Fréttablaðið - 01.04.2008, Page 8
8 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1. Hvaða bankastofnun sagði
nýlega upp eða gerði starfsloka-
samninga við fjórtán konur?
2. Hver höfðar nú mál gegn
Vegagerðinni vegna nýs Gjá-
bakkavegar við Þingvelli?
3. Hvert er aðalstarf Zlatkos
Krickic, sem fer með hlutverk
handrukkara í Stóra planinu?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
BRETLAND, AP Réttarrannsókn á láti
Díönu prinsessu hefur ekki leitt í
ljós neinar sannanir um að
samsærismenn hafi skipulagt
dauða hennar.
„Það eru engar vísbendingar
um að hertoginn af Edinborg hafi
skipað fyrir um aftöku Díönu, né
heldur eru neinar vísbendingar
um að leyniþjónustan eða nokkur
önnur ríkisstofnun hafi skipulagt
það,“ segir áfrýjunardómarinn
Scott Baker, sem stjórnaði réttar-
rannsókninni.
Díana prinsessa fórst, ásamt
kærasta sínum Dody Fayed og
bílstjóra þeirra, í bílslysi í París
árið 1997.
Mohamed Al Fayed, faðir Dodys,
hefur lengi haldið því fram að Fil-
ippus drottningarmaður og breska
leyniþjónustan hafi staðið á bak
við dauða þeirra. Hann ítrekaði
þessar ásakanir í vitnisburði
sínum við réttarrannsóknina.
Nærri 250 manns báru vitni í
tengslum við rannsóknina, þar á
meðal nánir vinir Díönu, einka-
ritari Filippusar, fyrrverandi yfir-
maður bresku leyniþjónustunnar
og Paul Burrell, fyrrverandi
einkaþjónn Díönu.
Baker sagði kviðdómi að sýnt
hafi verið fram á að sumar af
ásökunum Al Fayeds væru „svo
gjörsamlega úr lausu lofti gripnar
að lögfræðingur hans fylgir þeim
ekki lengur eftir, jafnvel þótt hann
haldi í hjarta sínu áfram að trúa á
sannleiksgildi þeirra“. - gb
Breskri réttarrannsókn á láti Díönu prinsessu lokið:
Engin merki um samsæri
ÞUNGUR Á BRÚN Mohamed Al Fayed,
faðir kærasta Díönu prinsessu, fékk ekki
grunsemdir sínar staðfestar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR Rífa verður fjölbýlis-
húsið, sem hrundi í bergskriðu í
Álasundi í Noregi í síðustu viku,
til að finna þá sem óttast er að
liggi þar látnir. Niðurrifið getur
ekki byrjað fyrr en brunanum úr
gastanknum í kjallara hússins er
lokið, segir í vefútgáfu Dagens
Nyheter.
Björgunarstarfið á svæðinu er
enn mjög áhættusamt þar sem
hætta er á því að þrír klettar á
bak við húsið geti hreyft sig
frekar og aukið þar með líkurnar
á skriðu og frekara hruni eða
slysum á svæðinu. Mikil sprengi-
hætta er talin fyrir hendi.
Hundruð íbúa bíða eftir því að
fá að flytja í hús sín í nágrenni
fjölbýlishússins. - ghs
Álasund í Noregi:
Enn mikil
sprengihætta
HUNDRUÐ BÍÐA Hundruð íbúa bíða eftir
því að fá að flytja heim til sín eftir að
klettar hrundu á fjölbýlishúsið í Álasundi
í síðustu viku.
Guantanamo fangi ákærður
Bandarísk yfirvöld hafa ákært
Ahmed Khalfan Ghailani, fanga í
Guantanamo-búðunum á Kúbu, fyrir
aðild að mannskæðri árás á sendiráð
Bandaríkjanna í Tansaníu árið 1998.
11 manns fórust í árásinni.
BANDARÍKIN
Heilbrigðisráðherra rekinn
Ferenc Gyurcsany, forsætisráð-
herra Ungverjalands, hefur rekið
Agnesi Horvath fjármálaráðherra úr
ríkisstjórn sinni. Hætta er á stjórnar-
kreppu, þar sem Bandalag frjálsra
demókrata, samstarfsflokkur Sósíal-
istaflokks forsætisráðherrans í ríkis-
stjórninni, er afar ósátt við brottvísun
fjármálaráðherrans, sem er úr röðum
frjálsra demókrata.
UNGVERJALAND
SVEITARSTJÓRNIR Áhyggjur eru í
Hrunamannahreppi af lítilli
viðkomu og hefur fræðslunefndin
óskað eftir fleiri börnum með
ákalli í smáauglýsingu á heima-
síðu hreppsins:
„Nú er svo komið að lítið er af
barnsfæðingum í Hrunamanna-
hreppi og sjáum við fram á
fækkun barna í leik- og grunn-
skólanum. Til dæmis eru einungis
fjögur börn sem byrja í 1. bekk
haustið 2008. Viljum við taka
undir þær hvatningar sem við
fengum frá leikskólakonunum á
hjónaballinu og hvetja fólk á
öllum aldri til að leggjast á .... eitt
og fjölga barneignum í sveitinni.
