Fréttablaðið - 01.04.2008, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 1. apríl 2008
PAKISTAN, AP Ráðherrar nýrrar
ríkisstjórnar í Pakistan sóru
embættiseiða sína í gær frammi
fyrir Pervez Musharraf forseta,
sem er pólitískur andstæðingur
þeirra.
Nýja ríkisstjórnin er staðráðin í
að þrengja mjög að völdum
forsetans, sem um árabil hefur
notið stuðnings Bandaríkjanna.
Musharraf hafði látið fangelsa
suma af ráðherrunum eftir að
hann rændi völdum í landinu árið
1999.
Musharraf klappaði stuttlega
fyrir nýju ríkisstjórninni, en
virtist spenntur og sagði þurr-
lega: „Þakka ykkur fyrir og til
hamingju.“ - gb
Nýir ráðherrar í Pakistan:
Vilja þrengja að
völdum forseta
LAUS ÚR STOFUFANGELSI Fyrsta verk
nýju stjórnarinnar var að fá Iftikhar
Muhammad Chaudhry dómara lausan
úr stofufangelsi. NORDICPHOTOS/AFP
TSJAD, AP Idriss Deby, forseti
Tsjads, hefur náðað sex franska
hjálparstarfsmenn, sem höfðu
hlotið dóm fyrir að ætla að ræna
103 börnum til ættleiðingar í
Frakklandi.
Hjálparstarfsmennirnir sex
voru framseldir til Frakklands
þar sem þeir áttu að afplána
dómana. Deby sagði náðun koma
til greina eftir að franski herinn
kom Tsjad til hjálpar í febrúar
síðastliðnum, þegar uppreisnar-
menn réðust inn í höfuðborg
landsins.
Hjálparstarfsmennirnir sögðu
börnin 103 vera munaðar-
leysingja frá Darfúr-héraði, en
við rannsókn kom í ljós að flest
þeirra áttu í það minnsta annað
foreldranna á lífi eða annan náinn
ættingja. - gb
Franska hjálparstarfsfólkið:
Fékk náðun frá
forseta Tsjad
DÓMSMÁL Karlmaður var í gær
dæmdur í átta mánaða fangelsi,
þar af fimm mánuði skilorðs-
bundna, fyrir að brjótast inn í tvö
sumarhús í landi Öndverðarness
og Miðengis á Suðurlandi.
Samkvæmt því sem fram
kemur í dómi Héraðsdóms
Suðurlands stal maðurinn, ásamt
félaga sínum, áfengi, hljómflutn-
ingstækjum, verkfærum og öðru
lauslegu úr sumarhúsunum.
Í dómnum kemur fram að
refsingin taki mið af því að
maðurinn hefur tvisvar áður
fengið dóma fyrir þjófnaði og
með athæfi sínu var hann að rjúfa
skilorð. - mh
Braust inn í sumarhús:
Fékk átta mán-
aða fangelsi
A
u
g
lý
si
n
g
as
ím
i
– Mest lesið
B.Ed. í grunnskólakennarafræði
B.Ed. í leikskólakennarafræði
B.S. í iðjuþjálfunarfræði
B.S. í líftækni
UMSÓKNARFRESTUR
ER TIL 5. JÚNÍ
B.S. í sjávarútvegsfræði
B.S. í umhverfis- og orkufræði
B.S. í viðskiptafræði
Háskólinn á Akureyri býður upp á fjarnám sem fer að mestu fram í gegnum netið en
til stuðnings eru myndfundir, lotur og aðrar samskiptaaðferðir.
Kynntu þér málið!
KYNNINGARFUNDUR Á NORDICA
MIÐVIKUDAGINN 2. APRÍL KL. 17-18
Í boði er eftirfarandi nám:
Nánari upplýsingar eru á www.unak.is eða í síma 460 8000.
Allir velkomnirwww.unak.is
Fjarnám á háskólastigi