Tíminn - 08.11.1981, Síða 23
Sunnudagur 8. nóvember 1981
23
[JR • PLÖTUR •
tveir plús tveir eru fjórir og að
þetta efni ætti erindi á plötu og
fyrir eyru almennings.
Platan ber heitið „Songs in the
attic” eöa „gamlar lummur.”
Þaö er skemmst frá þvi aö segja
aö þetta er frábærplata. Heimild
um þaö aö Billy Joel er miklu
meira heldur en dægurlagaflyt-
andi. Hann er listamaöur. Leikur
hans og hljómsveitarinnar á
hljómleikunum er sllkur aö
sjaldan hefur heyrst betra á live
plötu. Þö er þetta ekki live plata
frá honum í venjulegum skilningi
þessa orðs, heldur eru þetta lög
útsett fyrir hljómsveit, pianó og
áhorfendur. Flutt af krafti og til-
fmningu. Svona á að flytja lög
Billy Jóel.
— M.H.
„Made for
U.S.A.”
Sheena Easton: You
Could Have
Been With Me
■ Mitt i pönkbylgjunni sem
dundi yfir Bretland á árunum
1977-79 kom Sheena Easton fram.
Bretar trúðu vart sinum eigin
augum hvað þá eyrum. Hér var
komin söngkona sem söng um
veraldleg gæði, ástina, vinnuna
sina, hvað hún væri hamingjusöm
og lifið dásamlegt, sem sagt allt
það sem pönkið var að rakka
niður. Það var þvi ekkert skritið
þótt hún hafi fengið misjafna
dóma, annaðhvort hrópuð niður
eða hælt i hástert. En margir
spáðu þvi að hún myndi aldrei
veröa neitt á þessum timum ólgu
og ofbeldis. En hið ótrúlega gerð-
ist. Gjörsamlega óþekkt i Bret-
landi sendi hún tvö lög á toppinn
koll af kolli, nokkuð sem virtustu
hljómsveitar Breta gátu verið
fullsæmdar af. Lögin voru
„Modern Girl” og „9-5”. (1
Bandarikjunum hét það
„Morning Train” til að forðast
rugling við áður útgefið lag Dolly
Parton” 9 to 5”). Frægðin sem
áður virtist svo fjarlæg var
hennar. Síðan hefur Sheena
Easton stöðugt verið að auka að-
dáendahóp sinn. Siðasta skraut-
fjöðrin i hatt hennar var lagið
„For Your Eyes Only”. Þetta er
titillag nýjustu James Bond
myndarinnar, sem hún var fengin
til að syngja. Það segir kannski
meira en nokkur orð um hana að i
fyrsta skipti birtist söngkona sú
er ssyngur titillag James Bond
myndar i fullum skrúða á tjaldinu
i byrjun myndarinnar. Þetta er
talsverður heiður fyrir hana, en
enn meiri viðurkenning á söng
hennar.
Með útgáfunýjustuplötu sinnar
„You Could Have Been With Me”
er greinilega stefntá Bandarikja-
markað. Nú nýtur hún talsverðra
vinsælda þar vegna „F'or Your
Eyes Only”, sem og reyndar
annarsstaðar. Á plötunni eru lög-
in þó nokkuð misjöfn en inni á
milli má þó þekkja nokkur sem
örugglega eiga eftirað verða vin-
sæl, einsogt.d. „IA Little Tender-
ness”. Sheena Easton er góö
söngkona og á allt hrós skilið fyrir
það. Með James Bond undir ann-
arri höndinni og plötuna undir
hinni á hún örugglega eftir að
gera stóra hluti.
—M.G.
Höfum tekið í umboðssölu nokkrar
ISHIDA D82 vogir
Góðar vogir á góðu verði
PLflSTPOKAB |||._-.g |.|* PLASTPOKflR
O 826 55 |,|«ISI.OS III UMktkmíl^ 0 82655
PLASTPOKAVERKSMIDJA OODS SI6URÐSS0NAR GRENSÁSVEGI 7 REYKJAVÍK
BYGGINGAPLAST • PLASTPRENTUN • MERKIMIÐAR OG VÉLAR
ISHIDA
(Tl
UJ
Reiknistofa bankanna
óskar að ráða reynda
forritara
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SIB
og bankanna.
Umsóknarfrestur til 25. nóvember 1981.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu Reiknistofu Bankanna á Digranes-
vegi 5, Kópavogi.
m Byggingalána-
sjóður Kópavogs
Hér með er auglýst eftir umsóknum um
lán úr byggingarlánasjóði Kópavogs.
Skilyrði fyrir þvi að lánbeiðanda verði
veitt lán úr sjóðnum eru þessi:
A. að hann hafi verið búsettur i Kópavogi
a.m.k. 5 ár.
B. að ibúðin fullnægi skilyrðum húsnæðis-
málastjórnar um lánshæfni úr byggingar-
sjóði rikisins.
C. að umsækjandi hafi að dómi sjóðs-
stjórnar brýna þörf fyrir lánsfé til þess að
fullgera ibúð sina.
Við úthlutun lána úr sjóðnum skulu þeir
umsækjendur sem flesta hafa á framfæri
sinu ganga fyrir að öðru jöfnu. Lánsum-
sóknum skal skila til undirritaðs fyrir 4.
des. n.k.
Kópavogi 8. nóv. 1981
Bæjarritarinn í Kópavogi.
ÁRGERÐ 1982
TRABANT/WARTBURG
Vonarlandi v Sogaveg — Símar 33560 & 37710