Tíminn - 08.11.1981, Blaðsíða 5

Tíminn - 08.11.1981, Blaðsíða 5
Sunnudagur 8. nóvember 1981 i:?1. 5 m VEIM3©C€ Sundaborg 10 — Simar 8-66-55 & 8-66-80 fólk f listum Haustsýning í Ásgrímssafni: Reykjavík og nágrenni fyrir 1930 ■ Haustsýning hefur veriö opnuö i Asgrimssafni. AB þessu sinni eru flestar myndanna frá Reykjavik, Hafnarfiröi og nágrenni. Meiri hluti þeirra eru vetrarmyndir málaöar um og fyrir 1930. Þá eru einnig nokkrar andlitsmyndir á sýningunni, t.d. oiiumálverk af þeim Þórarni B. Þorlákssyni og Brynjólfi Þóröarsyni listmálur- um, Rögnvaldi Olafssyni bygg- ingameistara og nokkrar sjálfs- myndir listamannsins. A sýning- unni er lika ein af elstu myndum safnsins „Stúlka og landslag” máluö fyrir aldamót. Asgrimssafn Bergstaöastræti 74 veröur opiö i vetur á sunnudög- um, þriöjudögum og fimmtudög- um kl.13:30-16:00. Aögangur er ó- keypis. Jón Leifs Eddu-óratoríum Jóns Leifs frum- flutt á Listahátíð ■ Einn af stórviöburöum Lista- hátiöar 1982 er frumflutningur á viöamesta tónverki Jóns Liefs, Eddu-óratórlum sem samiö var við Eddukvæöi og fjallar um sköpun heimsins. Framkvæmda- stjórn Listahátiöar hefur fariö þess á leit viö Pólýfónkórinn og stjórnanda hans Ingólf Guö- brandsson, aö taka verkiö til flutnings ásamt Sinfóniuhljóm- sveit tslands og einsöngvurum. Til flutnings Eddu-óratórium þarf aö dómi söngstjórans Ingólfs Guðbrandssonar stærri kór en nú er starfandi hér á landi. 1 Pólý- fónkórnum eru nú rúmlega 120 fé- lagar, en söngstjórinn telur aö 40-50 raddir þurfi til viöbótar. Til þess aö hrinda þessu máli i fram- kvæmd er þvi i ráöi aö stofna einskonar Listahátlöarkór sér- staklega meö flutnings þessa verks i huga. Er þvi skorað á söngfólk og tón- listarunnendur að leggja májinu lið og gefa sig fram til þáttöku. Æfingar á verkinu munu standa yfir næstu 5 vikur, og siöan veröa þær teknar upp aftur um miöjan april en frumflutningur verksins er fyrirhugaöur viö opnun Lista- hátiöar 5. júni 1982. Upplýsingar eru gefnar á skrif- stofu Listahátiöar i sima 12444 og ■ Þórarinn B. Þorláksson listmálari. Asgrimur Jónsson málaöi hjá stjórn Pólýfónkórsins i sima 1915 43740 eöa 38955 til 7. nóvember. Ævintýralegt líf — Utvarpsþáttur um Kristján luga Einarsson ■ „Kristján Ingi Einarsson liföi mjög ævintýralegu lifi, þaö er ekki fjarri lagi aö llkja honum viö Hemingway aö þvi leyti. Hann var byggingameistari, fór út til Bandarikjanna og vann sig þar upp i aö veröa byggingaverkfræö- ingur. Hann var meöal annars sendur til Vietnam og þar þurfti hann aö sjálfsögöu aö ganga meö vopn, hann tók einhvern þátt i bardögum”. Steingrimur Sigurösson, kunn- ur listmálari, veröur meö frá- söguþátt i útvarpinu næstkom- andi sunnudagskvöld, þar sem hann ræöir um Kristján þennan og vildi hann koma þvi á framfæri við lesendur Helgar-Timans, og ekki seinna vænna. Þaö var ein- mitt hann Steingrimur sem haföi oröiö hér aö ofan. Ekki henda hafragrauts- leifunum Slettu frekar skyri (eöa jóg- úrt) út á þær. Leggstu síðan flötum beinum á eldhúsgólfiö og reyndu aö hafa þaö huggulegt á meöan þú slafrar þessu i þig. Reyndu aö leiöa hugann frá gómsætu steik- inni í Manhattan með því að hlusta á útvarþiö. Óperu- söngur Dietrich Fischer- Dieskau og sinfóníur Fíl- harmoníunnar fá þig áreiö- anlega til aö hugsa um eitt- hvað annaö. En ef þau koma þér til að hugsa um aö Logi sé aö spila óperu-rokksöng Nínu Hagen eöa ballööur Billy Joels i Manhattan, þá skaltu skipta yfir á Kanann í einni svipan. Lýsingar Kan- ans á fótboltaleikjum eru reyndar ekki mjög listauk- andi. En þær fá þig þó til aö gleyma því aö í Manhattan eru hundruö manna í fjörug- um dansi, glensi og glaumi. Ef síminn hringir skaltu um- svifalaust rífa upp tólið, öskra i þaö: „Þvi miður er enginn heima", og skella á. Nöldrandi ættingjar (sima- nöldrarnir svokölluðu) koma þér nefnilega til aö öfunda gestina í Manhattan sem geta valiö sér skemmtilega viömælendur í hliöarsalnum, brutt saltstengur og notiö lágværrar bakgrunnstónlistar í fögru og þægilegu umhverfi. Þegar kemur að uppvaskinu skaltu hiklaust þykjast ekki taka eftir stöflunum af óhreinu diskununum, glösun- um og öllu draslinu. Þaö myndi gera út af við þig. Þú myndir stökkva í baö, síöan i spari-dressið, rjúka i Man- hattan veifandi nafnskírtein- inu og eiga ógleymanlega kvöldstund í faðmi vina og ... humm ... hérna, ef... ja . . . Boröapantanir eru í síma 45123 frá kl. 16.00—19.00. Húsið opnar kl. 19.00 fyrir matargesti.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.