Fréttablaðið - 01.04.2008, Qupperneq 42
26 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Úrvalslið N1-deildar karla í handbolta fyrir umferðir 15-21 var tilkynnt
í gær. Valsmenn voru fjölmennir í liðinu að þessu sinni
með þá Ólaf Hauk Gíslason, Ingvar Árnason, Baldvin
Þorsteinsson og Arnór Gunnarsson og Valur fékk einn-
ig viðurkenningu fyrir bestu umgjörð. Þá voru Ólafur
Bjarki Ragnarsson úr HK, Rúnar Kárason úr Fram og
Sigurbergur Sveinsson úr Haukum einnig í liðinu
en Sigurbergur var svo valinn besti leikmaður
umferðanna og þjálfari hans hjá Haukum,
Aron Kristjánsson, valinn besti þjálfarinn.
Gunnar Jarl Jónsson og Hörður Aðalsteins-
son voru valdir besta dómaraparið.
Sigurbergur var hæstánægður með
viðurkenninguna, sem og gengi Hauka-
liðsins í deildinni í vetur.
„Ég er mjög sáttur og það er gaman að
fá viðurkenningu sem þessa. Þetta er búið
að vera frábært tímabil hjá Haukum og þó
svo að ég hafi vissulega reiknað með því að
við yrðum í toppbaráttunni átti ég alls ekki von á því að liðið yrði
í svona góðri stöðu á þessum tímapunkti. Þó svo að þetta sé ekki
enn í höfn hjá okkur má alveg fullyrða að við séum komnir með
aðra höndina á bikarinn,“ sagði Sigurbergur, sem er
bjartsýnn á framhaldið.
„Við Haukamenn erum náttúrlega harðákveðnir
í að klára þetta dæmi og það opnar dyrnar fyrir
spennandi verkefnum næsta haust. Ég stefni á
að taka annað tímabil með Haukum og svo er
draumurinn óneitanlega að reyna að komast út í
atvinnumennsku,“ sagði Sigurbergur.
Aron var að sama skapi sáttur með
viðurkenninguna og gengi Haukaliðsins.
„Það er mikill heiður að fá svona
viðurkenningu og ég er mjög sáttur með
tímabilið hjá okkur. Þetta er samt ekki
búið og við tökum bara einn leik fyrir í
einu,“ sagði Aron ákveðinn.
ÚRVALSLIÐ UMFERÐA 15-21 Í N1-DEILD KARLA: VALSARAR FJÖLMENNIR EN HAUKAR TÓKU STÓRU VERÐLAUNIN
Haukamennirnir Sigurbergur og Aron bestir
FÓTBOLTI Roma og Manchester
United mætast á Ólympíuleik-
vanginum í Róm í kvöld.
Rómverjar hyggja væntanlega
á hefndir eftir að United slátraði
ítalska liðinu 7-1 á Old Trafford í
fyrra en ítalska liðið varð fyrir
blóðtöku þegar ljóst varð að
Francesco Totti gæti ekki leikið
vegna meiðsla. Knattspyrnu-
stjórinn Luciano Spalletti kvað lið
sitt þó verða að komast yfir það.
„Manchester United er að mínu
mati með besta lið heimsins í dag
á pappírunum en ég tel samt að
lið mitt hafi þroskast mikið síðan
við töpuðum 7-1 á Old Trafford.
Það er auðvitað erfitt að vera
ekki með Totti innanborðs en liðið
verður að læra að komast af án
hans,“ sagði Spalletti. - óþ
Luciano Spalletti, Roma:
United er með
besta lið heims
VONBRIGÐI Francesco Totti verður sárt
saknað í kvöld þegar United mætir á
Ólympíuleikvanginn. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Barcelona er klárlega
talið sigurstranglegra fyrir
einvígi sitt gegn Schalke sem
hefst á Veltins-leikvanginum í
Gelsenkirchen í kvöld en þýska
liðið kom nokkuð á óvart með því
að slá Porto út úr sextán liða
úrslitum Meistaradeildarinnar.
Manuel Neuer, 22 ára gamall
markvörður Schalke, sló rækilega
í gegn í einvígi liðsins gegn Porto.
Hann telur Barcelona vissulega
vera sigurstranglegra og vonast í
því samhengi til þess að Spán-
verjarnir geri sig seka um
vanmat.
„Ég heyrði að Samuel Eto‘o
hefði verið mjög ánægður með að
Barcelona léki gegn okkur þar
sem við værum ekki svo sterkt lið
og ég vona að þetta sé satt, þar
sem vanmat sem þetta myndi
bara verða okkur til góðs,“ sagði
Neuer í viðtali á opinberri
heimasíðu UEFA. - óþ
Manuel Neuer, Schalke:
Vona að Barca
vanmeti okkur
Í HÓPNUM Eiður Smári er í hópi
Barcelona og fær vonandi tækifæri gegn
Schalke í kvöld. NORDIC PHOTOS/GETTY
Iceland Express deild karla
ÍR-KR 80-86 (73-73) (39-38)
Stig ÍR: Nate Brown 25 (10 stoðsendingar, 6 frá-
köst), Tahirou Sani 18, Sveinbjörn Clasessen 16,
Hreggviður Magnússon 15, Ómar Sævarsson 3,
Ólafur J. Sigurðsson 3.
