Fréttablaðið - 01.04.2008, Side 12
12 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
REYKJAVÍK Miðborgarvandamál eru
í flestum tilvikum birtingarmynd
af enn stærra undirliggjandi
vandamáli, það er ofneyslu áfengis.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í fimmtíu síðna skýrslu með
tillögum að úrbótum sem fyrrver-
andi meirihluti, sem starfaði undir
stjórn Dags B. Eggertssonar, lét
vinna í valdatíð sinni og kynnt var
á blaðamannafundi í gær.
Gagnrýnt var að núverandi
meirihluti hefði ekki nýtt sér til-
lögur skýrslunnar, sem lá fyrir
tveimur dögum áður en meiri-
hlutaskipti urðu í borginni.
Á fundinum kom fram sú skoðun
fulltrúa minnihlutans að umræða
og fréttir um miðborg Reykjavíkur
undanfarnar vikur bæru vott um
ráðaleysi núverandi meirihluta
borgarstjórnar. Í raun væri sú
staða með ólíkindum því líklega
hefði áhugi íbúa fjárfesta og hags-
munaaðila aldrei verið meiri til að
nýta tækifæri sem fram undan
væru í miðborginni.
Dagur B. Eggertsson sagði að
umburðarlyndi gagnvart húsum
sem leyft væri að drabbast niður
hefði verið of mikið. Þeim húseig-
endum sem hefðu látið húsin fara
svo illa til þess eins að fá leyfi til
niðurrifs til að geta selt lóðina til
verktaka yrði að senda skilaboð
um að slíkt yrði ekki liðið. Það
væri fjarri lagi að miðborgin væri
að verða fátækrahverfi eins og
sumir hefðu haldið fram, auð
verslunarhús væru ekki tilkomin
vegna áhugaleysi verslunar-
rekenda heldur vegna þess að þeir
vissu ekki hvaða stefna yrði tekin í
skipulagsmálum. Það væri því sér-
stakt athugunarefni hvers vegna
niðurstöðum skýrslunnar um betri
miðborg sem fyrrverandi meiri-
hluti hefði látið gera virtist hafa
verið „stungið undir stól,“ eins og
hann orðaði það.
Í skýrslunni er litið til reynslu
borga sem markvisst hafa unnið
að því að stemma stigu við mið-
bæjarvandamálum en þau helstu
séu tengd áfengisneyslu, sem komi
í beinu framhaldi af auknum fjölda
vínveitingastaða. Reynsla annarra
borga sé að við slíkt ástand reynist
vel að endurskilgreina reglur um
leyfisveitingar og kröfur um vín-
veitingastaði, skoða þéttni slíkra
staða, efla samstarf við hagsmuna-
aðila, setja reglur um meðferð
áfengis á götum úti og tryggja
sýnilega og öfluga löggæslu.
karen@frettabladid.is
Hörkutól
– með rykgrímu, hjálm og vinnuvettlinga
VGA myndavél Ryk- og rakavarinn (IP54) Bluetooth
Vasaljós Stereó FM-útvarp Innbyggður hátalari
Samsung M110 farsíminn er nýjasta verkfærið í verkfærakassann. Honum er
pakkað inn í sterkbyggða umgjörð sem er bæði ryk- og rakavarin (IP54) og hann
er fullur af notadrjúgum aukabúnaði. Samsung M110 – er sannkallað hörkutól.
Fæst í helstu símaverslunum landsins
Heildsöludreifing og þjónusta:
Skútuvogi 12c
LÖGREGLUMÁL „Raddir Lands-
sambandins munu heyrast betur
og oftar en áður,“ segir Snorri
Magnússon, rannsóknarlögreglu-
maður og verðandi formaður
Landssambands lögreglumanna.
Í gær fór fram talning í stjórnar-
kjöri Landssambands lögreglu-
manna. Alls bárust 523 atkvæði
og var kosningaþátttaka því 71,64
prósent. Tveir listar voru í kjöri.
Listi með Snorra sem formanni
fékk yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða. Hann hlaut 358 atkvæði
eða sjötíu prósent gildra atkvæða.
Listi með Gils Jóhannssyni sem
formanni fékk 151 atkvæði eða
þrjátíu prósent. Auðir og ógildir
seðlar voru fjórtán.
„Það verða áherslubreytingar
hjá LL,“ segir Snorri, sem tekur
við formennsku á þingi Lands-
sambandsins síðar í apríl. Hann
segir að áhersla verði lögð á að
kynna betur og fjalla meira um
málefni lögreglumanna.
„Línan verður lögð á þinginu í
apríl,“ segir hann enn fremur.
„Þar má nefna kröfur í kjara-
samningagerð sem fer í hönd í
haust. Það er alveg ljóst að farið
verður fram á verulega hækkun
grunnlauna, tekið á eftirlauna-
málum og málum sem við erum
að sjá í dómaframkvæmd. Heim-
ildir eru fyrir hendi til miklu
harðari refsinga en verið er að
beita nú þegar ráðist er á
lögreglumenn við störf.“
- jss
Landssamband lögreglumanna:
Nýr formaður boðar
áherslubreytingar
BANDARÍKIN, AP Hillary Clinton
segist ekki ætla að gefast upp í bar-
áttunni um útnefningu demókrata
fyrir forsetakosningarnar í nóvem-
ber. Ýmsir hátt settir demókratar
og stuðningsmenn Barack Obama
hafa hvatt Clinton til að hætta í
þágu Demókrataflokksins.
