Tíminn - 25.10.1981, Side 5
Sunnudagur 25. október 1981
5
„MARGUR FÆR
LOF FYRIR
1ÍI1Ð0G
LAST FYRIR
EKKI PAR”
þarna myndi enginn heyra til
mln, og því væri þaö óhætt að
brölta við þess háttar. Mér finnst
þetta svolítið skemmtileg minn-
ing og ég held jafnvel að þetta
hafi getað verið þokkalegustu
ræður hjá mér, annað slagiö.
Þegar ég fermdist voru bræður
minir farnir að fara aö heiman og
eftir þaö sá ég alveg um búið, aö
sjálfsögðu undir stjörn móður
minnar.”
„Móðir min tók vixillán
fyrir skólagöngu okkar”
— Hvað um skólagöngu þina?
,,Já,mig langaði auðvitaö að ná
mér i aukna þekkingu, þvi barna-
skólanám var ekki það mikið á
þessum árum. Ég fór einn vetur
tilDaniels, fööurbrdður mi'ns, aö
Hvallátrum og þá var mér mjög
velsinnt inámi. Þessi vetur nýtt-
ist mér mjög vel, en ekki svo að
hann entist fyrir lifið og haustið
1935 þá fórum við i Reykholt við
Margrét systir min.
Þá var nil litiö fé til þess að
greiða með kostnaðinn af skóla-
dvölinni og fór ég þvl i vegavinnu
hluta sumarsins á sunnanveröu
Snæfellsnesi til þess aö afla farar-
eyris. Þegar ég fór að heiman, i
vegavinnuna, þá hafði ég meö
mér 10 krónur til aö greiða far-
gjaldiö og annaö. Þegar ég kom
heim aftur, þá hafði ég haldið svo
spart á krónunum, þegar ég var
bilinnaðgreiða fyrir fargjaldið til
baka, þá voruenn tvær eða þrjár
krónur eftir af tikallinum.
Um haustið fórum viö svo i
Reykholt systkinin, en þó að ég
hafi aflað tekna I vegavinnunni,
þá dugöu þær engan veginn fyrir
skólavist okkar um veturinn og
þvi hafði móðir okkar farið hing-
að suöur áður en við fórum og
fengið vixillán, sem var nýlunda
hjá okkur. ”
,,Jónas frá Hriflu mest-
ur stjórnmálamaður á
þessari öld”
— Hvernig féll þér svo vistin i
Reykholti?
„Reykholt var i þessa tið af-
skaplega merkilegur skdli. Ég
álitað ef maöur litur til baka yfir
skólasögu landsins og sér hvað
gert var á árunum 1927 og fram
yfir 1930, þá sé þar um undravert
framtak aö ræöa. Það er I raun-
inni ekkerttimabil að minu mati,
sem lyfti jafn alhliöa Grettistaki
og þetta timabil.
Ég og mitt fólk vorum mjög
hrifin af Jónasi frá Hriflu og það
orkar ekki tvimælis að mi'nu
mati,að Jónashefur veriö mestur
stjdrnmálamaður á þessari öld.
Til dæmis það hvaö hann lyfti hin-
um andlega vexti þjóöarinnar
með héraösskólanum og öðrum
þáttum skólamála, eins og
Menntaskólanum á Akureyri, er i
minum augum stórkostlegt.
Þaö var kennaraval i Reykholti
á þessum timum: ég er alveg viss
um að ég met það rétt. Þetta voru
fróðir og góðir uppfræðarar, sem
jafnframt tóku virkan þátt i fé-
langslifi okkar nemendanna.
Nú, ég er aðeins fram á miðjan
vetur i Reykholti þetta ár, og þá
fer ég hingað til Reykjavikur og
var hér það sem eftir lifði vetrar
og yfir sumarið á vegum Jónasar
frá Hriflu. Þá stundaði ég kennslu
i Samvinnuskólanum, sem ó-
reglulegur nemandi, en ég hafði
ekki nógu gott af þvi, þar sem ég
var ekki nógu vel undir slikt bú-
inn. En ég fékk góða reynslu af
þessu og gaman hafði ég af þvi
þegar gamii maðurinn var að
kenna, en hann kenndi félags-
fræði og Samvinnusögu. Við þá
kennslu tengdist margt i frásögn
hans.
