Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 46
30 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM LÁRÉTT 2. himinn 6. líka 8. nudda 9. tilvist 11. tónlistarmaður 12. æxlunarfæri blóms 14. yfirstéttar 16. frá 17. gagn 18. þakbrún 20. peninga 21. köttur. LÓÐRÉTT 1. íþrótt 3. öfug röð 4. pensillín 5. hald 7. afríku dýr 10. óvild 13. of lítið 15. bakhluti 16. umfram 19. vörumerki. LAUSN LÁRÉTT: 2. loft, 6. og, 8. núa, 9. líf, 11. kk, 12. fræva, 14. aðals, 16. af, 17. nyt, 18. ufs, 20. fé, 21. kisa. LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. on, 4. fúkalyf, 5. tak, 7. gíraffi, 10. fæð, 13. van, 15. stél, 16. auk, 19. ss. VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8 1 Sparisjóðurinn Byr 2 Pétur M. Jónasson prófessor 3 Hann er bifvélavirki „Já, hann sendi mér póst þessi strákur. Baðst afsökunar á því að hafa stolið brandaranum mínum. Og spurði hvort ég gæti reddað honum úr þessari klípu. En ég veit svo sem ekki alveg hvernig ég á að snúa mér í því,“ segir Hugleikur Dagsson, rithöf- undur og teiknari. Fyrir skömmu barst Hugleiki sem sagt tölvupóstur þar sem nemandi nokkur í Kaliforníu, nánar til tekið í California Poly- technic State University, sagði farir sínar ekki sléttar. Hann á hálft ár eftir af BS-námi sínu, hafði verið að lesa Hugleik og efnið höfðaði sterkt til hans. Hann freistaðist til þess að end- urteikna einn brandara Hug- leiks, gera að sínum og birta í skólablaðinu. Upp komst um strákinn Tuma og ekki nóg með það: Honum var umsvifalaust vikið úr skólanum fyrir ritstuld. Hugleikur veit ekki alveg hvað honum á að finnast um þetta. „Ég veit ekki hvernig ég á að geta bjargað honum úr klípunni. Hugsanlega rita skólastjóranum og biðja hann ásjár. Ég er að vissu leyti snortinn. Ekki bara er verið að stela frá mér einhvers staðar í Kaliforníu heldur kemst upp um það líka. Maður er orð- inn svona þekktur. En þetta er snúið. Kannski ætti að draga blóðugt líkið um allan bæ öðrum til varnaðar. En svo hef ég samúð með drengnum sérstaklega þar sem hann sendir þennan póst og biðst afsökunar,“ segir Hugleikur. Um er að ræða teikningu úr fyrstu bók Hugleiks og fjallar um stúlku sem segir pabba sínum að þegar hann verði stór ætli hún að verða hóra. Og pabb- inn svarar: Takk MTV! Þetta mál er athyglisvert meðal annars í ljósi þess að það svo virðist sem sinn sé siður í landi hverju. Nemendum við bandaríska skóla er umsvifa- laust vikið úr skóla ef þeir verða uppvísir af því að stela þó ekki sé nema brandara sem ættaður er úr annarri heimsálfu. Hér eru menn hins vegar að reyna að sjá í gegnum fingur sér við prófess- ora við sjálfa akademíuna sem dæmdir hafa verið af dómstólum fyrir ritstuld. „Nákvæmlega. Þetta eru vissu- lega önnur viðhorf. Ef allir byrj- uðu að herma eftir mér yrði ég ekki mjög sáttur. En svo heyrir maður af þessu dæmi lengst utan úr í heimi. Kannski ætti ég ekk- ert að vera of linur í garð hans og nota sem fordæmi?“ Hugleikur er búsettur úti í Amsterdam og hefur verið frá í október. Hann lætur vel af Hollandsdvöl sinni en er vænt- anlegur heim nú í maí. jakob@frettabladid.is HUGLEIKUR DAGSSON: SINN ER SIÐUR Í LANDI HVERJU Rekinn úr skóla fyrir að stela brandara Hugleiks TEIKNINGIN Þessi teikning höfðaði svo til bandaríska háskólanemans að hann ákvað að gera hana að sinni - en hefði betur sleppt því. Grínarinn Pétur Jóhann Sigfús- son er áberandi um þessar mundir. Fyrst var það Nætur- vaktin og nú Stóra planið og því næst eru að byrja tökur á Dagvaktinni. Pétur Jóhann ætlar þó ekki að láta þjóðina gleyma sér þangað til Dagvaktin fer í sýningar. Um miðjan apríl fer í loftið stór og mikil auglýsingaherferð fyrir Vodafone þar sem hann er í aðalhlutverki og þykir fara á kostum sem fyrr. Stóra planið, í leikstjórn Ólafs Jóhannesson- ar, hefur fengið fínar viðtökur gagnrýnenda og kvik- myndahúsa- gesta. Fjöldi íslenskra leikara kemur fram í myndinni en ekki er víst að þeir hafi allir verið sáttir við endanlega útgáfu hennar. Leikstjórinn mun hafa þurft að klippa út ansi mörg bitastæð atriði og þar með heilu og hálfu persónurnar. Meðal þeirra sem urðu eftir á klippiborðinu var Steinn Ármann Magnússon. Hlutverk þeirra Sig- urjóns Kjartanssonar og Þorsteins Guðmunds- sonar urðu talsvert minni en þeir bjuggust við og sama átti við um Ladda og Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur. Þá fékk fegurðardrottn- ingin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir að kenna á niðurskurð- inum; eina setning hennar var þegar hún kvartar undan því að Ingvar E. Sigurðsson klípi hana í rassinn. