Tíminn - 25.10.1981, Síða 27
Sunnudagur 25. október 1981
■' t\ W' i’ i'é'
v.v ..............................'27
undanrenna
Alfreð skríður
inn um glugga
Ævintýri Alfreðs Alfreðssonar í undirheimum - 3. hluti
Fávisir hafa spurt: Hver er hann eiginlega
þessi Alfreð Alfreðsson? Er þetta einhver
skattþegn hér í bæ sem þið eruð að vega ómak-
lega að? Eða er hann einvörðungu skemmd
hugarfíkja ykkar? Svarið er afdráttarlaust:
Alfreð er hvorugt. Og hann er ekki heldur í
símaskránni. Hann er gangnadi víti til varn-
aðar, varasamur til eftirbreytni, hann er
þarna einhvers staðar, létt fótatak að nætur-
lagi, sumir segja að hann blundi í hverjum
manni. Alf reð er tákn, erkitýpa. Okkar maður
í undirheimum og ómissandi sem slíkur. Æ,
þið þekkið Alfreð orðið, lítinn, pervisinn og
refslegan og í sífelldum útistöðum við lög og
rétt. Gamall kunningi kalla þeir þetta víst
mennirnir með hvítu kollana. Hingað til höf-
um við haldið okkur við viðskipti Alfreðs og
fíkniefnalögreglunnar eða „fíknó" eins og
hún er kölluð af gömlu kunningjunum. En um-
svif Alf reðs eru mun víðtækari og merkilegri,
hann er fjölhæfur maður, listamaður á sínu
sviði.
Við minnumst þess tilaðmynda að Alfreð
hafði eitt sinn haft „nótt á bænum" með f élög-
um sinum, þokkapiltunum, eina ferðina enn.
Þarna voru viðstaddir og síðar kallaðir til
vitnis Diddi storð, Hamarinn, Feisi, Arfur
Kelti og f leiri sem við kunnum ekki að nefna.
Nema hvað nóttin varð nokkuð löng, tveir
mánuðir segja sumir, sú vitneskja er í traustri
vörslu óminnishegrans. Fyrir Alf reð var þetta
nauðsynlegt orlof eftir stappið við að koma
fyrir cannabisplöntum hjá vinum og kunn-
ingjum.
Loks fékk Alfreð fylli sína af gleðskap og
gekk eitt kvöldið út Smáragötuna á leið heim
til mömmu — því mömmu á Alfreð rétt eins og
flestir menn, hvort sem þeir eru góðir eða
slæmir. Hún segir eins og svo margar lang-
þreyttar mæður: „Innst inni er Alfreð góður
piltur", þótt óneitanlega sé gamla konan
stundum vonsvikin yfir framferði sonarins.
Annars er hún ýmsu vön, því af brotahneigðin
gengur eins og rauður þráður um ætt Alf reðs.
Jæja, Alfreð er staddur á Smáragötunni á
heimleið, hafði greinilega villst af leið, því Al-
freð býr á Barónsstíg. Hann var þreyttur,
slæptur ocj hungraður, en þó lék um varir hans
þetta óræða bros sem sjaldnast veit á gott.
Hann kemur auga á opinn glugga, sér hann
útundan sér af eðlisávísun og áralangri þjálf-
un. Eins og rebbi sjálf ur er Alf reð kominn inn
um gluggann, á örskotsstund, þótt þröngur sé
og með nibbu. Um tíma lítur hann út eins og
kötturinn frægi, Tommi eða Jenni. Húsið er
autt og yf irgef ið, það ræður Alf reð af stöf lum
af ólesnum Morgunblöðum og pósti sem liggur
framan við bréfalúguna.
Alfreð trítlar fram í eldhús, kíkir í skápa,
rekur augun í ginflösku fær sér slurk í krist-
alsglas. Fer í ísskápinn, tekur út egg og f lösku
af tómatsósu. Spælir eggin með handbragði
meistarakokks, smyr brauð og hellir svo væn-
um skammti af tómatsósu yfir öll herlegheit-
Landafræðipróf
Mörgum (slendingum blöskrar hve lítið útlendingar vita um ísland — en hvað
vitum við annars sjálf mikið um útlönd? Hvað veit fólk hérna almennt um Finn-
land, Búlgaríu eða Portúgal til dæmis? Gef ið sjálf um ykkur 10 í einkunn ef þið get-
ið svarað 10 eftirf arandi spurningum rétt. Svörin eru á bls
1. Hvert eftirtalinna ríkja í Evrópu er minnst að flatarmáli: Andorra, Liechten-
stein, Monaco eða San Marino? (0,5)
2. Hvert ofantalinna ríkja er f jölmennast? (0,5)
3. Hvað heitir elsta lýðveldi Evr.ópu? (0,5)
4. Hvaða land í Evrópu nær lengst i vestur? (0,5)
5. Hvað heitir nyrsta höfuðborg í heimi? (0,5)
6. Hað heitir sú syðsta? (0,5)
7. ( hvaða sýslu er Neshreppur utan Ennis? (0,5)
8. Hver eru tíu stærstu lönd heimsins? (1,5 —ef þau eru nef nd í réttri röð. Annars
0,8)
9. Hver eru tíu fólksf lestu lönd heimsins? (2,0 ef þau eru talin í réttri röð. Annars
1,2)
10. Hvað hétu eftirtaldir staðir áður: (1) Bangladesh, (2): Eþíópía, (3): Gdansk,
(4): Ghana, (5): Grundarfjörður, (6): (ran, (7): Istanbúl, (8): Kampútsea, (9)
Leníngrad, (10): Libya, (11): Malawi, (12): Namibía, (13): New York, (14)
Nuuk, (15): Osló, (16): Simbabve, (17): Sri Lanka, (18): Suður-Afríka, (19)
Taiwan, (20): Tansanía, (21): Thailand, (22): Vietnam, (23): Volgograd, (24)
Zaire, (25): Zambia. (0,1 fyrir h«rt rétt svar eða 2,5 fyrir öll rétt).
