Tíminn - 08.11.1981, Page 22
| • PLOTUR • PLOTUR » PLðTUR « PLðTUR « PLÖTUR » PLÖTUR • PLÖ1
Tíu íra
drottning
■ Hvar væri breskt tónlistarlif ef
skóla nyti ekki vift? Allar breskar
hljtímsveitir verða til i skóla.
Sktílabræður taka sig saman,
spara fyrir hljdðfærum, byrja að
æfa og gefa sig loks á vald dómar-
anum.'áhorfendum. Æöi misjafnt
er það hve vel þessar sktíla-
hljómsveitir standa sig og hvort
þær yfirleitt lifa veturinn af.
Oftar en ekki deyja þær drottni
sinum og félagarnir halda hver i
sina áttina.en kannski kemur
það fyrirað50% af hljtímsveitinni
heldur áfram og hver veit?
Þannig varð einmitt upphaf
„Queen”.
,,Smile”
Ariö 1968 ákvað ungur eðlis-
fræðistúdent, Brian May að nafni
að stofna hljómsveit. Hann hóaði
saman Tim Staffell og Roger
Taylor og „Smile” varð til.
Frægðin lét a sér standa þrátt
fyrir það að þeir nytu talsverðra
vinsælda innan skólans. Það
næsta sem þeir komust aö heims-
frægð var að gefa út eina tveggja
laga plötu, sem aðeins var gefin
úti Bandarikjunum og vaktienga
athygli. Tim Staffell sem þá var
oröinn leiður og sætti sig ekki við
að draumar þeirra rættust ekki
yfirgaf hljómsveitina. En þeir
félagarnir Brian og Roger voru
aldeilis ekki á þeim buxunum að
gefast upp og hófu þegar leit að
gtíðum söngvara. Kunningi
þeirra, sem hafði oft hlýtt á tón-
leika hjá „Smile” og gefið þeim
góö ráö, kom til greina. Þetta var
býsna séíkennilegur fugl bæði I
útliti og hegðun, en hann gat
sungið og samið lög. Þannig var
það að Freddie Mercury kom inn f
myndina.
Leitin að bassaleikaranum var
erfiö en hún borgaði sig. Allir
voru þeir ánægðir með John
Deacon. Fjórir félagar sem aliir
voru I skóla. Kannast einhver við
þetta?
Til að byrja með var hljóm-
sveitin nafnlaus. Þetta var einn
þátturinn f undirbúningi þeirra
fyrir framtfðina. Þeir ætluðu dtki
að gefa kost á sér fyrr en þeir
væru alveg tilbúnir. Svoþeir æfðu
stift og æfðu lengi. 1 þau fáu skipti
sem þeir komu fram á þessum
tima var það fyrir þröngan hóp
vina og kunningja. A grundvelli
þessara tónleika barst hróöur
þeirra viða og ekki leið á löngu
þar til hljómplötufyrirtæki voru á
slóðþeirra.EMI var ekki lengi að
ákveða sig og gerðu samning við
„Queen” eins og þeir köliuðu sig
þá.
Fyrsta platan
„Keep Yourself Alive” var á
Ahliðfyrstu plötu þeirra. Það lag
varð ekki vinsælt og varð raunar
þeim vafasama heiðri aðnjótandi
að vera synjað fimm sinnum um
spilum af BBC.
Þessar lélegu undirtektir
drógu þó ekkert úr þeim
drottningarmönnum. Þeir héldu f
hljtímleikaferð um Bretland og
komu fram (i fyrsta og siðasta
skipti) sem upphitunarhljómsveit
fyrir „Mott the Hoople”.
„Seven Seas Of Rhye” varö
þeirra fyrsta vinsæla lag. Það
var á fyrstu stóru plötu þeirra
„Queen”, sem kom út i júli 1973.
Eftirleikurinn var auðveldur og
lagið „Bohemian Rhapsody”
gerði þá heimsfræga.
75 tonn
Sem stendur er „Queen” á
hljómleikfaferðalagi um Suður-
Ameriku. Þaö er ekkert smá-
fyrirtæki þvf þeir ferðast meö um
75 tcnn af græjum og þaö tekur 30
manns að halda þessu gangandi
Þráttfyrir það að þetta er I annað
sinn á þessu ári sem þeir fara til
Suður-Ameríku ætla þeirstrax að
halda istúdioað þessu loknu til að
hljóörita næstu plötu sina. Og eins
og það sé ekki nóg þá ætla þeir að
halda i hljómleikaferð um
Austurlöndin fjær eftir að plöt-
unni er lokið. Þar heimsækja þeir
borgir eins og Kuala Lumpur,
Bangkok. Singapore, Seoul og
Hong Kong.