Stig KR: Avi Fogel 23 (7 fráköst, 7 stoðsendingar),
Joshua Helm 14 (8 fráköst), Pálmi Sigurgeirsson
12 (8 fráköst), Fannar Ólafsson 12, J. J. Sola 8,
Helgi Már Magnússon 6, Skarphéðinn Ingason 5,
Brynjar Þór Björnsson 4, Darri Hilmarsson 2.
Snæfell-Njarðvík 80-66 (37-32)
Stig Snæfells: Justin Shouse 21, Slobodan
Subasic 14, Sigurður Þorvaldsson 12, Hlynur
Bæringsson 12, Mani Hafsteinsson 8, Anders
Katholm 8, Jón Ólafur Jónsson 5.
Stig Njarðvíkur: Damon Bailey 21, Brenton
Birmingham 12, Egill Jónasson 11, Guðmundur
Jónsson 11, Sverrir Þór Sverrisson 4, Jóhann Árni
Ólafsson 4, Hörður Axel Vilhjálmsson 3.
Sænska úrvalsdeildin
Sundsvall-Helsingborg 0-3
0-1 Isaac Chansa (9.), 0-2 Christoffer Andersson
(23.), 0-3 Christoffer Andersson (63.). Ólafur Ingi
Skúlason lék í 78 mínútur fyrir Helsingborg og
Sverrir Garðarsson, Ari Freyr Skúlason og Hannes
Þ. Sigurðsson léku allan leikinn fyrir Sundsvall.
Malmö-IFK Gautaborg 1-1
0-1 Jonas Wallerstedt (57.), 1-1 Gabriel (62.).
Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku allan
leikinn fyrir IFK Gautaborg.
Norska úrvalsdeildin
Rosenborg-Lyn 2-1
0-1 Espen Hoff (45.), 1-1 Abdou R. Traoré (68.),
2-1 Yssouf Koné (81.). Indriði Sigurðsson og
Theodór Elmar Bjarnason léku allan leikinn
fyrir Lyn.
ÚRSLITIN Í GÆR
> Einvígi KR og Keflavíkur heldur áfram
KR og Keflavík mætast í öðrum leik
liðanna í úrslitarimmunni um Íslands-
meistaratitilinn í Iceland Express-deild
kvenna í DHL-höllinni í kvöld
kl. 19.15. Keflavík vann fyrsta
leik liðanna naumlega 82-81
í jöfnum og spennandi leik á
Suðurnesjum þar sem Takesha
Watson var aðeins einu frákasti frá því
að ná þrefaldri tvennu en hún var
með 21 stig, 12 stoðsendingar og
9 fráköst fyrir Keflavík og var valin
maður leiksins. Búast má við hörku-
leik í kvöld og fólk því hvatt til þess
að mæta á völlinn.
HANDBOLTI Rúnar Kárason, hægri
skyttan efnilega hjá Fram, hefur
framlengt samning sinn við
Safamýrarliðið til ársins 2011 en
þetta var tilkynnt á heimasíðu
Fram í gær.
Rúnar, sem verður tvítugur í
sumar og er uppalinn Framari,
hefur stimplað sig vel inn í N1-
deildinni í vetur og samkvæmt
heimasíðu Fram þá hefur hann
vakið áhuga erlendra liða, m.a. í
Frakklandi og Þýskalandi. Rúnar
var enn fremur valinn til æfinga
með A-landsliði Íslands fyrr í
vetur og lék á Posten-Cup í
Noregi með B-landsliðinu. - óþ
Rúnar Kárason, Fram:
Samdi til ársins
2011 við Fram
KÖRFUBOLTI Snæfell tryggði
sér í gær farseðilinn í
undanúrslit Iceland
Express-deildarinnar með
sigri á Njarðvík í Fjárhúsinu
í Stykkishólmi, 80-66.
„Þetta eru alltaf erfiðir leikir
en við vorum samt betri. Einvígið
var í okkar höndum og aðeins við
sjálfur gátum klúðrað því,“ sagði
sveittur Hlynur Bæringsson í
áhaldageymslunni eftir leik.
Heimamenn tóku frumkvæð-
ið strax í byrjun og gáfu það
aldrei eftir. Þeir voru mikið
grimmari, tóku fleiri fráköst og
spiluðu markvissari sóknarleik.
Njarðvíkurliðið byrj-
aði í raun ekki að spila
fyrr en Egill Jónas-
son kom af bekknum
en hann skoraði góð
stig og hirti fín
fráköst.
Með mikilli baráttu
tókst Njarðvík að
minnka muninn í fimm
stig fyrir hlé, 37-32.
Lengi vel leit út fyrir
að Snæfell ætlaði að
ganga frá leiknum í
þriðja leikhluta en þrír
þristar frá Guðmundi
Jónssyni héldu þeim inn
í leiknum. 56-49 þegar 10 mínútur
lifðu leiks.