Veturinn á eftir fór ég aftur að
Reykholti og lauk þar skólanum.
A þessum árum var sterk
kommabylgja i landinu og svo
nasistar. Þessara áhrifa gætti i
Reykholtsskólanum og þegar fé-
lagsfundir hófust i skólafélaginu,
þá urðu pólitískar umræður strax
rikjandi. Kommarnirhöfðu þarna
sterk völd og réðu skólafélaginu
og ég byrjaði strax að slást við þá
og gerði það sem eftir var af vist
minni i Reykholti. Seinni veturinn
i Reykholti varö ég formaöur i
skólafélaginu og hafði þvi betri
tök á þvi að standa uppi i hárinu á
kommunum en ella.”
„Var ekki farinn að lita
á kvenmann”
— Eftir Reykholtsdvölina ferð
þú að Hvanneyri, ekki satt?
„Ég gerði þá lykkju á leið mina
eftir að ég lauk prófi frá Reyk-
holti, að ég fór að búa i Dölunum,
að Staðarfelli.”
— Ertu kvæntur maður þegar
þetta er?
„Nei, blessuð vertu, ég var ekki
farinn að lita á kvenmenn.”
— Aðeins farinn að gefa þeim
hornauga þó.
„Ja, það hefur þá verið leiðin-
legt auga. Rétt er það. Það voru
auðvitað myndarkvenmenn með
mér i Reykholti, en þær voru að-
eins góðar kunningjakonur min-
ar. Ég vil nefna eina sérstaklega,
en það er kaupfélagsstjórinn i
Grimsey, Steinunn Sigurbjörns-
dóttir. Hún var i Reykholti þessa
vetur, og var þá sem nú myndar-
kona. Þær voru það náttúrlega
margar fleiri, þó ekki hafi þær
orðið kaupfélagsstjórar.
— Jæja, aftur að búskap þinum
i Dölunum. Hvernig stóð á þvi að
þú settist aö á Staðarfelli?
„Þar kom nú til þaö samband
sem ég hafði við Jónas. Hann
spurði mig áður en við skildum
um haustið 1936 hvert ég stefndi
og ég sagði honum sem var að ég
ætlaði mér að Hvanneyri og verða
siðan bóndi. Fyrir ráð Jónasar og
áhrif, þá tók ég jörðina Staöarfell
á leigu vorið 1937, og þá var ég
ekki nema á 22. árinu. Staðarfell
hafði alltaf verið mikið býli og
höfðingjasetur. Margir sýslu-
menn höfðu setið þarna, eins og
Hannes Hafstein og siðast Þor-
steinn Dalasýslumaður. Það var
þvi óttalega skritiö þegar strák-
hvolpurinn kom þarna.
Móðir min og hluti systkina
minna flutti að Staðarfelli með
mér. Veturinn á eftir fór ég svo á
Hvanneyri og þar sem mér fannst
ég ekki hafa tima til þess að eyða
tveimur árum i búfræðinámið, þá
ákvað égað taka skólann á einum
vetri. Þaö þýddi að ég varð að
lesa yngri deildina utanskóla
sumarið eftir. Við vorum fjórir
sem ætluðum að ljúka búfræði-
náminu á þennan hátt, en á fyrsta
degi hættu hinir þrir við, svo ég
sat einn eftir. Ég lauk svo yngri
deildinni haustið á eftir.”
„Hann býr með henni
mömmu sinni”
— Þú sem bóndi að Staðarfelli
— hafðir þú ekki náin samskipti
við yngismeyjarnar i Húsmæðra-
skólanum á Staðarfelli?