Minnum á að um ókeypis
líkamsrækt er að ræða. Með von
um góða skemmtun.“ - gar
Viðkomuleysi Hrunamanna:
Skora á fólk að
geta fleiri börn
ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON Sveitar-
stjórinn í Hrunamannahreppi.
HAFNARFJÖRÐUR Líkur eru á því að
tekist verði á um formennsku í
Samfylkingarfélaginu í Hafnar-
firði á aðalfundi félagsins 9. apríl.
Til greina kemur að Gunnari Axel
Axelssyni, ritara félagsins, verði
stillt upp til formanns og að
Valgerður Halldórsdóttir,
fyrrverandi bæjarfulltrúi, bjóði
sig fram. Guðni Kjartansson,
formaður uppstillingarnefndar,
segir að venjan sé að uppstilling-
arnefnd leggi fram lista á
aðalfundi. Átta sitji í stjórn
Samfylkingarfélagsins; fimm í
aðalstjórn og þrír í varastjórn.
Listinn verði ekki gerður opinber
fyrr en á aðalfundinum. - ghs
Samfylkingin í Hafnarfirði:
Tveir bjóða sig
til formanns
STJÓRNMÁL Það er býsna mikið
verk að meta umhverfisáhrif
heilsársvegar yfir Kjöl og hæpið
að ráðast í það nema að sérstökum
fjárheimildum fengnum, segir í
umsögn Vegagerðarinnar um
þingsályktunartillögu um heils-
ársveg yfir Kjöl. Í henni er ríkis-
stjórninni falið að kanna þjóðhags-
lega hagkvæmni slíks vegar auk
þess sem gerð verði forkönnun á
umhverfisáhrifum og samfélags-
leg áhrif könnuð á atvinnustarf-
semi og byggðir.
Sextán þingmenn úr öllum
flokkum, utan VG, flytja tillöguna.
Kjartan Ólafsson Sjálfstæðis-
flokki er fyrsti flutningsmaður.
Í umsögn Vegagerðarinnar segir
að eigi nýr Kjalvegur að bera
þungaflutninga kosti hann líklega
á milli sex og sjö milljarða og að
nefnt hafi verið að kostnaður
vegna vetrarþjónustu verði um
100 milljónir á ári. Þá segir að
lengstum hafi verið lögð meiri
áhersla á að bæta vegi um byggðir
landsins en hálendisvegi. „Þó
vegakerfið hafi batnað verulega á
síðustu áratugum er enn talin ærin
þörf fyrir margs konar úrbætur,
ekki síst á aðal flutningaleiðum,“
segir í niðurlagi umsagnar Vega-
gerðarinnar.
Fjölmargir umsagnaraðilar
leggjast gegn tillögu Kjartans og
félaga. Í þeim hópi eru Landvernd,
Ferðaklúbburinn 4x4 og Ferðafé-
lag Íslands. Samtök ferðaþjónust-
unnar eru einnig andvíg, á þeim
forsendum að samkvæmt tillög-
unni yrði nýr vegur lagður yfir
ósnortið land sem myndi skera í
sundur allar helstu göngu- og reið-
leiðir norðan Hofsjökuls. „Vegur
af þeirri gerð sem hér er rætt um
sviptir hálendið sérkennum sínum
og þeirri öræfastemningu sem
ferðamenn sækjast eftir,“ segja
Samtök ferðaþjónustunnar.
Rútufyrirtækið SBA-Norðurleið
er á öðru máli. „Ferðaþjónusta á
Norðurlandi kemst í betra sam-
band við stærsta markaðssvæði
landsins, sem eykur vaxtarmögu-
leika hennar í fjórðungnum. Þá er
ljóst að með lagningu þessa vegar
sparast háar fjárhæðir í eldsneyti
sem lækkar flutningskostnað
verulega,“ segir í umsögn fyrir-
tækisins.
Fleiri eru hlynntir, til dæmis
Samband sveitarfélaga í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum og Samtök
verslunar og þjónustu, sem segja í
sinni umsögn fulla ástæðu til að
hvetja til að byltingarkenndar
hugmyndir í samgöngumálum séu
skoðaðar. bjorn@frettabladid.is
Vegagerðin efast um
heilsársveg yfir Kjöl
SBA-Norðurleið telur heilsársveg yfir Kjöl geta aukið vaxtarmöguleika ferða-
þjónustunnar. Samtök ferðaþjónustunnar telja slíkan veg svipta hálendið
öræfastemningu. Vegagerðin telur ýmis verk brýnni.
HLUTI KJALVEGAR Sextán þingmenn vilja að
hagkvæmni nýs heilsársvegar yfir Kjöl verði könnuð.
Skiptar skoðanir eru innan ferðaþjónustunnar um
hvort slíkur vegur sé greininni til góðs eða ills.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Sæta lengra varðhaldi
Mennirnir sex sem eru grunaðir um
fólskulega líkamsárás gegn íbúum
í Keilufelli munu sæta gæsluvarð-
haldi til 14. apríl. Tveir þeirra kærðu
úrskurðinn, en Hæstiréttur staðfesti
hann í gær.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?