eisapoy jnpjON :(ss) 'o6uo>| e>|si6
isg '-{VI) 'pej6uj|ejs :(ez) 'euj>| uiqs+o>j 6o ujeuuv '6uj>)6uoi :(ZZ) 'ujbjs :(LZ)
'e>uAue6uei :(oz) 'espujjoj :(6L) 'uepua|XuepjOH epa Áuoio^ ade^ :(8L) 'uo|
-AsD :(ZL) 'esjapoy jnpns :(9L) 'ejuej+su^ :(sl) 'qeegq+og :(trL) 'iuepjoisiuv
-M3N :(CL) 'e>|jjjv-JntsaApns :(5L) 'pue|esseÁN :(LL) 'ejuejjipdjji :(ol) '6joq
-sJnfád-!P|u?S : (6) 'ejppquje>| :(8) '|adouj|ue|suo>| :(z) 'ejsjad :(9) 'saujeiejg
:(S) 'U|pugj|S||n9 :(f) '6izuea :(£) 'ejmsAqqv :(Z) 'ue|S|>|ed-Jn|snv :(L) ‘0L
ejjaöjN '01 'uej.S|>|ed '6 'qsape|6ueg 8 'ej|
-jsejg z 'uedep 9 'ejsaugpui s 'ui>|jjepueg y 'ui>|jj+gAOs £ 'pue|pu| z 'eui» 1* 6
jjsiv 0L 'uepns ‘6 'euj|ua6jv ’8 'pue|
-pu| / 'ej|ej|sv 9 'ejijsejg g 'u|>|jjepueg y 'euj» £ epeue» z 'ui>|jjj.gAos 'L 8
n|sXss|epeddeuH 60 -snajæus j Z
•n>|jjaujv-Jngns 'jpue|>||ed 'Xa|uejs ‘9
•|pue|Sj '>|jAe!>|Xaa s
jep6ua| jn.|.saA jnpgjö 88 |6æ|gu
ja ipue|uæj0 ? >mess6euj6uv pe ssacj e|a6 ^iu jepjnqueuies m 'ipueisj 9 je6ue|
-6je!g ua ej6ua| ujnp^jö 8 uinuiru epa jn|saA j jnp?j6 es umj.sæú ?u jejÁajosv ‘V
988 uepjs epa j? S60L1 ip|aApA| puaA jnjaq oujjeyy ues £
SZ6L PM? enqj 000'52 Lun paui — ooeuow 'z
jl^uuejeH pe -ui>|jaj gi su|ape — ooeuow 1
uoadiGazadVQNVT gia öoas
in. Hann segir oft í gamni að Nixon sem hann
dáir mjög noti líka tómatsósu út á allan mat.
Alfreðtekur til matar síns í makindum og les
um af rek sín í velktum Helgar-Tíma. Brosið ó-
ræða víkur fyrir barnslegu stolti.
Alfreð geispar, Alfreð sker hrúta, Alfreð
leggst til svefns á plusssófann í stof unni. Þeg-
ar hann er að bylta sér rekur hann stóru tána í
blómapott sem veltur um koll. Þegar Alfreð
vaknar loks er kominn morgun, fuglasöngur í
heiði og allt það, mál að tygja sig heim.
Tveimur dögum síðar birtist sjóðandi heit
baksiðufrétt í dagblaði undir fyrirsögninni:
„Ég þurfti að sótthreinsa í hólf og gólf". Þar
er rætt við ísafoldu Þjóðleifsdóttur, húsfreyju
í téðu húsi við Smáragötuna þar sem Alfreð
gerði sig gestkominn.
isafold segir m.a.: „Ég hef aldrei vitað
annað eins bríarí, allt á floti í eldhúsinu,
blómapottarnir út um öll gólf,, búið að tæma
úr vínskápnum, allur matur uppétinn.... Við
hjónin vorum að koma frá Flórída.... Það er
kannski óþarfi að taka fram að ég lét sótt-
hreinsa íbúðina hágt og lágt. Það er aldrei að
vita hvað svona sóðar geta borið með sér...."
Og allt í þessum dúr. Við vitum betur — að
Alfreð Alfreðsson er kattþrifinn maður og að
hann þvoði m.a.s. upp eftir sig, vökvaði blóm-
in og stillti sig um að stela öllu steini léttara.
„Maður hef ur viss prinsípp, aldrei að gera tvo
hluti í einu", tautaði Alfreð þegar hann límdi
fréttina inn í svellþykka úrklippubókina sína.
í næsta blaði segjum við frá því þegar Al-
freð Alf reðsson, okkar maður í undirheimum,
gerðist gluggagægir, en féll svo á bragði læ-
víss eiganda húss og konu, enda maður sein-
heppinn með afbrigðum.