Til þess að brúa bilið frá siöustu
stúdióplötu til þeirrar næstu
ákváöu þeir aö gefa út „Greatest
Hits”. Á plötunni er að finna öll
helstu „Queen” lögin og af nógu
er að taka. Platan spannar ekki
aðeins tónlistarferil þeirra heldur
gefur .hún gtíða mynd af fjöl-
breytileik þeirra, þvi allir fjórir
eru þeir góðir lagahöfundar.
David Bowie og Queen
„Þetta er eitt af þvi besta sem
„Queen hefur gert og það merki-
lega er að það varð svo til
áreynslulaust þegar Bowie heim-
sótti okkur i stúdioið”, sagði
Roger Taylor um lagið „Under
Pressure” sem þeir sömdu og
flytja f samvinnu við David Bowie
og væntanlegt er á markaðinn
innan skamms. Og hann hélt
áfram: „Svo lengi sem við
höldum áfram að koma sjálfum
okkur á óvart munum við halda
áfram”.
—M.G.
Allt í plati?
Genesis: ABACAB
■ Peter Gabriel, Tony Banks,
Michael Rutherford stofnuðu
Genesis. Þeir gáfu út eina plötu
.JFrom Genesis to Revelation”
áður en Phil Collins og Steve
Hackett gengu til liðs við þá.
Þannig skipuð náði hljómsveitin
mjög langt og með tveimur
plötum „Nursery Cryme” og
„Foxtrot” tóku þeir fyrstu
skrefin í átt til heimsfrægðar sem
þeir stigu til fulls meö plötunum
„Selling England By The Pound”
og „The Lamb Lies Down On
Broadway”. Fylgi sitt f Bret-
landi áttu þeir ekki sfst að þakka
stórkostlegum hljómleikum þar
sem söngvarinn Peter Gabriel
túlkaði á mjög myndrænan hátt
lög þeirra. Smátt og smátt fjar-
lægðist hann hljómsveitina i leit
sinni að hinu sjónræna og þar
kom að leiðir skildu árið 1975.
Skömmu seinna yfirgaf Steve
Hackett þá. ,,... and then they
were three” hét að sjálfsögðu
næsta plata þeirra. Meö henni
eyddu þeir efasemdum manna
um það að hljómsveit sem byggði
fylgi sitt á hljómleikum og sér-
kennum söngvarans gæti ekki
lifað af missi Gabriels. Þó þeir
séu nú ekki eins skemmtileg
hljómsveit á sviði þá geta þeir
enn gert skemmtilegar plötur.
Plötur þeirra hafa alltaf selst vel,
en aldrei eins vel og nú. Nýjasta
afkvæmi þeirra Banks, Ruther-
fords og Collins „Abacab” rauk
strax i fyrsta sæti breska vin-
sældalistans.
Platan sver sig mjög i' ætt við
fyrri plötur Genesis og er i raun
merkilegt hve jafnvel sólóplata
Phil Collins sem hann gaf Ut fyrr
áþessuárierlík „Abacab” þó frá
þvf séu heiðarlegar undantekn-
ingar. Þeir hverfa alltaf meir og
már inn f sig og músik þeirra
verður rafmögnuð og díki eins
hreinskipt eins og á fyrstu plöt-
unum.
Ekki veit ég hvaö nafniö á plöt-
unni þýðir, en likt er það „abba
gabb” á Islensku sem þýðir gabb?
Það skyldi þó aldrei vera...
—M.G.
Svona er Billy
Joel
Billy Joel: Songs
in the Attic
■ Billy Joel þarf ekki að kynna.
Hann hefur á sinn sérstaka
hátt endurvakið pfanómanninn i
rokkinu og er i þvi arftaki Little
Richard, Jerry Lee Lewis, Elton
Johns og fleiri ágætra manna.
Lftt sem ekkert var hann þekkUr
fyrr en hann gaf út plötima
„The Stranger”, sem svo sannar-
lega skaut honum upp á stjörnu-
himininn. En ferill hans byrjaði
ekki með „The Stranger”. Aöur
var hann búinn að gefa út
fjöldann allan af plötum og
ferðast vitt og breitt um Bahda-
rikin. Hann átti sér dygga að-
dáendur sem létu alltaf sjá sig á
hljtímleikum hans, en voru þvi
miður ekki nógu margir til að
koma honum inn á lista með
plötukaupum. Eftir að hann varð
frægur með plötum eins og „The
Stranger”, ,,52.Street” og „Glass
Houses” fannst honum tilvalið aö
kynna nýjum aödáendum sfnum
allt það efni sem hann flutti á ttín-
leikum og setti á plötur fyrir árið
1977. Á tónleikaferð sinni um
Bandarikin árið 1980 lék hann þó
nokkuð af sinum gömlu lögum.
