubörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Sigurlaugar Sigrúnar Björnsdóttur Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi, áður Sólvallagötu 41, Reykjavík. Stefanía Drew, Arnold Drew, Elín Kristinsdóttir barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Fríðu Guðbjartsdóttur, Kjartansgötu 15, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra, Borgarnesi og heimahjúkrunar Borgarnesi. Valur Thoroddsen Haukur Valsson Kristín Einarsdóttir Hildur Valsdóttir Snædís Valsdóttir Ólafur Sigurðsson Anna Valsdóttir Árni Magnússon Magnús Valsson Guðrún Ásgeirsdóttir ömmu- og langömmubörn. Hjartans ástkæri sonur okkar, bróðir, mágur og barnabarn, Huginn Heiðar Guðmundsson Greniteigi 49, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju miðviku- daginn 2. apríl kl 13.00. Blóm og kransar eru vinsam- legast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á einhver af eftirtöldum samtökum: Einstök börn, Umhyggja eða Barnaspítalasjóð Hringsins. Guðmundur B. Guðbergsson Fjóla Ævarsdóttir Natan Freyr Guðmundsson Sóley Ásgeirsdóttir Hafrún Eva Kristjánsdóttir Guðjón Örn Kristjánsson Ásdís Rán Kristjánsdóttir Guðbergur Ólafsson Esther Jósefsdóttir Ævar Þorsteinsson Ingibjörg Jósefsdóttir 80 ára afmæli Í dag, 1. apríl, er Þóra Karítas Árnadóttir, Melabraut 6, Seltjarnarnesi, 80 ára. Í tilefni dagsins tekur hún á móti ætting jum og vinum að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, í dag kl. 17 til 19. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Tómas Tómasson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Keflavíkur, Langholti 14, Keflavík , lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 28. mars. Útför hans verður gerð frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 4. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar vinsam- lega afþakkaðir en þeir sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Halldís Bergþórsdóttir Ásgerður Kormáksdóttir Jón R. Jóhannsson Jórunn Tómasdóttir Skúli Thoroddsen Halla Tómasdóttir Pálmi B. Einarsson Bergþóra Tómasdóttir Stefán Eyjólfsson Tómas Tómasson Svala B. Reynisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Sigurjón Ingvason til heimilis að Hrafnistu, Hafnarfirði, lést 17. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. börn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, Kristín Björk Aðalsteinsdóttir fyrrverandi leigubílstjóri, Fífusundi 11, Hvammstanga, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut á deild 11. G, föstudaginn 28. mars sl. Útförin auglýst síðar. Hafþór Jóhannsson Þórunn Grétarsdóttir Rósa Jóhannsdóttir Guðjón Hildibrandsson Ágústa B. Jóhannsdóttir Einar J. Gunnþórsson Aðalsteinn Jóhannsson Jóhann Gunnar, Alexandra Sif, Hrannar Már, Telma Rut, Hjördís, Eydís Birna, Kristín Björk, Þórdís Lilja, Valdís Anja og Bjarndís Júlía Aðalsteinn Björnsson Jóhanna S. Árnadóttir Árný R. Aðalsteinsdóttir Jóhannes S. Stefánsson Björn Á. Aðalsteinsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Ágústsson, Urðartjörn 5, Selfossi, varð bráðkvaddur laugardaginn 29. mars. Útförin verður auglýst síðar. Erla Eyjólfsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.