„Ég ætla ekki að hætta fyrr en
við ljúkum við það sem við hófum
og sjáum hvað gerist í næstu tíu
prófkjörum,“ segir Clinton. Rep-
úblikanar hafa þegar útnefnt John
McCain sem frambjóðanda sinn og
óttast demókratar að rígur Clinton
og Obama muni skaða vinningslík-
ur demókrata.
Obama hefur nú 125 fulltrúa
forskot á Clinton þegar taldir eru
saman þeir fulltrúar sem valdir
voru í prófkjörum og svokallaðir
ofurfulltrúar. Hinir síðarnefndu
eru þingmenn og aðrir kjörnir
fulltrúar Demókrataflokksins, sem
mega styðja þann frambjóðanda
sem þeir vilja á landsþingi flokks-
ins í ágúst.
Nýr ofurfulltrúi lýsti yfir stuðn-
ingi við Obama í gær, Amy Klobu-
char, þingmaður frá Minnesota.
Obama lýsti um helgina yfir sigri
í forkosningunum í Texas sem fram
fóru 4. mars síðastliðinn. Hillary
hafði lýst yfir naumum sigri þar, en
hún fékk 65 fulltrúa, en Obama 61 í
opnu prófkjöri. Sama dag var hins
vegar haldinn kjörfundur þar sem
67 fulltrúar voru kjörnir. Obama
vann þar afgerandi sigur og endaði
því með samanlagt fimm fulltrúa
forskot umfram Clinton. - sgj
Obama fær stuðning þingmanns og lýsir yfir sigri í forkosningum í Texas:
Demókratar óttast sundrung
HILLARY CLINTON Næstu forkosning-
ar verða í Pennsylvaniu 22. apríl, en
þar hefur Clinton nokkuð forskot í
könnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SIMBABVE, AP Stjórnarandstaðan í
Simbabve lýsti í gær yfir
stórsigri í þing- og forsetakosn-
ingum sem fram fóru um helgina.
Stjórnvöld hafa lítið sem ekkert
birt af niðurstöðum kosninganna
og óttast stjórnarandstæðingar að
forsetinn Robert Mugabe ætli að
falsa niðurstöðurnar.
Einn af ráðherrum Mugabes
hefur misst þingsæti sitt, en
kjörstjórn hefur aðeins birt
niðurstöður úr 38 kjördæmum.
Skiptust sigrar jafnt milli
stjórnarandstöðu og ríkisstjórnar.
Ríkisstjórn Mugabes hefur
sætt gagnrýni fyrir gerræði og
óstjórn í efnahagsmálum. - sgj
Enn dregst að birta úrslit:
Mugabe sagður
hafa tapað stórt
BANDARÍKIN, AP Al Gore, Nóbels-
verðlaunahafi og fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, ýtti í
gær úr vör þriggja ára herferð til
að hvetja
bandarísk
stjórnvöld til að
draga úr losun
gróðurhúsaloft-
tegunda.
Herferðin mun
kosta milljónir
dollara.
Auglýsinga-
herferðin mun
líkja barátt-
unni gegn loftslagsbreytingum
við önnur stórvirki mannkynsins,
svo sem sigurinn gegn nasistum í
seinni heimsstyrjöld, endalok
þrælahalds í Bandaríkjunum og
fyrstu tunglferðina.
Al Gore verður á Íslandi 7. til 8.
apríl í boði forseta Íslands. - sgj
Al Gore gerir víðreist:
Stýrir herferð
gegn útblæstri
AL GORE
Fjölgun kráa
veldur vanda
Skýrsla sem fyrrverandi meirihluti borgarinnar
lét vinna um miðborgarvanda kveður á um hertar
reglur um áfengi. Ekkert fjallað um tillögurnar.
SEGJA TILLÖGUM STUNGIÐ UNDIR STÓL Margrét Sverrisdóttir, Dagur B. Eggertsson,
Svandís Svavarsdóttir og Óskar Bergsson gagnrýna að skýrsla til að bæta borgar-
braginn, sem unnin var á meðan þau voru við völd í borginni, hafi ekki verið tekin til
athugunar hjá núverandi meirihluta þótt vandi miðborgarinnar sé ærinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRJÁLST TÍBET Lítil stúlka í Genf í Sviss
heldur á fána til stuðnings frjálsu ríki
í Tíbet. Mótmælendur hvöttu þjóðir
heimsins til að sniðganga opnunarhátíð
Ólympíuleikanna í Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REYKJAVÍK „Ég
þakka minnihlut-
anum fyrir að
hafa vakið athygli
á þessari skýrslu
sem við báðum
um og Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson
þáverandi borg-
arstjóri setti af
stað í septemb-
er,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, formaður
samgöngu- og umhverfis ráðs
Reykjakvíkurborgar en minnihlut-
inn í borgarstjórn kynnti í gær
skýrslu sem tilbúin var í janúr og
felur í sér tillögur að lausnum á
miðborgarvandanum.
Á fundi í gær gagnrýndu
fulltrúar minnihlutans að ekki
hefði verið litið til þess sem hún
felur í sér og sögðu að svo virtist
sem henni hefði verið stungið undir
stól í borgarstjórn. „Skýrslan tekur
á ýmsum málum sem varða mið-
borgina og góðra gjalda vert að á
hana sé minnt,“ segir Gísli. - kdk
Gísli Marteinn Baldursson:
Þakkar minnihlutanum fyrir
GÍSLI MARTEINN
BALDURSSON