„Ég held ég veröi að segja þér
af grinþætti sem yngismeyjarnar
i húsmæðraskólanum sömdu, en
þær héldu iðulega skemmtikvöld
til þess að hressa upp á mann-
skapinn. Þetta var fyrsta vetur-
inn minn á Staðarfelli og á einu
skemmtikvöldinu þá léku tvær
stúlkur samtalsþátt, sem gekk út
á það að þær væru að hittast 20
árum eftir að þær hefðu lokið
skólavistinni i húsmæðraskólan-
um. önnur hafði verið allan þenn-
an tima erlendis, en hin heima. Sú
sem hafði dvalist erlendis var að
leita frétta af þeim sem verið
höfðu með þeim á skólanum eða i
sveitinni i kring. Þá kemur að þvi
að sú sem verið hafði erlendis
spyr: „Hvað með Halldór? Hvar
er hann?” og hin svarar: „Ja,
hann býr ennþá á Staðarfelli með
henni mömmu sinni.” Og þá spyr
hin steinhissa: „Hvað segirðu?
Býr hann ennþá með henni
mömmu sinni? Gat hann nú ekki
náð sér i kvenmann?” Og loka-
svarið varð: „Nei, hann var
nefnilega aldrei viss um hvenær
hún kæmi sú besta.”
„Sú besta kom”
— Nú, þrátt fyrir þessi orð þin,
þá fannst þú samt konuefnið þitt á
Staðarfelli, ekki satt?
Halldór stendur á fætur, opnar
hurðina á skrifstofunni sinni og
kallar fram: „Attu á könnunni,
gullið mitt?” brosir siðan og sest
aftur makindalega i stól sinn, um
leið og hann segir: ,,Jú, þetta
tókst nú allt saman. Sú besta að
minu mati kom og hefur reynst
góður lifsförunautur. 1941 þá
kvæntist ég þessari konu. Hún
heitir Margrét Gisladóttir og var
vefnaðarkennari á Staðarfelli.
Okkar kunningsskapur féll þann-
ig að þetta varð framtiðarsam-
band. Við hófum búskap okkar á
Staðarfelli, en þar bjó ég i 18 ár.
Það má segja að þegar ég hætti
búskap hafi ég verið kominn með
bústofnog annað sem hæfði Stað-
arfelli.” ,
„Margur fær lof fyrir
litið og last fyrir ekki
par”
— Það hefur gjarnan farið það
orð af þér Halldór, að þú værir af-
ar kvenhollur maður. Hvað vilt
þú sjálfur segja um slikan orð-
stir?
„Ég minnist þess þegar Félag
ungra Framsóknarmanna varð 10
ára gamalt og hélt hóf á Hótel
Borg. Ég var þá hér i bænum á
námskeiði á vegum Framsóknar-
flokksins, og af þvi að ég var ung-
ur og ógiftur, en bjó við hliðina á
húsmæðraskóla, þá var ég feng-
inn til þess að halda ræðu fyrir
minni kvenna. Ég eyddi miklum
tima i undirbúninginn, oft fram á
nótt, en reif ræöuna jafnóðum og
henti þvi sem ég hafði skrifað áð-
ur en ég sofnaði.
Svo fórum viö að sjá Fjalla--
Eyvind tveim kvöldum áöur en
hófið var haldið. Þegar þau Ey-
vindur og Halla eru aö tala um
sinn flótta, þá segir Halla við Ey-
vind: „Þú ert svo hugrakkur og
áræðinn, en ég er svo kviöin.” Þá
segir Eyvindur: ,,Ef ég er áræðn-
ari en þú og hugrakkari, þá er það
af þvi aö þú hefur gefið mér hug-
rekkið.” Þá kipptist ég við og
hugsaði þarna hef ég ræðuna, og
samdi hana þegar ég kom heim,
eftir leikinn.
Ef maður reyndi aðflytja svona
ræðu núna, þá væri vonlaust að
ógiftur maöur næði nokkurn tima
i kvenmann.”
— Ekki átti það fyrir þér að
liggja að verða bóndi ævilangt og