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI HUGLEIKUR DAGSSON Veltir því nú fyrir sér hvort hann eigi að fyrirgefa ritþjófnum og biðjast ásjár fyrir hans hönd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ekkert lát er á einkanúmeraútgáfu hjá Umferðar- stofu þrátt fyrir meinta kreppu. Nú eru einka- númer á Íslandi orðin 4.517 og ný bætast við í hverri viku. Árni Johnsen er guðfaðir einkanúmeranna. Hann barðist fyrir því að þau væru tekin upp og var svo fyrsti maðurinn á Íslandi til að fá sér einkanúmer. Það var „ÍSLAND“ eins og frægt er orðið og fékk Árni það númer skráð 18. júní 1996. Upphaflega stóð til að gjald fyrir einkanúmer væri 50.000 krónur en Árna tókst með harðfylgi að fá það lækkað um helming. Í dag er réttindagjald ennþá 25.000 krónur fyrir einkanúmer – engin verðbólga þar – og rennur gjaldið til umferðaröryggismála. þetta aukagjald bætist við hið hefðbundna 5.200 króna gjald fyrir númeraplötur sem allir þurfa að greiða. Mörg skemmtileg einkanúmer hafa litið dagsins ljós á þessum tólf árum og létt öðrum ökumönnum lundina í umferðinni. Þar má nefna TÍHÍHÍ, JÁÓKEY, SURTUR, BLESS og ZZZZZZ. Aðdáendur aka meðal annars um göturnar á ZZ TOP, BUBBI, STONES, SÁLIN, LENNON, MANUTD og ELVIS og sumir vilja vera fyndir á ensku: til dæmis á UR2L8, RU OK, B9S2ME og UR2SLÓ. Albesta einkanúmer- ið er svo líklega BRUÐL. Nokkur einkanúmer hafa verið bönnuð af Umferðarstofu. Sum eru talin geta ollið hneykslun eða haft í för með sér óþægindi fyrir aðra. Þar á meðal eru POLICE, KILLER, BAKKUS, FUCKU2, FÍKNÓ, STUNTS, DEVIL, Ó GUÐ, SATAN, NAZI og KLÁM. Önnur eru einfaldlega talin valda ruglingi, einkanúmer eins og 0O0OCO, OOO000, 8B8B88 og ÖKUNÁM. - glh Umferðarstofa bannar klám ENGIN HÆKKUN Á VERÐI Í 12 ÁR ÍSLAND – Fyrsta einkanúmer Íslands. „Það mun vera Salatbarinn hjá Ingvari í Faxafeninu. Það er gott að detta þangað inn í hádeginu og ekki skemmir fyrir að hitta karlinn sjálfan sem er alltaf eiturhress.“ Sigurjón Brink tónlistarmaður. Auglýsingasími – Mest lesið „Stjörnurnar verða auðvitað að vera með gsm-samband,“ segir Mikael Jóhann Traustason, stað- arhaldari Hótel Bjarkarlunds, en farsímasambandi hefur nú verið komið á við þennan „dauða“ blett farsímanna vinsælu. Eins og kunnugt er verður Dagvakt- in, framhald hinnar vinsælu þáttaraðar Næturvaktarinnar, tekin upp á Hótel Bjarkarlundi. Mikael segir að íbúarnir í nágrenni við hótelið séu himin- lifandi með þetta og upplýsir jafnframt að ADSL-netsamband sé komið á. „Þá lækkar vonandi símakostnaðurinn vonandi niður úr valdi og það hættir að vera á tali alltaf,“ segir Mikael en netsamband hótelsins var eingöngu í gegnum símalínur. „Þetta er svona súrsæt tilfinn- ing, ég var annars farinn að gæla við það að geta verið bæði net-og símalaus í heilan mánuð. En þeir voru víst búnir að lofa þessu og það er því ágætt að þetta er komið í gegn,“ segir Ragnar Bragason, leikstjóri Dagvaktarinnar, en hún verður að mestu leyti tekin upp á hótelinu. Ragnari skildist reynd- ar að einhverjir leikarar hafi haft miklar áhyggjur af símaleysinu og voru víst sjálfir farnir að þreifa fyrir sér hjá farsímafyrir- tækjum í þeirri von að geta komið því á áður en tökur hæfust um miðjan næsta mánuð. „Borgar- börnin geta hvorki verið án síma né nets,“ segir Ragnar og hlær. „En þetta auðveldar náttúrlega framleiðsluna til muna því fram- leiðandinn þarf meira eða minna að vera í símanum á meðan á tökum stendur,“ bætir Ragnar við. -fgg Dagvaktarstjörnur tengdar umheiminum SAMBANDI, VERÐ AÐ VERA Í SAMBANDI Ragnar Bragason og Dagvaktarstjörn- urnar verða í góðu gsm-og netsam- bandi á meðan tökur fara fram á Hótel Bjarkarlundi. SAMBANDI NÁÐ Árni, hótelstjóri Bjarka- lundar, tengir sveitina við net og síma. Spennandi starf inni í blaðinu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.