Tíminn - 08.11.1981, Page 21
Sunnudagur 8. nóvember 1981
21
verið, og eru jafnvel enn, njósn-
arar fyrir Sovétrikin. Watson sá,
sem nefndur var hér að ofan
hefur þverneitað öllum ásökunum
þar til nú i vor að hann gaf i skyn i
viðtali við breskt dagblaö að
ásakanirnar væru sannar. Þá
hafa lengi gengið sögur um ýmsa
mjög háttsetta menn sem njósn-
uðu fyrir Rússa, talað hefur verið
um þingmenn og jafnvel
ráðherra. Slikar sögusagnir hafa
þó aldrei komist i hámæli vegna
sannanaskorts ( en meiðyrðalög-
gjöfin breska gerir það að verk-
um að til þess að nefna tiltekinn
mann i blööum og ásaka hann um
njósnir þurfa ásakanirnar að
vera algerlega skotheldar. Um-
rædd meiðyröalöggjöf hefur oftar
oröið til þess að hylma yfir með
sekum en vernda saklausa og
nægir að nefna Kim Philby i þvi
sambandi. Hann lá undir grun allt
frá árinu 1951 en þegar þær
ásakanir voru viðraðar opinber-
lega neyddist breska stjórnin til
að hreinsa hann, vegna þess að
ekki lágu fyrir óyggjandi sann-
anir um að hann heföi verið
á mála hjá Rússum. Meiðyrðalög-
gjöfin kom þó ekki i veg fyrir að
breski blaðamaðurinn Chapman
Pincher gæfi út bók fyrr á þessu
ári þar sem hann bar það á fyrr-
um yfirmann MI-5, Sir Roger
Hollisi að hafa verið sovéskur
njósnari,en Hollis lést árið 1973 og
gat þvi ekki borið hönd yfir höfuð
sér. Asakanir Pinchers sættu
mikilli gagnrýni ýmíssa sérfræð-
inga um málefni leyniþjónust-
unnar og hann var sakaöur um
æsifréttamennsku, en ef satt er
liggur i augum uppi aö MI-5 hefur
veriö mikiö til gagnlaus fyrir
Bretland þau ár sem Hollis var
þar áhrifamestur.
MacLean útvegaði
Rússum kjarnoriu-
sprengju
Þá má geta þess i lokin að
nokkur endurskoðun hefur farið
fram hin siðustu ár á njósnum
Philbys, MacLeans og Burgess —
þeirra njósnara sem frægastir
hafa orðið auk Biunts og George
Blakes. Mikilvægi þeirra og sér-
staklega Philbys, hefur veriö ýkt
mjögaðmatisérfræðinga.en þeir
segja að Philby hafi aldrei verið
annað en meðalnjósnari fyrir
Sovétmenn og ekki komið þeim að
nærri eins miklu gagni og ýmsir
aðrir. Á hinn bóginn telja menn
nú að Donald MacLean sem jafn-
an hefur verið talinn mesta kveif,
jafnt í njósnum sem persónulega
hafi verið einhver mesti njósnari
Sovétrikjanna sem sögur fara af.
Það hafi nefnilega verið hann
sem útvegaði Sovétmönnum
leyndarmál kjarnorkusprengj-
unnar en ekki Klaus P’uchs eða
NunnMay og hvað þá Rosenberg-
hjónin. MacLean var starfs-
maður breska sendiráðsins i
Washington á árunum eftir seinni
heimsstyrjöldina og átti þá sæti i
nefnd sem samræmdi kjarnorku-
rannsóknir Breta og Bandarikja-
manna. Samkvæmt samkomulagi
sem gert hafði verið hafði hann
aðgang að öllum þeim leyndar-
málum sem hann vildi og eftir að
reglur höfðu verið hertar mjög
hélt MacLean réttindum sinum,
þó yfirmaöur kjarnorkurann-
sókna Bandarikjamanna hafi
verið bannaður aðgangur að ýms-
um svæðum! Er nú sagt að þessi
viðkvæmi, brotgjarni maður —
Donald MacLean — hafi sparað
Sovétmönnum fimm ára rann-
sóknir og glfurlegt fjármagn með
þvi að afhenda þeim réttar upp-
lýsingar um kjarnorkusprengj-
una. MacLean lifir sem kunnugt
er enn og býr i blokkaribúð i
Moskvu, hefur hægt um sig og
grætur mikið að sögn kunnugra.
Kim Philby er aftur á móti ofursti
i KGB, mikil hetja i augum Rússa
og margra á Vesturlöndum, þótt
nú sé taliö að hann hafi orðið
Sovétrikjunum aö mun minna
gagni en MacLean. Ganga sumir
svo langt að fullyrða að Sovét-
menn hafi fórnað Philby strax
árið 1951, eftir að MacLean og
Burgess flúöu yfir járntjaldið, en
þá var taliö að Philby hefði
varað þá við að brátt kæmist upp
um þá, eða að minnsta kosti Mac-
Lean. Nú segja sumir að það hafi
i raun veriö Blunt sem aðvaraði
þá félaga en Sovétmenn hafi vis-
vitandi látið grun falla á Philby,
og jafnvel Blunt, til að fela enn
stærri njósnara. Og hvar eru
þeir? —ij tók saman
UH
HAUSTVERÐ
Eigum takmarkað magn af eftirtöldum
heyvinnutækjum á mjög hagstæðu verði
v
Heyhleðsluvagn
26 rúmm. með 7 hnifum og vökvalyftri
sópvindu Verð kr. 44.400.-
ZIR 165
SLATTUPYRLAN
★ Sterkbyggft-
★ Fullkominn öryggisbúnaður.
★ Driföryggi á reimskifu.
★ Ctsláttaröryggi.
★ Auftveld i flutningsstöftu.
★ Einföld hnifaskipting.
★ Þrir hnifar á tromlu.
★ Vinnslubreidd l,tt5 in.
★ Orkuþörf 40 ha.
Verð kr.
11.500.-
Fella TH 460
Vinnsiubreidd 4,90 m. og breidd i flutningsstöðu
2.75 m. Vélin hefur fjórar snúningsstjörnur og sex
arma á hverri stjörnu. Dreifir þvi mjög vel úr
múgunum og tætir heyið. Kastar frá skurðbökk-
um og fylgir vel eftir á ójöfnum. Afkastamikil
heyþyrla sem hentar flestum. Verð kr. 16.900.-
Fella TH 670 6 arma 6 stjörnu heyþyrla með 6,7
m. vinnslubreiddina. Hagnýtið ykkur nútima
tækni og vinnuhagræðingu. Verð kr. 21.000.-
Fella TS 300
Vinnslubreidd 3.00 m. Hentar mjög vel til að raka
saman i garða fyrir heybindivélar. Fljótvirk og
skilar múgunum jöfnum og loftkenndum, sem
tryggir jafnari bagga og betri bindingu.
Hafið samband við sölumenn okkar sem gefa
allar nánari upplýsingar. Verð kr. 12.000.-
G/obust
LÁGMÚLI 5, SIMI 81555
LEVIS ÁVINNSLUHERFI
Vinnslubr. 3 m. kr. 2.100.-
Vinnslubr. 4.20 m. kr. 2.800.-