Fréttablaðið - 01.04.2008, Page 10
10 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
ORKUMÁL Erfiðleikar í fjármála-
kerfinu munu ekki koma illa við
orkugeirann, segir Ólafur G. Fló-
venz, forstjóri Íslenskra orku-
rannsókna (ÍSOR). Hann segir fyr-
irtæki í orkuiðnaði frekar koma til
með að styrkjast en veikjast.
„Að öllu samanlögðu virðist mér
blasa við að íslenskur orkuiðnaður
með sterkar rætur í kunnáttu á
virkjun jarðhita eigi bjarta fram-
tíð fyrir sér, bæði innanlands og í
útrás til annarra landa,“ sagði
Ólafur á ársfundi ÍSOR nýverið.
Ólafur sagði gengisfall krón-
unnar hafa lítil áhrif á orkufyrir-
tækin, þó skuldir í erlendri mynt
hækki. Á móti komi að tekjur af
stóriðju séu í erlendri mynt.
Þá muni gengislækkunin styrkja
samkeppnisstöðu íslenskra fyrir-
tækja á borð við ÍSOR. Hátt gengi
krónunnar hafi verið farið að
verða fyrirtækinu talsverður fjöt-
ur um fót.
Aukist atvinnuleysi hér á landi
vaxa frekar en minnka líkur á
frekari uppbyggingu á orkumann-
virkjum, ekki síst með virkjun
háhitasvæða, sagði Ólafur.
Hann benti á að orkuþörf heims-
ins sé mikil, og aukin brennsla
jarðefnaeldsneytis magni lofts-
lagsvandann. Orkuverð muni
halda áfram að stíga, sem og
áhersla á endurnýjanlega orku.
„Það þýðir að hvernig svo sem
fjármálakreppan mun birtast
okkur þá mun orkuiðnaðurinn
standa hana af sér og ef til vill
fremur eflast en hitt,“ sagði Ólafur.
- bj
Forstjóri Íslenskra orkurannsókna segir erfiðleika á fjármálamarkaði ekki koma illa við orkugeirann:
Orkuiðnaður styrkist frekar en veikist
LÖGREGLUMÁL „Við hörmum þenn-
an atburð og fordæmum hann,“
segir Magnús Einarsson, for-
maður Afstöðu, félags fanga, um
atvik sem varð í fangelsinu á
Litla-Hrauni á föstudag þegar
fangi var stunginn með útskurðar-
sporjárni í rasskinn.
Atburðurinn varð með þeim
hætti að fjórir fangar komu inn í
söluturn í fangelsinu þar sem
fyrir voru þrír fangar. Einn hinna
síðarnefndu vissi svo ekki fyrr en
hann fékk sting í aðra rasskinn-
ina. Þegar hann fór að huga betur
að varð hann var við að í rass-
kinninni stóð útskurðarsporjárn
sem einn mannanna fjögurra
hafði stungið í hann.
Fanginn gerði þegar vart við
hvernig komið var og var fluttur
á Heilsugæsluna á Selfossi þar
sem gert var að sárinu en það
reyndist minni háttar. Hinir fjór-
ir voru settir í einangrun og yfir-
heyrðir sem sakborningar. Þeir
fengu að fara í klefa sína að lok-
inni yfirheyrslu.
Enn er ekki ljóst hver fjögurra
fanganna var valdur að verknað-
inum. Grunur leikur á að þarna
hafi menn talið sig vera að jafna
gamalt ósætti, samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins. Lög-
reglan á Selfossi rannsakar
málið.
„Niðurstaða lögreglu um hver
beitti sporjárninu liggur ekki
fyrir,“ segir Margrét Frímanns-
dóttir, fangelsisstjóri á Litla-
Hrauni.
„Svona nokkuð á ekki að við-
gangast, hvorki í fangelsinu né
úti í samfélaginu,“ segir Magnús,
sem kveður Afstöðu hafa fjallað
um þetta mál. „Við höfum verið
að reyna að bæta ímynd fanga og
sýna fram á að við getum snúið til
betra lífs,“ segir hann enn frem-
ur. „Atvik af þessum toga eru
ekki til þess fallin að hjálpa til í
þeirri baráttu.“
Magnús segir að atvikið hljóti
að hafa gerst í hita leiks. Atburðir
af þessu tagi séu sem betur fer
ekki algengir í fangelsum.
„Ástandið hér á Litla-Hrauni
hefur verið nokkuð gott, andrúms-
loft og hegðun manna mjög góð.
Því er mjög slæmt þegar þetta
gerist og við erum ekki sáttir við
svona atburði.“ jss@frettabladid.is
Árásin í fang-
elsi fordæmd
Árás á Litla-Hrauni á föstudag, þegar fangi stakk
annan með útskurðarsporjárni, er hörmuð og for-
dæmd af Afstöðu, félagi fanga. Málið er í rannsókn.
LITLA-HRAUN Lögreglan á Selfossi rannsakar árás á fanga þar sem útskurðarsporjárni
var stungið í rasskinn hans.
VILJA AÐ ÍSOR VERÐI EINKAVÆDDAR
Vonir standa til að iðnaðarráðherra
ljúki vinnu við frumvarp um einka-
væðingu Íslenskra orkurannsókna
(ÍSOR), og það verði lagt fram á
Alþingi í upphafi haustþings, sagði
Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR, á
ársfundi stofnunarinnar.
Hann sagði stjórn og starfsmenn
ÍSOR hafa látið skoða kosti og
galla þess að einkavæða stofnun-
ina. Í leynilegri atkvæðagreiðslu
síðastliðið haust hafi 94 prósent
starfsmanna óskað eftir því við
iðnaðarráðherra að ÍSOR verði
breytt í hlutafélag í sameiginlegri
eigu ríkisins, starfsmanna og fyrir-
tækja í orkuiðnaði.
HLAUPIÐ UNDIR FORMANNINN
Kínverski hlauparinn Liu Xiang hljóp
í gær með ólympíueldinn gegnum
hlið hins himneska friðar. Yfir honum
vakti Mao Zedong heitinn, fyrr verandi
leiðtogi kínverskra kommúnista.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
Nýttu þér þetta
TILBOÐ
og stofnaðu rei
kning á spron.is16%
vaxtaauki!
A
RG
U
S
/
08
-0
10
0