Hann gerði þetta að hluta til að
rifja upp gömul kynni en einnig til
að prufukeyra efnið. Áhorfendur
tóku vel undir og reyndar héldu
sumir að þetta væri nýtt efni frá
honum. Hann þurfti eki lengi að
sitja yfir tölvunni til að finna út að
„Queen” Stórar plötur
„Queen” (EMI EMC 3006)...............................júli 1973
„Queen II” (EMI EMA 767)............................april 1974
„Sheer Heart Attack” (EMI EMC 3061)..............nóvemb. 1974
,,A Night At TheOpera” (EMI EMTC 103)............desemb. 1975
„A Day At The Races” (EMI EMTC 104)..............desemb. 1976
„News Of The World” (EMI EMA 784).................október 1977
„Jazz” (EMI EMA 788)............................nóvember 1978
„Live Killers” (EMIEMSP 330) ........................júni 1979
„TheGame” (EMI EMA 795)..............................júni 1980
„Fiash Gordon” (EMI EMC 3351)...................desember 1980
„Fun In Space” (EMI EMC 3369).......................april 1981
(sólóplata Roger Taylor)
Konsertinn „Ástir samlyndra hjóna”:
Of mikið
■ Færri komust að en vildu er
konsertinn „ástir samlyndra
hjóna” hófst I NEFS-klúbbnum
um sföustu helgi. Húsið var troð-
fullt áður en konsertinn hófst og
rauðvfnið flaut i striðum straum-
um um það.en greinilegt var aö
flestir bjuggust viö góðu „giggi”
og það sem þeir fengu var einn
besti rokk-konsert sem hér hefur
verið haldinn.
ÞEYR komu fyrst fram á sviðiö
og hófu leik, tóku nokkur lög af
nýjustu plötu sinni Iður til fóta
við góðar undirtektir áheyrenda
en sfðan blönduðu þeir inn i pró-
grammið lagi af plötunni Ctfrymi
og nokkrum lögum af óútkominni
LP-plötu þeirra. ÞEYR hefur
veriö I stöðugri framför frá þvf að
þeir gáfu út fyrstu plötu sfna og
þeir sýndu það og sönnuðu að þeir
eru með þvi besta sem viö eigum
á sviði nýbylgjunnar f dag.
Hið eina sem skyggði á leik
þeirra var aö söngvarinn virtist
vera taugastrekktur, en það
skyggöi ekki mikið á frammi-
stöðuna er á heldina er litið og
ánægjulegt var að heyra að söng-
urinn hjá sveitinni er orðinn
meira áberandi og skilst betur en
áður þvi textar ÞEYR eru mjög
góöir og hafa allir til aö bera
merkingu eða brodd.
Tónlist ÞEYR þekkja flestir og
átti sveitin ekki f neinum vand-
ræðum með að hrifa áheyrendur
með sér enda var óspart klappað
er þeir luku leik sinum.
Þursaflokkurinn kom næst
fram á sviöið og hófu leik sinn
meö nokkrum rólegum melódium
þar sem söngur Egiis var áber-
andi og bar leikinn að miklu leyti
upp. Þetta var mjög ánægjulegt
þvi Egill hefur sjaldan veriö I
betra formi og þar fer tvimæla-
laust einn besti popp-söngvari
okkar i dag.
ÞURSAFLOKKURINN varö
fljótt var við að rólegheitin gengu
ekki alveg eins vel niður háisa á-
heyrenda og rauðvfnið þannig að
undir lokin tóku þeir lagið „Jón
var kræfur karl og hraustur” en
var ekki
nóg
undir þvi ætlaði þakið að rifna af
fagnaðarlátum enda er lagiö að
dómi undirritaðs eitt besta
punk-lag sem á islensku hefur
veriö samið.
Astir
Eftir að Þursarnir höfðu lokið
leik sinum kom sú stund sem
flestir höfðu beðið eftir eða sam-
leikur þessara tveggja sveita.
Þar sannaðist að heiti konsertsins
var ekki úr lausu lofti gripiö þvi
sveitirnar náöu mjög vel saman i
þeim þremur lögum sem þær tóku
og voru þau, og þá sérstaklega
siöasta lagið, hápunktur kvölds-
ins.
„Of mikið var ekki nóg” geta
verið einkunnarorðin að þessum
konsert loknum þvi fagnaðarlát-
um ætlaði aldrei að linna og
stemmningin var orðin þannig
undir lokin að áheyrendur vildu
helst hlýða á þessar sveitir spila
saman alla nóttina.
—FRI