Fréttablaðið - 18.04.2008, Page 31
[ ]
Anjali Pathak, barnabarn
stofnanda Patak‘s, er stödd
hér á landi til þess að kynna
indverska matargerð.
Patak‘s framleiðir sósur og krydd-
blöndur fyrir indverska matar-
gerð og hafa vörur þess verið seld-
ar hér á landi í mörg ár. Anjali er
yfir vöruþróun og nýjungum fyrir-
tækisins og hefur hún ferðast um
allan heim til að kynna vörurnar
og indverska matargerðarlist.
„Mig langar að sýna fram á að ind-
versk matargerð er ekki flókin,“
útskýrir Anjali. Námskeiðin sem
hún heldur eru, eins og er, ekki í
boði fyrir almenning. Hún er vön
að bjóða til sín sölufólki og blaða-
mönnum og fræða um mismunandi
kryddblöndur sem notaðar eru í
matargerðina og hvernig elda eigi
með vörum fyrirtækisins.
Saga fyrirtækisins er skemmti-
leg. Patak‘s var stofnað fyrir
fimmtíu og einu ári af móðurafa
Anjali, sem flúði frá Kenía til Eng-
lands árið 1957. Nokkrum dögum
síðar kom kona hans til Englands
með börnin þeirra sex, en eitt
þeirra átti eftir að verða faðir
Anjali. Hjónakornin voru peninga-
laus og því tók kona hans upp á því
að elda hina ýmsu indversku rétti
heima fyrir og fljótlega spurðist
ágæti þeirra út. Á þessum tíma var
mikið um að Indverjar kæmu til
Englands til að stunda nám í lækn-
isfræði og verkfræði. Fljótlega fór
stór hópur námsmanna að sækja í
heimagerða matinn hjá ömmu
Anjali, enda söknuðu eflaust marg-
ir ekta heimatilbúins indversks
matar. Eftirspurnin var svo mikil
að brátt var farið að taka gjald
fyrir matinn. Eftir stuttan tíma
höfðu þau hjónin eignast næga
peninga til þess að opna litla búð
sem fljótlega stækkaði í verk-
smiðju sem framleiddi sósur,
kryddblöndur og ýmislegt sem
tengdist indverskri matarmenn-
ingu og matargerð. „Þannig byrj-
aði fyrirtækið og í dag eru vörur
okkar til sölu víðs vegar um heim-
inn. Við erum einstaklega stolt af
því hvernig fyrirtækið hefur vaxið
og dafnað,“ segir Anjali.
Í tilefni hálfrar aldar afmælis
fyrirtækisins í fyrra gáfu Anjali
og móðir hennar út matreiðslubók
þar sem Anjali kynnti nútímalegri
indverska matargerð en móðir
hennar kynnti hefðbundnari rétti.
klara@frettabladid.is
Matarástin í blóðinu
Vín er gott að fá sér með kvöldmatnum eftir erfiða vinnuviku.
Grillaðar nautalundir renna ljúflega niður með rauðvíni og svo
má fá sér súkkulaði á eftir.
Fjölskyldufyrirtæki Anjali var stofnað af afa hennar og ömmu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TIKKA MASALA-KJÚKLINGUR MEÐ
FERSKU SALATI
4 kjúklingabringur
6 tsk. jógúrt
10 tsk. Patak´s Tikka Masala
Curry Paste
Í SALATIÐ:
1 rauð paprika, niðurskorin
2 sellerístönglar, niðurskornir
8 kirsuberjatómatar skornir í
tvennt
1 tsk. mynta
100-150 g salatblöð
Blandið saman jógúrt og Patak´s
Tandoori Paste og marinerið kjúkl-
inginn í blöndunni í eina klst. í ís-
skáp. Setjið kjúklinginn á grillið og
eldið þar til hann er steiktur í gegn.
Berið síðan fram með salatinu og
gott er að grilla naan-brauð og hafa
með.
MALDON SJÁVARSALT Þekkja allir:
frábært í alla matargerð!
MALSON REYKT SALT:
lúmskt reykt bragð bætir fágun við
þinn uppáhalds rétt
MALDON LÍFRÆNN SVARTUR PIPAR:
ferskleikinn og bragðgæðin svíkja
engan!