Njarðvík komst aðeins nær en
líkt og fyrr í leiknum voru gest-
irnir einstakir klaufar þegar þeir
komust á skrið. Köstuðu boltanum
frá sér hvað eftir annað á klaufa-
legan hátt og var síðan refsað
grimmilega. Öruggur sigur heima-
manna staðreynd og þeir eru lík-
legir til afreka í framhaldinu.
„Við teljum okkur geta farið
alla leið. Sjálfstraustið í liðinu er
svakalegt og aldrei verið meira
held ég. Við höfum trú á okkur
kerfi og teljum að lið eigi að
lendi í vandræðum með okkur ef
við spilum okkar leik. Ef við
gerum það getum við unnið alla,“
sagði Hlynur Bæringsson.
Teitur Örlygsson, þjálfari Njarð-
víkur, var eðlilega svekktur þegar
blaðamaður dró hann í viðtal inn í
áhaldageymslu.
„Sigurinn er sanngjarn hjá Snæ-
felli. Við klóruðum aðeins í þá en
gerðum svo alveg svakaleg mis-
tök. Það er ekki hægt gegn svona
liði og við áttum bara ekki meira
skilið. Við vorum sjálfum okkur
verstir,“ sagði Teitur sem vill vera
áfram með liðið og gerir ráð fyrir
breytingum á leikmannahópnum.
„Það væri æðislega gaman og
ég hef mikinn áhuga á því. Það er
samt ljóst að það verða einhverjar
breytingar á okkar hópi,“ sagði
Teitur að lokum. - hbg
Snæfell er komið í undanúrslit í Iceland Express-deildarinnar eftir sannfærandi 80-66 sigur á Njarðvík í gær:
Njarðvíkingum mokað út úr Fjárhúsinu
FRÁBÆR Justin Shouse skoraði
21 stig fyrir Snæfell í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI KR lagði ÍR, 86-80,
eftir framlengingu í öðrum leik
liðanna í fyrstu umferð úrslita-
keppni Iceland Express. Því þurfa
liðin að mætast þriðja sinni á
morgun miðvikudag.
KR-ingar mættu mjög ákveðnir
til leiks og náðu fljótt undirtökun-
um í leiknum. KR náði níu stiga
forystu þegar 15 sekúndur voru til
loka fyrsta leikhluta, 23-14, en
Nate Brown kom ÍR aftur inn í
leikinn með þriggja stiga körfu
þegar fimm sekúndur voru eftir á
leikklukkunni. Brown bætti um
betur, stal boltanum og minnkaði
muninn í fjögur stig, 19-23 um leið
og lokaflautið gall.
KR-ingar léku af sömu ákefð
framan af öðrum leikhluta og náðu
aftur níu stiga forystu, 32-23.
Hægt og rólega komust ÍR-ingar
aftur inn í leikinn og botninn virt-
ist detta úr leik KR. Um miðbik
leikhlutans skoraði ÍR níu stig
gegn engu og komst yfir, 35-33.
Þegar flautað var til leikhlés var
ÍR einu stigi yfir, 39-38.
ÍR-ingar náðu 10 stiga forystu
snemma í þriðja leikhluta, 55-45.
KR-ingar náðu aðeins að klóra í
bakkann undir lok þriðja leikhluta
þegar Hreggviður Magnússon sat
á bekknum með þrjár villur. KR-
ingar virtust þá öðlast trú á verk-
efnið á ný. Þeir fóru að leika betri
vörn og aðeins munaði fimm
stigum þegar fjórði leikhluti hófst,
60-55.
Hreggviður kom ÍR sjö stigum
yfir, 64-57, en nældi sér í sína
fjórðu villu þegar tæpar þrjár
mínútur voru liðnar af fjórða
fjórðungnum. Það nýttu KR-ingar
sér og minnkuðu muninn jafnt og
þétt þar til staðan var orðin jöfn,
68-68.
Gríðarleg spenna var á lokamín-
útunum en ÍR-ingar voru jafnan
fyrri til að skora. Þegar sex sek-
úndur voru eftir af leiknum jafn-
aði Andrew Fogel metin, 73-73,
þannig að framlengja þurfti leik-
inn.
Taugar leikmanna voru þandar
til hins ýtrasta í framlengingunni.
Reynsla KR-ingar vó þungt undir
lok framlengingarinnar. Pálmi
Sigurgeirsson skoraði þriggja
stiga körfu þegar tæp mínúta var
eftir og kom KR þremur stigum
yfir, 79-82. KR náði fjögurra stiga
forystu þegar sjö sekúndur voru
eftir með góðri körfu frá Joshua
Helm. ÍR náði hins vegar ekki að
skora í næstu sókn og KR vann
vægast sagt mikilvægan sex stiga
sigur, 86-80, í gríðarlega
spennandi leik. -gmi
Meistararnir rétt héldu lífi
KR marði ÍR í framlengdum háspennuleik 80-86 og knúðu þar með fram odda-
leik sem fram fer í DHL-höllinni. Staðan var 73-73 eftir venjulegan leiktíma.
BJARGVÆTTUR Avi Fogel jafnaði leikinn fyrir KR 73-73 og tryggði framlengingu, þar
sem Íslandsmeistararnir höfðu betur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR