Fréttablaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 29
HEIMILI HELGIN HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Ragnheiður Birgisdóttir, skrifstofustjóri hjá
fasteignasölunni Remax, er mikill sælkeri og
þykir fátt skemmtilegra en að elda og borða
góðan mat.
Ragnheiður er ófeimin við að prófa nýja hluti en er
mikill aðdáandi gamla góða sveitamatarins enda upp-
alin í sveit. Uppáhaldsrétt sinn smakkaði Ragnheiður
fyrst hjá móður sinni.
„Mamma eldaði þennan rétt einu sinni og bauð mér
í mat. Ég varð um leið mjög hrifin af honum og elda
hann mjög oft og vekur hann mikla lukku í hvert skipti.
Innihaldið er ekki mikið en þó er rétturinn bragðgóður
og framandi. Í hann þarf tvö flök af ýsu, tvo þroskaða
banana, átta til tíu ferska sveppi, hálfan rauðlauk,
sítrónu pipar, heilhveiti og aromat,“ lýsir Ragnheiður.
Þegar þessu öllu hefur verið safnað saman er ekki
annað í stöðunni en að skella sér í að elda réttinn.
„Aðferðin er einföld og er þannig að ég byrja á því að
skera fiskinn í hæfilega stóra bita. Í skál blanda ég
saman heilhveiti, sítrónupipar og aromat og velti fisk-
bitunum upp úr því. Fiskurinn er síðan steiktur á
pönnu upp úr olíu í þrjár mínútur á hvorri hlið. Þá sker
ég bananana eftir endilöngu og svo í tvennt og sveppina
í sneiðar. Saxa síðan rauðlaukinn og steiki þetta allt á
pönnu með fisknum í um það bil fimm mínútur. Set svo
lok á pönnuna og læt þetta liggja í fimm til tíu mínútur,“
segir Ragnheiður.
Með þessum fiskrétti ber Ragnheiður fram hrís-
grjón, ferskt salat og mjög vinsælt er að hafa kalda
grillpiparsósu með. Ragnheiður hvetur alla til að prófa
þennan bragðgóða og sérstæða rétt.
mikael@frettabladid.is
Bragðgóður og framandi
Ragnheiður er óhrædd við að
prófa sig áfram í matargerð þó
að hún sé alltaf hrifin af hefð-
bundnum sveitamat.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
INDVERSKT OG GOTT
Anjali Pathak lumar á góðri
uppskrift að tikka masala-
kjúklingi og fersku salati
með rauðri papriku, selleríi
og myntu.
MATUR 3
STYRKTARMARKAÐUR
Nemendur í MK standa í dag
og á morgun fyrir fatamarkaði
í samstarfi við Rauða krossinn
til styrktar nauðstöddum í
Mósambík.
HELGIN 2
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
gb
ro
t
Ódýrt og gott
í hádeginu
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns
góðgæti á frábæru verði: Crépes, samlokur, pizzur,
súpubar, nýbökuð brauð og gómsætan salatbar.
Eins er hægt að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls
kyns ísrétti, kökur og tertur.
Við Perluna eru næg ókeypis bílastæði.
Belgískar
vöffl ur
Láttu það eftir þér,
þær eru algjörlega
þess virði.