Fréttablaðið - 01.04.2008, Page 36
20 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Keyrðuð þið
rúgbrauðið? Við getum útskýrt
það.
HVERNIG? Sko, gómurinn
hans Stanislaws --
Þetta byrjaði
þannig -- Og svo tókum við --
Svo okkur
fannst --
Og það
leiddi til --
Nei, við
getum það
ekki.
Eigum við
að kjökra í
staðinn?
Eigum við að
prófa þetta
einu sinni
enn?
Aaa-
tjú!
Solla, það er kurteisi
að halda fyrir munn-
inn þegar maður
hnerrar!
Fyrirgefðu,
snift.
AAA-
TJÚ!!!
Það er enn
meiri kurteisi að
nota sína eigin
hendi.
OJJ! Aldrei í
lífinu!
Uppskurðir
fyrir
byrjendur
Þetta er frá
tryggingafé-
laginu þínu
Sá dagur er nú runnin
upp að láta fólk hlaupa
yfir þröskuld algjöra-
erindisleysu vegna
græskulauss gríns
náungans. Fjölmiðlar
hafa undanfarin ár
reynt að kokka upp
hverja grínfréttina á
fætur annarri í þeirri von að hafa
náungann að háð og spotti. Stór-
stjarna sem á að árita afurð sína er
pottþétt uppskrift að góðu gabbi og
þá helst frægan rithöfund eða neðan-
jarðar-poppstjörnu því menningar-
vitar eru ginnkeyptari fyrir apríl-
göbbum en hinn venjulegi „bolur“.
Sem hefur auðvitað eytt mörgum
klukkustundum kvöldinu áður í að
skipuleggja sinn eigin hrekk.
En í dag þyrfti einhvern stórkost-
legan og útpældan hrekk til að
þjóðin myndi hendast í bókabúð
eða plötuverslun. Hún er nefnilega
orðin öllu vön. Hún vaknar við að
búið er að handtaka Idol-stjörnu og
sér það í sjónvarpsfréttum að
pólskar og litháískar mafíur hafa
tekið sér bólfestu í næsta nágrenni.
Miðbær höfuðborgarinnar er í nið-
urníðslu og sami meirihlutinn og
var baulaður niður á hveitibrauðs-
dögunum sínum er enn við völd.
Þegar hún ætlar svo að fjárfesta í
bensíni á neyslugranna bílinn sinn
uppgötvar hún að kostnaðurinn
sprengir heimilisbókhaldið og hún
neyðist til að dusta rykið af gamla
reiðhjólinu eða kaupir jafnvel
„græna kortið“ og kemst leiðar
sinnar í gufuknúnum strætisvagni
– ef vörubílstjórar og stórvirkar
vinnuvélar standa ekki í vegi fyrir
henni. Ekki skánar ástandið þegar
þjóðin ætlar að fá salt í grautinn.
Því vængjalaus fiðurfénaðurinn
útheimtir fleiri krónur úr budd-
unni en dýrindis nautasteik og það
er hagstæðara að kaupa sér volgan
öllara í Ríkinu en kúamjólk úr
kælinum.
Hrekkjalómar landsins hafa því
væntanlega lagt öll plön um
skammarstrik til hliðar. Íslenska
þjóðin hefur lifað í stöðugu apríl-
gabbi frá því nýtt ár gekk í garð og
hún kippir sér ekki upp við það þótt
Paris Hilton sé í Laugardalslaug-
inni: hún hefur hvort eð er ekki
efni á sundmiðanum.
STUÐ MILLI STRÍÐA Lengsta aprílgabb sögunnar
FREYR GÍGJA GUNNARSSON LÆTUR EKKERT KOMA SÉR Á ÓVART
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Opið hús
fyrir grunnskólanemendur
og forráðamenn þeirra verður miðvikudaginn
2. apríl frá kl. 18:00-21:00. Kynnt verður
námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf
nemenda. Kl. 19:00 syngur Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð nokkur lög.
Allir velkomnir.
Rektor
30. mars - uppselt
3. april
4. april
10. april
11. april
17. april
18. april
23. april
24. april
Áhugavert starf
á atvinnusíðu.
Við stöndum
upp úr
Atvinna í boði... ...alla daga
Atvinnublað Fréttablaðsins
er með 60% meiri lestur en
atvinnublað Morgunblaðsins
miðað við 20–40 ára
sk
v.
k
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
1
. n
óv
. 2
00
7–
31
. j
an
. 2
00
8
24,5%
At
vi
nn
a
–
M
or
gu
nb
la
ði
ð
39,3%
Al
lt
–
A
tv
in
na