Fréttablaðið - 01.04.2008, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 1. apríl 2008 21
Ekkjan, ný saga eftir Stephen King er komin út. Í henni segir frá Lisey
Landon sem stóð í djúpu og stundum
ógnvekjandi sambandi við eiginmann
sinn, Scott, fræg-
an og dáðan met-
söluhöfund – og
mann sem átti
sér mörg leynd-
armál. Eitt þeirra
var staðurinn þar
sem sköpunar-
gáfa hans átti
sér rætur, staður
sem gat bæði
veitt honum styrk
og innblástur og
lagt hann að velli. Tveimur árum eftir
dauða Scotts er komið að Lisey að
mæta þeim illu öflum, sem Scott átti
í höggi við, í lífshættulegum leiðangri
hennar inn í myrkrið sem umlukti
hann. Folagið gefur út í kilju.
Danska skáldsagan Sá sem blikkar er hræddur við dauðann er
komin út í íslenskri þýðingu á vegum
Forlagsins. Sagan
vakti verulega
athygli og úlfúð í
heimalandi höf-
undarins þegar
hún kom út,
enda byggir hann
söguþráðinn á
eigin uppvexti í
litlu þorpi nálægt
þýsku landamær-
unum og þykir
afar óvæginn
gagnvart því umhverfi sem hann
er sprottinn úr. Drengurinn Knud á
ekki sjö dagana sæla á bernskuárum
sínum; þýsk móðir hans verður fyrir
ofsóknum bæjarbúa vegna þjóðernis
síns og Knud má þola gegndarlaust
einelti annarra barna. Saga fjölskyld-
unnar er samofin tíðarandanum og
fortíðin fylgir fólkinu eins og dimmur
skuggi. Þetta er kaldhæðin og eftir-
minnileg frásögn af einkennilegum
dreng og áhugamálum hans en um
leið nístingsköld lýsing á útskúfun
og höfnun. Hér segir af fásinni,
fordómum og harðýðgi í garð þeirra
sem skera sig úr fjöldanum í litlu
samfélagi á sjöunda áratugnum – en
atburðirnir gætu eins gerst á öðrum
stað og tíma. Hún var verðlaunuð í
heimalandi höfundar og vakti mikla
athygli og aðdáun. Halla Sverrisdóttir
þýddi.
Út er komin, hjá bókaforlaginu Bjarti, ný bók eftir verðlauna-
höfundinn D.B.C. Pierre: Bjöguð enska
Lúdmílu. Bókin
er 49da bókin í
neon-bókaflokk-
inum, sem er
besti bókaklúbbur
í heimi. London
á þriðjudegi eftir
hryðjuverkaárás
sumarsins: Blair
og Bunny eru
fyrstu símaství-
burar heimsins
sem tekist hefur
að aðskilja á fullorðinsárum – þeir
eru 33 ára. Fram til þessa dags hafa
þeir verið samvaxnir og búið innan
stofnanaveggja. Á sama degi í hinu
stríðshrjáða Kákasus verður hin
fagra og kjaftfora Lúdmíla Derev fyrir
því óláni að drepa afa sinn. Þegar
desembermánuður rennur upp eiga
þau öll þrjú ýmislegt merkilegt sam-
eiginlegt. D.B.C. Pierre hlaut, flestum
að óvörum, Booker-verðlaunin fyrir
Vernon G. Little árið 2003, en sú bók
kom einmitt út í neon-bókaflokki
Bjarts. Skáldskapur D.B.C. Pierre er
gegnsýrður af kolsvörtum húmor og
nístandi kaldhæðni en birtir jafnframt
nýstárlega sýn á veruleika almennings
á Vesturlöndum. Árni Óskarsson þýddi.
NÝJAR BÆKUR
Í dag kl. 16.30 halda tveir danskir
fræðimenn fyrirlestra á vegum
Stofnunar Vigdísar Finnboga-
dóttur um danska sjóvarpsfram-
leiðslu, bæði framhaldsþætti og
heimildarmyndir. Fyrirlestrarnir
verða í aðalbyggingu Háskólans,
stofu 222.
Danskir sjónvarpsþættir hafa
notið mikilla vinsælda á Íslandi um
langa hríð, bæði á vegum Ríkis-
sjónvarpsins og Stöðvar 2. Er
skemmst að minnast Forbrydelsen
sem hélt landsmönnum límdum við
skjáinn á sunnudagskvöldum í
vetur. Dönsku fræðimennirnir
Gunhild Agger og Ib Bondebjerg
munu fjalla um danska sjónvarps-
þáttagerð í víðu samhengi og
ljóstra upp hver galdurinn er á bak
við vinsældir þeirra. Gunhild
Agger, sem er lektor í samskipta-
fræðum við Álaborgarháskóla,
mun fjalla um einkenni danskra
sjónvarpsþátta og að hve miklu
leyti þeir endurspegla danskan
veruleika. Stuðst verður við marga
af vinsælustu þáttunum, allt frá
Matador til Forbrydelsen.
Ib Bondebjerg mun í fyrirlestri
sínum fjalla sérstaklega um heim-
ildarmyndir, vinsældir þeirra í
Danmörku og hvernig styðjast má
við þær til að lesa í danskt samfé-
lag. Miðlar eins og kvikmyndir og
sjónvarp hafa haft gríðarlega mikil
áhrif á samfélagsþróun og átt stór-
an þátt í að skapa svokallað
„ímyndað samfélag“ samkvæmt
kenningum Benedict Anderson.
Bondebjerg staðhæfir að heimild-
armyndir gegni þar ekki síður
veigamiklu hlutverki. Hann mun
fjalla um myndir ýmissa danskra
leikstjóra, s.s. Christian Kryger,
Poul Martinsen og Christoffer
Guldbrandsen. Ib Bondebjerg er
prófessor í kvikmynda- og fjöl-
miðlafræðum við Kaupmanna-
hafnarháskóla og hefur gefið út
fjölmargar bækur sem tengjast
þessu efni.
Gunhild Agger og Ib Bondebjerg
eru gestakennarar við dönskuskor
hugvísindadeildar Háskóla Íslands.
Fyrirlestrarnir eru haldnir í tengsl-
um við alþjóðlegt tungumálaár. - pbb
Danskt sjónvarpsefni greint
SJÓNVARP Sofie Gråböl í Glæpnum.
MYND/TINE HARDEN/DR